Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 13
Unique hár og spa vann til
verðlauna sem Hársnyrtistofa
ársins. Eigendur stofunnar eru
Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir,
Jógvan Hansen og Jóhanna María
Gunnarsdóttir.
„Mér fannst Ísmótskeppnin
ótrúlega viðamikil og stórkostleg
keppni. Sýningarbásarnir voru
glæsilegir og aðkoman virkilega
flott. Það var mikill íburður í öllu
og þetta leit út fyrir að vera komið
til að vera. Keppnin var því mjög
fagmannleg,“ segir Sæunn Ósk
Unnsteinsdóttir, einn eigenda
Unique hár og spa.
Það eina sem Sæunni þótti miður
var að Ísmótinu sjálfu skyldi ekki
hafa verið fylgt betur eftir með
meiri fjölmiðlaumfjöllun þar sem
þetta var að hennar mati stór-
glæsilegt mót. En hvaða þýðingu
hefur sigurinn?
„Sigurinn hefur mikla þýðingu
fyrir okkur,“ segir Sæunn Ósk.
„Þetta er hvatning til að halda
okkar stöðu og gera okkar besta
til að verða betri. Að útbúa
skýrslu um fyrirtækið var mikið
aðhald í rekstri og hvati til að
koma hlutum í verk sem legið
höfðu í farvatninu. Einnig vil ég
taka fram að titillinn er ekki síður
fyrir starfsfólkið okkar, sem er í
raun stofan. Síðan geta nemarnir
sagt frá því að þeir hafi lært á
stofu sem hafi unnið titil.“
Sæunn leggur enn fremur
áherslu á hversu mikil hvatn-
ing er í því fólgin að fá fagverð-
laun fyrir starf sitt. „Það er mikið
talað um að kynna iðnmenntunina meira og hversu mikilvæg hún
sé og mér finnst keppni af þessu
tagi koma iðninni á hærra plan.
Skýrslan sem við gerðum um fyr-
irtækið var metin af fagaðilum úr
atvinnulífinu og var því rekstur-
inn í heild tekinn fyrir.
Það er í mörg horn að líta við
rekstur hárgreiðslustofu og við
eigendurnir höfum varla orðið
tíma til að standa á gólfinu og
klippa. En það er líka gaman að
reka fyrirtæki. Við erum öll frek-
ar ung og ánægjulegt að fá stað-
festingu á því að við séum að gera
góða hluti og að fyrirtækið sé á
réttri leið.“ hrefna@frettabladid.is
Kemur iðninni á hærra plan
Eigendur stofunnar: Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, Jógvan Hansen og Jóhanna María
Gunnarsdóttir.
Meistarataktar.
Það er nóg að gera á hárgreiðslustofu
Unique og er starfsfólkið iðið.
ísmót 2007 fréttablaðið