Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 80
Sumir vinir mínir eru stundum í tómu rugli, eins og það er kallað. Þeim líður illa, missa fót- ana og hrynja íða. Maður heyrir af þeim á þrautagöngunni, sem oftar en ekki endar með með- ferð. misserin finnst mér eins og íslenska þjóðin sé í tómu rugli eins og hún leggur sig. Í síðustu viku voru tvær fréttir sem ein- hvern veginn staðfestu þennan grun minn og römmuðu ruglið inn. Þetta voru fréttir um að 43 prósenta aukning hefði orðið á bílaviðskiptum frá því í fyrra – aðallega í sölu svokallaðra lúxus- bíla – og að aldrei hefði önnur eins mannekla verið á leikskólun- um. Þjóðin er í svo miklu rugli að hún hefur alltaf efni á nýjum og betri bíl en aldrei efni á að borga fólkinu sem elur upp næstu kyn- slóð sómasamleg laun. Það má alltaf fá sér lúxusbíl en aldrei leyfa sér þann lúxus að vita af krökkunum hjá fólki sem líður vel í vinnunni sinni. Þjóðin er eins og flottræfill í glæsilegum jakkafötum. Ef betur er að gáð er bæði búið að skíta og míga í bux- urnar. veit eiginlega ekki hvenær þetta gegndarlausa rugl byrjaði, en mig grunar að það hafi verið þegar Kárahnjúkastíflan tók að hraukast upp og fasteignaverðið rauk upp úr öllu valdi. Takk, Framsókn. Nú eru allir og amma þeirra komnir í startholurnar fyrir nýjar stíflur og ný álver til að halda ruglinu áfram. Til hvers? Til þess að næstu árin getum við hlustað á fréttir um að enn hafi orðið gífurleg aukning í sölu lúxusbíla og að aldrei hafi vantað jafn marga á leikskólana? hvað veit ég? Kannski leysir markaðurinn leikskólavandann á endanum – leysir hann ekki allan vanda? Leikskólar verða kostaðir af stórfyrirtækjum. Í Glitnis- heimum, Baugsborg og Alcan- koti verða kennarar á viðunandi launum með lúxusbíla á rað- greiðslum. Á þennan hátt byrja fyrirtækin snemma að ná til væntanlegra kúnna og græða að auki nauðsynlega góðvild meðal borgaranna. Þegar leikskólabörn- in fara út í halarófu verða þau merkt í bak og fyrir af viðkom- andi kostanda. Þematengd verk- efni verða unnin upp úr sögu fyr- irtækjanna og leikrit um fyrirtækin flutt á tyllidögum. Af hverju ekki smábörnin eins og allt annað? Þjóð í rugli Gríptu augnablikið og lifðu núna Vertu í hópi ánægðustu viðskiptavinanna Við lítum ekki bara á það sem skyldu að veita viðskiptavinum okkar bestu mögulegu þjónustu, okkur finnst hreinlega ekkert annað koma til greina. Þetta hefur líka skilað sér í því að viðskiptavinir Vodafone eru ánægðustu viðskipta- vinir farsímafyrirtækja samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni. Hringdu í 1414 og vandamálið er úr sögunni. Viðskiptavinir Vodafone í fyrsta sæti F í t o n / S Í A F I 0 2 2 9 5 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.