Fréttablaðið - 18.09.2007, Side 12

Fréttablaðið - 18.09.2007, Side 12
Hluthafafundur FL Group hf. 25. SEPTEMBER 2007 Stjórn FL Group hf. boðar hér með til hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður á Nordica Hotel þriðjudaginn 25. september 2007, kl. 8.30. DAGSKRÁ: 1. Tillaga stjórnar FL Group hf. um hækkun hlutafjár í félaginu með útgáfu og sölu nýrra hluta að nafnverði allt að kr. 1.316.476.938 til að fjármagna kaup á hlutum í Tryggingamiðstöðinni hf. Hluthafar hafa ekki forgangsrétt að hinum nýju hlutum. Stjórn félagsins ákveður sölugengi hlutanna, áskriftarfrest og greiðslukjör og heimilt er að greiða hina nýju hluti með hlutum í Tryggingamiðstöðinni hf. 2. Tillaga stjórnar FL Group hf. um að heimild stjórnar félagsins til útgáfu nýs hlutafjár í félaginu verði að fjárhæð kr. 2.000.000.000, þar af verði heimilt að gefa út nýja hluti án forgangsrétt- ar hluthafa kr. 1.500.000.000 að nafnverði og heimild til að gefa út hlutafé háð forgangsrétti hluthafa verði að fjárhæð kr. 500.000.000. Heimildin gildi í fimm ár frá 25. september 2007 að telja og skal heimilt að greiða aukningarhluti með öðru en reiðufé. Framangreindar tillögur leiða til breytinga á 4. gr. samþykkta félagsins nái þær fram að ganga. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um tillögurnar bréflega. Atkvæðaseðlar eru fyrirliggjandi á skrifstofu félagsins frá og með fimmtudeginum 20. september n.k. og þar er ennfremur hægt að greiða atkvæði. Þeir hluthafar sem þess óska skriflega fyrir fimmtudaginn 20. september geta fengið atkvæða- seðla senda. Bréfleg atkvæði skulu berast á skrif- stofu félagsins eigi síðar en kl. 16.00 mánudaginn 24. september eða afhendast á hluthafafundinum sjálfum. Atkvæði verða talin á hluthafafundinum þann 25. september og verða einungis atkvæði þeirra hluthafa sem þá eru skráðir í hlutaskrá tekin með í atkvæðagreiðslunni. Fundargögn, þ.m.t. tillaga stjórnar ásamt greinar- gerð, eru til sýnis á skrifstofu FL Group hf. frá og með þriðjudeginum 18. september og verða send þeim hluthöfum sem þess óska. Gögnin eru ennfremur aðgengileg á heimasíðu félagsins, www.flgroup.is. Reykjavík 16. september 2007 Stjórn FL Group hf. „Við verðum að halda ró okkar,“ sagði Mohammed ElBaradei, yfirmaður kjarnorku- eftirlits Sameinuðu þjóðanna, við fréttamenn í Vínarborg í gær. „Við þurfum ekki að blása þetta mál út,“ sagði hann, og átti við kjarn- orkuvinnslu í Íran, sem bandarísk stjórnvöld og nú síðast utanríkis- ráðherra Frakk- lands telja hugsan- lega geta orðið tilefni stríðs. „Ég myndi ekki minnast neitt á valdbeitingu,“ segir ElBaradei, og brást þar óbeint við ummælum Bernards Kouchner, utan- ríkisráðherra Frakklands, sem sagði á sunnudaginn að Vesturlönd yrðu að búa sig undir stríð ef Íranar kæmu sér upp kjarnorku- sprengju. „Til eru reglur um það með hvaða hætti beita skuli valdi,“ sagði ElBaradei, „og ég ætla að vona að allir hafi áttað sig á því sem læra má af ástandinu í Írak, þar sem 700 þúsund saklausir borgarar hafa látið lífið vegna gruns um að þar séu kjarnorku- vopn.“ Íranar hafa haldið ótrauðir áfram að auðga úran, sem á endan- um gerir þeim kleift að framleiða eldsneyti í kjarnorkuvopn. Hvorki refsiaðgerðir af hálfu Sameinuðu þjóðanna né langvinnar samninga- viðræður hafa sannfært Írana um að hætta við frekari auðgun úrans. Írönsk stjórnvöld halda því fram að kjarnorkuvinnsla sé ein- göngu stunduð í friðsamlegum til- gangi í Íran, en bæði Bandaríkin, ríki Evrópusambandsins og fleiri ríki hafa grun um að Íranar ætli að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Bandaríkin hafa neitað að úti- loka árás á Íran og bandaríski her- inn hefur þegar skipulagt slíka árás, þótt enn sem komið er leggi Bandaríkin áherslu á efnahagsleg- ar refsiaðgerðir. Í sjónvarpsviðtali á sunnudag- inn tók síðan utanríkisráðherra Frakka, fyrstur ráðamanna í Evr- ópu, í sama streng og Bandaríkin: „Ef sprengja af þessu tagi verður gerð, þá verðum við að búa okkur undir það versta.