Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 36
4 18. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGURlh hestar
Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, segir
í pistli á heimasíðu ÍSÍ að íslenski
hesturinn sé orðinn grundvöllur
umfangsmikils íþrótta- og menn-
ingarstarfs á alþjóðavettvangi.
Ólafur, sem var gestur á HM07 í
Oirschot í Hollandi, segir að nokk-
urs misskilnings hafi gætt hjá
ýmsum aðilum hér heima varðandi
heimsmeistaramótin, sem jafn vel
hafi talið að þar væru fáeinir Ís-
lendingar að keppa hver við annan
undir digurbarkalegum merkjum
HM. Sannleikurinn sé hins vegar
sá að Ísland er aðeins ein keppn-
isþjóð af átján í alþjóðlegum sam-
tökum um íslenska hestinn, FEIF,
sem stofnuð voru 1969.
Ólafur segir að sú staðreynd að
FEIF hafi ávallt haldið tryggð og
trúnaði við tilvísun til Íslands sem
uppruna þessarar hestategund-
ar sé nokkuð sem við Íslendingar
ættum að vera stoltir af.
„Heimsmeistaramót íslenska
hestsins er vissulega miklu meira
en íþróttaviðburður. Hér er um
menningarviðburð að ræða, og
landkynningu sem nær langt út
fyrir mörk auglýsinga og mark-
aðsstarfs.
Fellur það vel að kjörorðum
Landssambands hestamannafé-
laga: Íþrótt – menning – lífsstíll,“
segir Ólafur Rafnsson.
Útgerð íslenska landsliðsins í hestaíþrótt-
um kostar 15 til 20 milljónir króna það ár sem
heimsmeistaramót er haldið. Farmurinn sem
fluttur er yfir hafið: hestar, fóður og annar
búnaður, vegur um fimm til sjö tonn og eru þá
knapar og þeirra farangur ekki taldir með.
Heldur minna kostar að gera liðið út á Norð-
urlandamótin, sem einnig eru haldin annað
hvert ár, þannig að verkefnin eru árleg. Það er
landsliðsnefnd LH sem sér um að skipuleggja
og afla fjár fyrir landsliðið og sú vinna er öll
lögð fram í sjálfboðavinnu. Formaður nefnd-
arinnar er Bjarnleifur Árni Bjarnleifsson, en
hann er einnig formaður Gusts í Kópavogi.
„Ef við héldum saman vinnustundunum
sem fara í þetta þá held ég að það væri eng-
inn eftir í nefndinni,“ segir Bjarnleifur og hlær
þegar hann er spurður hve margar vinnustund-
ir hefðu farið í undirbúninginn. „Við höfum
hins vegar kynnst mörgu góðu og skemmtilegu
fólki og árangur liðsins hefur verið eitthvað til
að gleðjast yfir. Ég vil nota tækifærið og þakka
styrktaraðilum okkar fyrir stuðninginn og
liðsstjórunum fyrir vel unnið verk. Ég vil líka
nefna að okkur þykir það stórt skref fram á
við að RÚV sýndi beint frá HM2007 í Hollandi
nokkra daga í röð. Við þurfum á því að halda
að auka sýnileika okkar. Ég vil líka óska okkur
hestamönnum til hamingju með þetta blað, LH-
HESTA, þetta er framfaraspor.“
Landslið Íslands fór frækna för á Heims-
meistaramót íslenska hestsins í Hollandi
og unnu knapar liðsins til margra verð-
launa. Finna má öll úrslit mótsins á www.
feif.org. Samkvæmt ákvæðum laga um
búfjársjúkdóma er óheimilt að flytja þá
hesta heim aftur sem á annað borð fara úr
landi. Að þessu sinni fóru ellefu keppnis-
hestar frá Íslandi á HM2007 í Hollandi, átta
hestar í liðinu áttu heimili á meginlandinu.
