Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 22

Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 22
FERÐABLAÐ ICELAND EXPRESS 2007 Fyrir þá sem vilja versla er bæði hátíska og lágtíska og allt þar á milli á Strikinu eða einhverri af litlu götunum í nágrenni þess. Og það er engin ástæða til að borða bara síld og smurbrauð. Kaupmanna- höfn er smekkfull af alls kyns veitingahúsum sem jafnast á við það besta í Evrópu og skemmtileg kaffihús, barir og klúbbar eru á hverju strái. Sérstaklega er gaman að fara í leiðangra um eitthvert af Bro-hverfunum: Vesterbro, Nørrebro eða Østerbro, þau hverfi hafa verið í mikilli uppbyggingu undanfarin ár og iða af lífi. KÖBEN Kaupmannahöfn er ein af elstu og fallegustu borgum meginlandsins. Hvort sem þú vilt versla eða borða, fara á söfn, tónleika eða í leikhús þá býður þessi gamla höfuðborg Íslendinga upp á allt sem þarf. Billund í Danmörku er vinalegur og fjölskylduvænn bær sem býður upp á fjölbreytta afþreyingu. Billund er sennilega þekktastur sem heimabær Lególands en það má bæta því við að frá Billund er stutt til háskólabæja eins og Árósa og Horsens þar sem hundruð Íslendinga stunda nám. Billund er ekki aðeins flugstöðin rétt hjá Lególandi heldur líka dyr að Jótlandi og Norður-Þýskalandi. BILLUND Verð á flugi aðra leið með sköttum VERÐ FRÁ: 7.995 kr. Verð á flugi aðra leið með sköttum VERÐ FRÁ: 7.995 kr. Í þessu einstaka pakkatilboði bjóðum við upp á gistingu á Hotel Kong Frederik sem er örfá skref frá Ráðhústorginu og Strikinu. Þaðan er hægt að komast í Tívolí eða á Aðalbrautar- stöðina ef menn vilja út fyrir borgarmörkin. Við mælum eindregið með að fólk bregði sér í smørrebrød hjá Ida Davidsen, það toppar hana enginn. VERÐ Í TVÍBÝLI 49.900 kr. HELGARFERÐ TIL KAUPMANNA- HAFNAR INNIFALIÐ: Flug með sköttum, 3 gistinætur á Hotel Kong Frederik, 4 stjörnur, með morgunverði. Express Ferðir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 2.–5. nóvember www.expressferdir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.