“ ElBaradei tókst nýverið að ná samkomulagi við írönsk stjórn- völd um að kjarnorkueftirlits- menn Sameinuðu þjóðanna fái að fylgjast með kjarnorkuvinnslu í Íran. „Ég tel ekki að sem stendur steðji að okkur nokkur greinileg og yfirgnæfandi hætta sem krefst þess að við göngum lengra en að halda áfram samningaviðræðum,“ segir ElBaradei, og bætti því við að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefði engar heimildir um að Íranar væru að vopnvæðast. Vill forðast allt stríðstal Yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar gagnrýnir utanríkisráðherra Frakklands og segir óþarft að gera of mikið úr kjarnorkuvinnslu Írans. Ég ætla að vona að allir hafi áttað sig á því sem læra má af ástandinu í Írak, þar sem 700 þúsund saklausir borgarar hafa látið lífið vegna gruns um að þar séu kjarnorkuvopn. Um 340 þingmenn frá hinum 26 aðildarríkjum Atl- antshafsbandalagsins munu sækja ársfund NATO-þingsins, sem haldinn verður í Reykjavík dagana 5.-9. október. Þingfund- inn sitja einnig Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, og Sali Berisha, forsætis- ráðherra Albaníu. Þetta verður 53. ársfundur NATO-þingsins en í fyrsta sinn sem hann er haldinn á Íslandi. Hann er stærsti fundur alþjóð- legra þingmannasamtaka sem Alþingi á aðild að. Helstu efni fundarins verða áformuð uppsetning á hlutum eldflaugavarnakerfis Banda- ríkjanna í Póllandi og Tékk- landi, samskipti NATO við Rúss- land og framtíð Kosovo-héraðs, að því er segir í fréttatilkynn- ingu. Meðal annarra efna á fundin- um verða stærri verkefni Atl- antshafsbandalagsins – nánar tiltekið í Afganistan, breytingar í starfi bandalagsins, samskipti við samstarfsríki, lýðræðislegir stjórnarhættir í ríkjum við Svartahafið, verkefnasamstarf NATO og Evrópusambandsins og umræðan um kostnaðarskipt- ingu innan bandalagsins. NATO-þing í fyrsta sinn á Íslandi Bæjarstjórn Grinda- víkur lýsti óánægju og undrun með mótvægisaðgerðir ríkis- stjórnarinnar vegna aflaskerðingar á þorski í gær eftir aukabæjar- stjórnarfund. Bæjarstjórnin segir Grindavík verða verst úti vegna skerðingarinnar en þrátt fyrir það sé ekki minnst á bæinn í boðuðum mótvægisaðgerðum. Í yfirlýsingu frá bæjarstjórn- inni kemur fram að það líti helst út fyrir að verið sé að refsa Grind- víkingum fyrir að hafa sýnt aðhald og ábyrgð í rekstri undan- farin ár. Bæjarstjórnin harmar að ekki skuli hafa verið haft samráð, í aðdraganda mótvægisaðgerð- anna, við það sveitarfélag sem einna harðast verður úti í niður- skurði aflaheimilda í þorski. Þar kemur einnig fram að jafnræðis hafi engan vegin verið gætt í aðgerðunum og ekkert tillit sé tekið til tekjusamdráttar sjó- manna né landverkafólks. Bæjar- stjórnin segist telja að ekki sé um raunverulegar mótvægisaðgerðir að ræða vegna skerðingarinnar heldur séu byggðasjónarmið látin ráða för þegar ákveðið sé hvaða bæjarfélög njóti góðs af aðgerð- unum. Jafnframt lýsir bæjarstjórnin fullri ábyrgð á hendur ríkisvald- inu vegna þeirra áfalla sem skella munu á íbúum bæjarins næsta vor þegar skip, bátar og vinnslu- stöðvar stöðvast vegna skerðingar- innar. Umferðarlagabrot- um fjölgaði um tuttugu prósent í ágústmánuði miðað við sama tíma í fyrra. Fíkniefnabrotum fækkaði um 38 prósent, og hegningarlaga- brotum fækkaði um átján prósent. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkislögreglustjóra um afbrotatölfræði í ágústmánuði, sem kom út í gær. Hraðamyndavélar í Hval- fjarðargöngum, Hvalfjarðarsveit og á höfuðborgarsvæðinu eru sagðar ein helsta orsökin fyrir mikilli fjölgun hraðakstursbrota milli ára. Til að mynda tuttugu- faldaðist fjöldi hraðakstursbrota hjá lögreglustjóranum á Snæfells- nesi vegna tveggja hraðamynda- véla við þjóðveg númer eitt. Umferðarlaga- brotum fjölgar um fimmtung Laun starfsmanna á almennum markaði eru allt að því þriðjungi hærri en hjá ríkis- starfsmönnum. Samkvæmt launakönnun Starfsmannafélags ríkisstofnana (SFR) er heildar- launamunur milli hópanna tveggja að meðaltali tuttugu prósent. Í frétt á vef SFR segir að launamunurinn eigi sér engar eðlilegar skýringar, heldur sé um hreina láglaunastefnu ríkisins að ræða. Ljóst sé að í komandi kjarasamningum muni SFR krefjast þess að félagsmenn verði launaðir til jafns við starfsmenn á almennum markaði. Saka ríkið um láglaunastefnu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.