Fréttablaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 57
Í Þjóðleikhúsinu standa
nú yfir æfingar á Ham-
skiptunum. Leikgerð
Davids Farr og Gísla Arnar
Garðarssonar byggir á
víðfrægri skáldsögu Franz
Kafka.
Hamskiptin voru frumsýnd í
London fyrir ári við gríðarlega
góðar undirtektir. Sýningin var
meðal annars tilnefnd til hinna
virtu Evening Standard verðlauna,
og gagnrýnandi The Guardian gaf
henni fimm stjörnur. „Í kjölfarið
bauð Þjóðleikhúsið okkur að sýna
hér, sem opnunarsýningu fyrir
haustið. Við þáðum það,“ sagði
Gísli. Nokkrar breytingar hafa þó
orðið á leikarahópnum. Elva Ósk
Ólafsdóttir og Ólafur Egill Egils-
son koma ný inn í verkið, en Gísli
Örn, Ingvar E. Sigurðsson og Nína
Dögg Filippusdóttir halda sínum
hlutverkum.
Gísli sagði æfingar ganga vel, en
um ár er síðan leikhópurinn tókst
síðast á við verkið. „Svo týndist
reyndar aðeins af leikmyndinni.
Við þurftum að flytja hana alla
heim frá Englandi. Hún var í
geymslu þar, og hluta af henni var
óvart hent, svo við höfum þurft að
smíða svolítið inn í hana,“ sagði
hann.
Sýningum lýkur í síðasta lagi í
byrjun desember. „Verkið fer aftur
á svið í London í janúar, svo leik-
myndin þarf að fara í desember,“
útskýrði Gísli. Þar á eftir fer
sýningin í leikferð um allt England,
með Birni Thors og Unni Ösp í
hlutverkum Gísla Arnar og Nínu
Daggar. Enskur leikari mun líklega
taka við hlutverki Ingvars.
Leikararnir Ryan Phillippe og
Sean Bean hafa tekið að sér
aðalhlutverkin í víkingamyndinni
Last Battle Dreamer. Myndin
gerist á áttundu öld og fjallar um
víkinginn
Þórfinn
(Phillippe) sem
ræðst inn í
Bretland ásamt
eldri bróður
sínum Hákoni
(Bean). Um
ástarsögu er að
ræða þar sem
eldur og
blóðsúthelling-
ar fá einnig að
njóta sín.
Ekki er langt síðan Phillippe lék
í Flags of Our Fathers hér á landi
og hver veit nema hann hafi
smitast af víkingabakteríunni við
þær tökur. Tökur á myndinni
hefjast síðar á þessu ári.
Víkingar í
nýrri mynd
Fjórar splunkunýjar spænskar
kvikmyndir verða sýndar á
alþjóðlegri kvikmyndahátíð í
Reykjavík sem hefst 27. septem-
ber. Myndirnar sem sýndar
verða heita Ég (Yo), Dökkblár
næstum svartur (Azuloscurocasi-
negro), Járnbrautarstjörnur
(Estrellas de la Linea) og
Campillo, já (Campillo, sí,
quiero). Sú síðastnefnda verður
frumsýnd á hátíðinni.
Myndirnar verða sýndar í
flokknum Sjónarrönd sem hefur
fylgt hátíðinni um langa hríð. Í
flokknum er eitt þjóðland tekið
fyrir og nýjar myndir þaðan
sýndar.
Í fyrra bar Danmörku við
sjónarrönd og árið þar á undan
var kvikmyndagerð frá Íran gert
hátt undir höfði.
Spánn í
sviðsljósinu