Fréttablaðið - 18.09.2007, Síða 26
STAF
GANG
A
ÁHRIF
ARÍK
LEIÐ
TIL LÍ
KAMS
RÆKT
AR
Stafgöngunámskeið hefjast 25. september n.k.
stafgönguþjálfi, 616 85 95.
stafgönguþjálfi, 694 35 71.
Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
SKRÁNING & NÁNARI UPPLÝSINGAR Á:
Í amstri dagsins er hvíld
hverjum manni nauðsynleg, en
oft vill brenna við að hún sé
vanmetin.
Nútímasamfélag er fyrst og fremst
árangursmiðað. Við metum vel-
gengni út frá árangri og afrekum
og þetta kallar oft á langa vinnu-
daga og litla hvíld. Til að sporna við
hreyfingarleysi fara menn og konur
í ræktina og styrkja með því líkam-
ann. Andlega hliðin fær þá oft
ákveðinn boðefnaskammt um leið
– en betur má ef duga skal.
Að kunna að slaka almennilega á
er andlegt listform sem margir
eiga ólært. Sumir geta ekki sofnað
á kvöldin fyrir eigin hugsunum og
aðrir eru ófærir um að vera í núinu
og hafa hugann stöðugt við annað
en líðandi stund. Slökun og svoköll-
uð „jarðtenging“ bætir úr þessu og
skapar um leið öflugri einstaklinga
sem ná betri árangri í starfi.
Uppbyggileg slökun getur verið
allt frá góðum nætursvefni yfir í
aðferðir sem hver og einn tileinkar
sér, en þær má læra á ýmsan hátt.
Hjá Jógastöðinni Yoga Shala í
Engjateigi eru að hefjast sérstök
slökunarnámskeið, en þar gefst
fólki kostur á að koma í hádeginu
og láta þreytu og stress líða úr sér.
Ekki þarf að gera annað en að fara
úr skónum, leggjast á gólfið og láta
svo leiða sig áfram í slökuninni.
Ingibjörg Stefánsdóttir jóga-
kennari segir tímana hafa lagst vel
í nemendur, en margir þeirra eru
menn úr viðskiptalífinu sem vinna
oft undir álagi og tímapressu.
„Tíminn stendur í fjörutíu mínút-
ur og eftir hann er fólk endurnært
og komið með nýja orku,“ útskýrir
Ingibjörg og bætir því við að tím-
arnir séu byggðir á svokölluðu jóga
nitra, eða svefnjóga.
„Þetta er alveg rosalega notalegt
og í raun fer maður á svona hálf-
gert flug með þessu. Slökunin verð-
ur mjög djúp, maður gleymir stað
og stund, nær að kúpla sig út úr öllu
og öðlast ró og frið. Þetta er virki-
lega þægilegt ástand,“ segir hún og
nefnir jafnframt að þetta geti allir
gert þó að það taki fólk mislangan
tíma að ná slökuninni.
Ingólfur S. Sveinsson geðlæknir
er einnig meðal þeirra sem hafa
kennt og hjálpað fólki að slaka á, en
hann hefur til dæmis gefið út
geisladiskinn Frelsi til að anda, þar
sem hann leiðir áheyrandann í rúm-
lega fimmtán mínútna slökunar-
hugleiðslu. Ingólfur segir að slökun
og hvíld sé undirstöðuatriði þess að
fólk búi við góða geðheilsu.
„Við þurfum að hafa ráð til að
læra að stjórna huganum og ég tel
það mikilvæga menntun fyrir hvern
mann að læra slökun,“ segir Ingólf-
ur og bendir jafnframt á að einfald-
ar bænir geti oft dugað til að tæma
og temja hugann og leiða hann inn á
réttar brautir.
Fyrir áhugasama er vert að benda
á að geisladiskur Ingólfs er seldur í
Skipholtsapóteki.
Hægan, slappaðu af
e inkatímar · hóptímar
hugræn teygjuleikfimi
tai chi · kung fu
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w. h e i l s u d r e k i n n . i s
Reiki
Heilunar- og sjálfsstyrkingarnámskeið RVK
Kvöld- og helgarnámskeið í boði,
næstu námskeið eru:
FYRIR BÆTTA LÍÐAN OG BETRI STJÓRN Á LÍFI ÞÍNU
Pantanir í síma 553 3934,
milli kl. 10 og 13 virka daga.
Guðrún Óladóttir
reikimeistari og hómópati
I. stig kvöldnámskeið
17. – 19. sept.
II. stig kvöldnámskeið
9. – 11. okt.
Auktu styrk þinn
Sjálfstyrkingarnámskeið
22. – 23. sept. helgarn.
I. sti l s i
17. – 9. sept.
II. stig kvöldnámskeið
9. – 11. okt.