Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 80
Sumir vinir mínir eru stundum í tómu rugli, eins og það er
kallað. Þeim líður illa, missa fót-
ana og hrynja íða. Maður heyrir
af þeim á þrautagöngunni, sem
oftar en ekki endar með með-
ferð.
misserin finnst mér eins
og íslenska þjóðin sé í tómu rugli
eins og hún leggur sig. Í síðustu
viku voru tvær fréttir sem ein-
hvern veginn staðfestu þennan
grun minn og römmuðu ruglið
inn. Þetta voru fréttir um að 43
prósenta aukning hefði orðið á
bílaviðskiptum frá því í fyrra –
aðallega í sölu svokallaðra lúxus-
bíla – og að aldrei hefði önnur
eins mannekla verið á leikskólun-
um. Þjóðin er í svo miklu rugli að
hún hefur alltaf efni á nýjum og
betri bíl en aldrei efni á að borga
fólkinu sem elur upp næstu kyn-
slóð sómasamleg laun. Það má
alltaf fá sér lúxusbíl en aldrei
leyfa sér þann lúxus að vita af
krökkunum hjá fólki sem líður
vel í vinnunni sinni. Þjóðin er
eins og flottræfill í glæsilegum
jakkafötum. Ef betur er að gáð er
bæði búið að skíta og míga í bux-
urnar.
veit eiginlega ekki hvenær
þetta gegndarlausa rugl byrjaði,
en mig grunar að það hafi verið
þegar Kárahnjúkastíflan tók að
hraukast upp og fasteignaverðið
rauk upp úr öllu valdi. Takk,
Framsókn. Nú eru allir og amma
þeirra komnir í startholurnar
fyrir nýjar stíflur og ný álver til
að halda ruglinu áfram. Til hvers?
Til þess að næstu árin getum við
hlustað á fréttir um að enn hafi
orðið gífurleg aukning í sölu
lúxusbíla og að aldrei hafi vantað
jafn marga á leikskólana?
hvað veit ég? Kannski leysir
markaðurinn leikskólavandann á
endanum – leysir hann ekki allan
vanda? Leikskólar verða kostaðir
af stórfyrirtækjum. Í Glitnis-
heimum, Baugsborg og Alcan-
koti verða kennarar á viðunandi
launum með lúxusbíla á rað-
greiðslum. Á þennan hátt byrja
fyrirtækin snemma að ná til
væntanlegra kúnna og græða að
auki nauðsynlega góðvild meðal
borgaranna. Þegar leikskólabörn-
in fara út í halarófu verða þau
merkt í bak og fyrir af viðkom-
andi kostanda. Þematengd verk-
efni verða unnin upp úr sögu fyr-
irtækjanna og leikrit um
fyrirtækin flutt á tyllidögum. Af
hverju ekki smábörnin eins og
allt annað?
Þjóð í rugli
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Vertu í hópi
ánægðustu
viðskiptavinanna
Við lítum ekki bara á það sem skyldu að veita viðskiptavinum okkar bestu
mögulegu þjónustu, okkur finnst hreinlega ekkert annað koma til greina. Þetta
hefur líka skilað sér í því að viðskiptavinir Vodafone eru ánægðustu viðskipta-
vinir farsímafyrirtækja samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni.
Hringdu í 1414 og vandamálið er úr sögunni.
Viðskiptavinir Vodafone í fyrsta sæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
2
9
5
1