Fréttablaðið - 18.09.2007, Side 63
Hljómsveitin Sign hitar upp fyrir
bandarísku rokksveitina Skid Row
á tónleikaferð hennar um Bretland
í nóvember. Sveitirnar spila á tólf
tónleikum og verða þeir fyrstu í
London 13. nóvember.
„Ég er búinn að vera aðdáandi
síðan ég var þriggja ára. Þá byrj-
aði ég að hlusta á Skid Row þegar
ég fór að stelast í plötusafnið hjá
eldri frænda mínum,“ segir Ragn-
ar Sólberg, söngvari Sign. „Þetta
er algjör draumur að rætast. Ég er
eiginlega ekki alveg búinn að
kaupa konseptið.“
Sign endurgerði lag sveitarinn-
ar, Youth Gone Wild, fyrir safndisk
á vegum tímaritsins Kerrang! sem
kom út fyrr á þessu ári. Eftir það
fór boltinn að rúlla. „Þeir voru að
fara að túra í Englandi og við
ákváðum að spyrja hvort við mætt-
um fara með. Þeir hlustuðu á plöt-
una okkar og heyrðu „cover-ið“ og
leist svona vel á og buðu okkur að
koma með,“ segir hann. „Ég held
að þetta verði alveg geðveikt. Við
eigum eftir að eignast fullt af
nýjum aðdáendum á þessu.“
Skid Row, sem gerði garðinn
frægan undir lok níunda áratugar-
ins, hefur selt um tuttugu milljónir
platna. Sveitin hefur gengið í gegn-
um töluverðar breytingar á undan-
förnum árum og skartar nýjum
söngvara í stað Sebastians Bach og
nýjum trommara.
Sign er um þessar mundir að
ljúka við sína nýjustu plötu sem
hefur fengið nafnið The Hope.
Ragnar er á leiðinni í hljóðver á
næstunni til að taka upp sönginn á
plötunni með aðstoð Ken Thomas,
sem hefur starfað náið með Sigur
Rós um árin.
Aðdáandi frá þriggja ára aldri
Leikkonan Julianne Moore hefur
skrifað barnabók um litla rauð-
hærða, freknótta stúlku sem er
lögð í einelti. Bókin er byggð á
æsku Moore, sem er sjálf rauð-
hærð og freknótt. Kvalarar litlu
stúlkunnar stríða henni svo mjög
að hún ákveður að ganga með
lambhúshettu í skólanum, áður en
hún áttar sig á því að það er allt í
lagi að vera öðruvísi, þar sem það
séu hvort eð er allir. Bókin hefur
hlotið nafnið Freckleface Straw-
berry, sem útleggst um það bil
„Freknufés jarðarber“ á íslensku.
Moore hefur látið uppi að sumar
setninganna sem stúlkan þarf að
hlýða á eru teknar úr hennar eigin
minningabanka. „Stór hluti bókar-
innar byggir á minni eigin
reynslu,“ segir Moore. Bókin
kemur út í næstu viku.
Moore gefur út bók
SNÆFELLSJÖKULL
DRANGAJÖKULL
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Njóttu dagsins
- taktu flugið
Aðeins nokkur skref á Netinu og þú ferð á loft
Það getur ekki verið auðveldara.
Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem
þú finnur ódýrustu fargjöldin og að
auki frábær tilboð.
Njóttu dagins, taktu flugið
og smelltu þér á flugfelag.is
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
3
77
33
0
5/
07