Fréttablaðið - 18.09.2007, Qupperneq 60
Á sunnudagskvöldið voru
59. Emmy-verðlaunin
afhent við hátíðlega athöfn
í Kodak-höllinni í Los
Angeles. Mafíuþátturinn
The Sopranos fékk flest
verðlaun en sigurinn varð
þó ekki jafn stór og búist
hafði verið við.
The Sopranos, með Tony og félögum
hans frá New Jersey, hlaut þrenn
verðlaun, þar á meðal sem besti
þátturinn, og hafði þar betur í
baráttunni við Boston Legal, Grey‘s
Anatomy, Heroes og House en
síðasta þáttaröðin um mafíu-
fjölskylduna frægu var sýnd í
Bandaríkjunum í sumar. 30 Rock
markar upphafið að markvissri
endurreisn ferilsins hjá leikaranum
Alec Baldwin og hlaut Emmy-
verðlaunin sem besti gaman-
þátturinn.
En þó að sigur The Sopranos hafi
verið fyrirsjáanlegur voru ekki
margir sem höfðu rétt fyrir sér
þegar kom að leikaraverðlaununum.
James Spader hafði James Gandolf-
ini undir og var valinn besti leikar-
inn, en hann fer á kostum í laga-
þáttunum Boston Legal. „Mér líður
eins og ég hafi stolið peningahlassi
af mafíunni og að hún sitji hérna öll
beint fyrir framan mig,“ sagði
Spader af þessu tilefni. Sigur Sally
Field fyrir Brothers & Sisters kom
einnig þægilega óvart en fyrir fram
höfðu flestir búist við því að Edie
Falco úr The Sopranos færi með
sigur af hólmi.
Í gamanþáttaflokknum skaut
America Ferrera úr Ugly Betty
keppinautum sínum ref fyrir rass
og var valin besta gamanleikkonan
og Ricky Gervais hlaut sömu
útnefningu í karlaflokknum. Landi
Gervais, Helen Mirren, bætti síðan
enn einum verðlaunagripnum í
safnið þegar hún hlaut Emmy-
verðlaunin fyrir bestu frammi-
stöðuna í framhaldsmyndaflokkn-
um um Jane Tennison í Prime
Suspect. „Ég gæti sagt margt um
amerísku þjóðina en eitt einkennir
hana og það er gjafmildi,“ sagði
Mirren við áhorfendur.
Að endingu var varaforsetinn
fyrrverandi, Al Gore, heiðraður
fyrir sjónvarpsstöðina Current TV
sem byggist á sköpunarverki
áhorfendanna. Gestir Kodak-hallar-
innar risu úr sætum og klöppuðu
vel og lengi fyrir Gore en hann
sagði að hann vildi með þessari
hugmynd endurskapa umræðuna
um bandarískt lýðræði.
Lindsay Lohan er leið á, og á leið frá,
Hollywood, ef eitthvað má marka upp-
lýsingarnar sem faðir hennar, Michael
Lohan, gaf breska blaðinu News of the
World. Hann heimsótti dóttur sína á
meðferðarheimili í Utah í síðustu viku,
en þá höfðu feðginin ekki sést í þrjú ár.
„Um leið og hún sá mig hljóp hún í
fangið á mér og settist í kjöltuna á mér
eins og lítið barn og grét,“ segir
Michael.
Hann ljóstraði því upp að Lindsay
myndi flytja frá Hollywood til að halda
sér frá eiturlyfjunum. „Hún sagði að
hún vildi ekki búa í Hollywood, þar
sem allt hið slæma í lífi hennar gerist
þar. Hún sagði: „Ég hata Hollywood og
ég vil ekki vinna þar. Ég þarf pásu og
ætla að flytja þaðan.“ Hann er sjálfur
óvirkur alkóhólisti og eiturlyfjaneytandi.
„Lindsay sagði: „Ég er alveg eins og þú,
pabbi.“ Eins sárt og það er, þá verð ég að
viðurkenna að það er rétt hjá henni,“
segir Michael.
Hann er þó sannfærður um að Lindsay
takist að forðast eiturlyfin. „Hún sagðist
hafa kvatt þau að eilífu. Ég leit í augun á
henni og sá að hún meinti það algjör-
lega,“ segir Michael.
Hefur notað öll eiturlyf
Leikkonan Angelina Jolie segist hafa notað öll eiturlyf sem til eru en
hún hafi hætt allri neyslu fyrir löngu. „Ég hef notað kókaín, heróín,
alsælu, LSD, allt sem til er,“ sagði Jolie. „Það sem hafði verst áhrif á
mig var hass. Mér leið eins og asna og ég þoli það ekki.“
Jolie minnist þess að hafa tekið inn LSD áður
en hún fór í Disneyland. „Ég fór að hugsa um
Mikka mús sem lítinn miðaldra mann í búningi
og hann er orðinn þreyttur á lífinu,“ sagði hún
og bætti við: „Þessi eiturlyf geta verið hættu-
leg ef þú notar þau ekki á jákvæðan hátt. Ég
hætti að nota þau fyrir löngu.“
Jolie var á sínum yngri árum þekkt óknytta-
stúlka en eftir að hún kom sér upp stórri
fjölskyldu með leikaranum Brad
Pitt hefur hún róast til mikilla
muna og ætlar sér ekki að snerta
á eiturlyfjum framar.
Lindsay flytur frá Hollywood
VERÐLAUNAFLOKKAR:
BESTA MYND AÐ MATI
DÓMNEFNDAR:
100.000 KR. OG
VERÐLAUN FRÁ
EYMUNDSSON
BESTA FRUMSAMDA HANDRIT
AÐ MATI DÓMNEFNDAR:
50.000 KR.OG
VERÐLAUN FRÁ
EYMUNDSSON
DAGSKRÁ:
KL. 12 - 14
UMRÆÐA UM HANDRITAGERÐ
MEÐ OTTÓ G. BORG (ASTRÓPÍA)
KL. 14 - 16
STUTTMYNDAKEPPNI LJÓSVAKALJÓÐA
SETNING
5-8 VALDAR STUTTMYNDIR SÝNDAR
AFHENDING VERÐLAUNA
REGLUR:
ALDUR: 15-25 ÁRA
LENGD: UM 20 MÍN.
MYND EKKI ELDRI EN 1 ÁRS
MYND SÝND Á ÁBYRGÐ KEPPENDA
SKIL:
MINIDV EÐA DVD ÁSAMT
ALMENNUM UPPLÝSINGUM
SENDIST Á ZIK ZAK FILMWORKS,
HVERFISGÖTU 14A, 101 REYKJAVÍK
FREKARI UPPLÝSINGAR
WWW.LJOSVAKALJOD.IS
LJOSVAKALJOD@FILMFEST.IS
SKILAFRESTUR ER ÞRIÐJUDAGURINN 25. SEPTEMBER
100.000 KR.
FYRIR BESTU MYND
ÓKEYPIS
AÐGANGUR
TJARNARBÍÓI LAUGARDAGINN
29. SEPT KL. 12:00 - 16:00
aðalstyrktaraðili:
SKILAFRESTUR
7
DAGAR
STUTTMYNDAKEPPNIN