Fréttablaðið - 18.09.2007, Síða 13
[Hlutabréf]
Breski fjárfestingasjóðurinn
Candover hefur dregið til baka
yfirtökutilboð í hollensku iðnað-
arsamstæðuna Stork. Var þetta
gert þar sem ljóst var að tilskil-
innn fjöldi hluthafa myndi ekki
samþykkja tilboðið.
LME, eignarhaldsfélag Eyris
Invest, Landsbankans og Marels,
sem á 43 prósent hlutfjár í Stork,
vildi ekki ganga að boðinu. Félag-
ið hefur um árabil þrýst á um
samruna matvælavinnsluvéla-
hluta Stork og Marel Food Syst-
ems.
Í sameiginlegri yfirlýsingu
segja Candover, LME og Stork, að
eftir viðræður síðustu tveggja
vikna hafi verið ákveðið „að halda
formlegum viðræðum áfram til
að skoða aðrar mögulegar útfærsl-
ur með hag allra hagsmunaaðila í
huga“. Stefnt er að niðurstöðu í
viðræðunum ekki síðar á fyrri
hluta októbermánaðar.
Gengi bréfa Stork lækkaði um
3,84 prósent í gær, endaði í 44,85
evrum hluturinn. Yfirtökutilboð
Candover hljóðaði upp á 47 evrur
á hlut.
Candover dreg-
ur boð til baka
EFNAHAGSUNDRIÐ ÍSLAND
MORGUNVERÐARFUNDUR GREININGAR GLITNIS
Greining Glitnis efnir til morgunverðarfundar miðvikudaginn 19. september
milli kl. 8.15 og 9.45 á Nordica Hotel þar sem fjallað verður um þróun
í íslensku efnahagslífi síðastliðin ár og horfur næstu misserin. Fundarstjóri
verður Gunnar Ólafur Haraldsson, aðjúnkt við Hagfræðiskor HÍ og forstöðu-
maður Hagfræðistofnunar HÍ.
Dagskrá:
Vinsamlega staðfestið þátttöku á www.glitnir.is/greiningarfundur – allir velkomnir.
FL Group hf. hefur náð samningum við
Glitni, Hnotskurn ehf. og Samherja hf.
um kaup á öllum hlutum þeirra í Trygg-
ingamiðstöðinni hf, 46,2 prósentum
hlutabréfa. Kaupverð nemur um 24
milljörðum króna sem seljendur fá greitt
með útgáfu nýs hlutafjár í FL Group.
Kaupin eru háð samþykki hluthafa FL
Group og Fjármálaeftirlitsins. Gangi
þau eftir mun FL Group fara með 83,7
prósent hlutafjár í TM og stefnir á að
gera yfirtökutilboð í útistandandi hluta-
bréf og taka TM af markaði.
FL Group átti fyrir samkomulagið 37,6
prósent í TM í gegnum eignarhalds-
félagið Kjarrhólma, sem félagið tryggði
sér að fullu í síðustu viku.
Guðbjörg M. Matthíasdóttir, sem var
stærsti hluthafi TM, og fleiri seldu bréf
sín í félaginu til Glitnis fyrir hálfum
mánuði á genginu 46,5 krónur á hlut.
Glitnir sagði þá að hluturinn yrði ýmist
seldur allur eða í hlutum til fjárfesta.
Stjórnendur FL Group segjast í til-
kynningu telja kaupin opna félaginu
tækifæri á nýju sviði. Viðskiptin séu
fyrsta skref félagsins inn á trygginga-
markað.
FL Group tryggir sig í TM
Kortaþjónustan hefur sett hér upp
fyrstu posana sem taka við evrum.
Flugþjónustan á Reykjavíkurflug-
velli tók fyrstu posana í notkun, en
evruposar eru til að byrja með
helst sagðir gagnast fyrirtækjum
í ferðaþjónustu.
Í tilkynningu Kortaþjónustunn-
ar kemur fram að fleiri fyrirtæki
hafi þegar beðið um slíka posa, en
notkun þeirra þýðir að viðskipta-
vinir fyrirtækjanna fá uppgefið
verð vöru eða þjónustu í evrum og
greiða í þeirri mynt. Söluaðilinn
ræður svo hvort hann fær upp-
gjörið á posafærslunum greitt í
krónum eða evrum.
Jóhannes Ingi Kolbeinsson,
framkvæmdastjóri Kortaþjónust-
unnar, telur þó fullsnemmt að full-
yrða að hér hafi verið tekið fyrsta
skrefið í að evruvæða greiðslu-
kerfi hér.
Fyrstu evrupos-
arnir í notkun
Hagnaður Norvik banka á fyrri
helmingi þessa árs nemur sem
svarar 4,6 milljónum lettneskra
lata, eða tæpum 610 milljónum
íslenskra króna, samkvæmt
nýbirtu uppgjöri.
Fram kemur að á sama tímabili
í fyrra hafi hagnaður bankans
numið 985 þúsund lötum og
aukningin sé því 372 prósent.
Hagnaður af starfsemi bankans
er sagður hafa aukist um 72,2
prósent milli ára, var á fyrri
helmingi þessa árs rúmlega 13,1
milljón löt, eða rúmlega 1,7
milljarðar króna. Á sama tíma
hefur rekstrarkostnaður bankans
aukist um 24,2 prósent.
Hagnaður jókst
um 372 prósent