Ávallt er forvitnilegt að vita hver verða
þeirra nýju heimkynni.
Kraftur frá Bringu, tvisvar sinnum tvöfaldur
Íslandsmeistari í tölti og fimmgangi, var seld-
ur til Svíþjóðar en það er fjölskyldan Bonn-
evier sem keypti hestinn. Heimir Gunnars-
son mun þjálfa hann en ekki er vitað hvort
stefnan hefur verið sett á frekari keppni eða
sýningar. Svaki frá Holtsmúla, Íslandsmeist-
ari í fjórgangi, fór til Noregs. Kaupandinn er
Åselene Echoff, sem meðal annars á hestana
frá V-Leirárgörðum, Ræsi frá Feti og glæsi-
hestinn Gest frá Stallgården, sem keppt hefur
á nokkrum HM og nú síðast var það dóttir Ås-
elene, Mia Echoff, sem keppti á honum í ung-
mennaflokki. Svaki mun verða næsti keppnis-
hestur hennar.
Rune Svendsen keypti stóðhestinn Frán frá
V-Leirárgörðum. Rune er gamall í hettunni
í Íslandshestunum í Noregi, hefur talsvert
verið í keppni, meðal annars á HM-´99 á Hug
frá Stóra-Hofi, sem nú var hestur Elin Johans-
sen. Hárekur frá Vindási fór einnig til Noregs.
Kaupendur hans eru Tina Kirkås og Knut Axel
Ugland, sem meðal annars eiga hina þekktu
stóðhesta Trú frá Wetsinghe og Þokka frá Kýr-
holti. Tina var í norska landsliðinu á HM05 og
var í úrslitum í T2 á hesti sínum Randvar.
Hin norska Lene Wenaas keypti töltarann
og klárhestinn Vatnar frá Vatnsholti. Lene
höndlar með hestavörur, meðal annars kulda-
galla sem þekktir eru hér á landi hjá hesta-
fólki. Hún á 1. verðlauna stóðhestinn Bjarka
frá Stall Wenaas og 1. verðlauna hryssuna
Heklu frá Þóreyjarnúpi. Skeiðhesturinn og
heimsmeistarinn Kolbeinn frá Þóroddsstöð-
um fór til Danmerkur en kaupandi hans er
hinn kunni knapi Agnar Snorri Stefánsson,
sem nú er búsettur þar í landi. Agnar Snorri
keypti einnig Sporð frá Höskuldsstöðum,
sem var hestur Camillu Petru Sigurðardóttur
á HM07, en Agnar Snorri átti Sporð áður og
seldi Camillu.
Órator frá Grafarkoti fór til Þýskalands.
Kaupendur eru Peter og Stephanie Nagel
en þau eiga mörg góð íslensk hross, svo
sem heimsmeistarann í fjórgangi, Bassa frá
Möðruvöllum, og stóðhestinn Hraunar frá
Kirkjuferjuhjáleigu. Einnig eiga þau hlut í
stóðhestinum Víði frá Prestsbakka. Frakkinn
Pascale Kugler keypti stóðhestinn Dalvar frá
Auðsholtshjáleigu en hann á einnig stóðhest-
inn Geysi frá Sigtúni, Gustsson frá Hóli.
Aðeins tvö hross úr íslenska liðinu eru
óseld en það er stóðhesturinn og skeiðhestur-
inn Flugar frá Holtsmúla, sem er í eigu Sig-
urðar Ragnarssonar, og Finna frá Feti, en
það var reyndar ekki á dagskrá að selja hana
strax, heldur þjálfa hana frekar ytra. Flugar
er nú í þjálfun hjá Magnúsi Skúlasyni í Sví-
þjóð og er stefnt með hann á skeiðmeistara-
mótið í Þýskalandi í haust.
Hvert fóru HM gæðingar?
Þórarinn Eymundsson á Krafti frá Bringu var fremstur meðal jafningja í íslenska liðinu, varð heimsmeistari í fimm-
gangi og annar í tölti. Kraftur var seldur til Svíþjóðar. MYND/ÖRN KARLSSON
Íslenskir áhorfendur hvetja sína menn. Á myndinni má
sjá Bjarnleif í miklum ham. MYND/JENS EINARSSON
Höldum ekki saman vinnu-
stundunum – en þetta er gaman
Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ.
Fyrstu kappreiðar á hestum hér á
landi eru taldar hafa verið haldnar
á Oddeyri við Akureyri þjóðhátíð-
arárið 1874. Munu kappreiðarnar
hafa verið hluti af annarri hátíðar-
dagskrá og verðlaunum heitið.
Brautin var 280 faðma löng en tími
var ekki mældur og ekki er vitað
hvort keppt var í stökki eða skeiði
eða hvoru tveggja.
Fyrstu formlegu kappreiðarnar
voru hins vegar svokallaðar Mela-
kappreiðar, sem haldnar voru ár-
lega frá 1897 til 1909 og voru jafn-
an eitt af skemmtiatriðunum á
þjóðhátíð Reykvíkinga. Keppt var
í stökki og skeiði og tími tekinn á
kappreiðahestunum. Melakapp-
reiðarnar voru stórviðburður á
sínum tíma og vöktu mikla athygli
á hestinum.
Hestamannafélagið Fákur var
fyrsta formlega hestamannafélag
landsins, stofnað 24. apríl 1922. Fé-
lagið var forystuafl í hestamennsk-
unni í landinu í áratugi. Það studdi
meðal annars við stofnun annarra
hestamannafélaga víðar um landið
og má þar nefna Glað í Dalasýslu
1928, Létti á Akureyri 1928, Sleipni
í Árnessýslu 1929, Faxa í Borgar-
firði 1933, og Léttfeta á Sauðár-
króki 1933.
Fyrsta stórsýning á hestum hér
á landi var hins vegar haldin á
vegum Búnaðarfélags Íslands 1947
og þarf ekki að efa að þar hefur
Gunnar Bjarnason átt stóran hlut
að máli. Var sýningin hluti af stórri
landbúnaðarsýningu sem hald-
in var í tilefni af 110 ára afmæli
BÍ. Á þessari sýningu var Sleipn-
isbikarinn veittur í fyrsta sinn og
var hann veittur þeim stóðhesti
sem þótti álitlegastur til reiðhest-
aræktunar. Það var Skuggi 201 frá
Bjarnanesi sem hlaut bikarinn.
Landssamband hestamannafé-
laga var stofnað í Baðstofu iðnað-
armanna 18. desember 1949. Tólf
hestamannafélög lögðu grunn-
inn. Gunnar Bjarnason stýrð-
ii undirbúningsvinnu að stofn-
un sambandsins en fyrsti for-
maður þess var H. J. Hólmjárn. Í
fyrstu lögum L.H. segir meðal ann-
ars: „Markmið sambandsins er að
vinna að bættri meðferð hesta,
sérræktun íslenzks reiðhestakyns
og framgangi reiðhestaíþrótta …“
Hafrar &bygg
Langt út fyrir mörk auglýs-
inga og markaðsstarfs
Pitstop – góð vara, frábært verð og framúrskarandi þjónusta
Mikið úrval af heilsárs- og vetrardekkjum
undir allar tegundir bifreiða.
Gæðakaffi, nettengd tölva, tímarit og blöð – fyrir þig meðan þú bíður.
Nú á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu – þjónusta í fyrirrúmi.
Hjallahrauni 4 Hfj.
565 2121
Dugguvogi 10
568 2020
Skeifunni 5
568 2025
Triangle
Snow Lion
Heilsársmunstur sem
gefur gott grip.
Hentar undir allar
gerðir fólksbíla
og smájeppa.
Góð heilsársdekk á frábæru verði