Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 72
Fá umræðuefni þykja skemmtilegri umræðuefni en
hörmungar. Þá einkum og sér í lagi
þegar þær snúa að þjáningum fal-
legs fólks sem hefur átt velgengni
að fagna. Öll vitum við af hungri,
sjúkdómum og kúgun í heiminum
en það er viðvarandi og víðfeðmt
vandamál sem erfitt er að persónu-
gera og því fremur óheppilegt
skemmtiefni yfir kaffibolla eða
netskrifum. Hin laglega McCann-
fjölskylda hefur aftur á móti verið
fullkominn efniviður góðs kjafta-
gangs.
Bretlandi hefur þessi fjölskylda
verið á forsíðu fjölda blaða nær
daglega frá því litla stúlkan hvarf í
byrjun maí. Á ferð minni um Bret-
land fyrir skömmu fylgdist ég
grannt með umfjöllun um málið og
dró þá ályktun að ekkert hefði
komið meira í ljós við rannsókn lög-
reglu og fjölmiðla á hvarfi Madel-
eine annað en að hún hvarf. Hins
vegar hefur líf, starf og sorgir for-
eldranna orðið öllum ljóst. Svo víð-
fræg eru þau orðin að breskir gár-
ungar eru farnir að uppnefna þau
„Beckham-fjölskyldu sorgarinnar“.
Victoria og David fullnægja frétta-
löngunum fólks um ríkidæmi og
gjálifnað en Kate og Gerry full-
nægja löngunum þeirra sem finna
fró í að velta sér upp úr sorgum
annarra, nú eða leika löggu og dóm-
ara í senn.
á landi, sem og annars staðar,
eru fréttir af þessum harmleik iðu-
lega birtar í fjölmiðlum. Þegar þær
fara á netið hefur það ekki brugðist
að sjálfskipaðir sérfræðingar
leggja undir sig fréttina í gegnum
athugasemdakerfin. Suma hefur
alltaf grunað frá fyrstu stundu að
foreldarnir beri ábyrgð á hvarfinu.
Hinir slá svo á puttana á visku-
brunnunum í gegnum lyklaborðið
með því að slengja fram útjaskaða
máltækinu „aðgát skal höfð í nær-
veru sálar“.
mál hafa fengið jafn mikið umtal
á þessari öld og hvarf Madeleine
litlu. Því er eðlilegt að allir vilji tala
um það og hafa skoðun á því. En eig-
inlega er þetta allt saman farið að
líkjast óhemju öfgakenndu raun-
veruleikasjónvarpi. Miklar fjárupp-
hæðir hafa safnast til hjónanna og
almenningur skiptist í tvö lið; þá
sem halda með portúgölsku lögregl-
unni og þá sem halda með foreldr-
unum. Allir geta haft skoðun á fram-
vindu málsins í gegnum netið og
þannig keyrt atburðarásina áfram.
Almenningsálitið sveiflast til og frá
og gríðarlegur þrýstingur er á að
sigurvegari og sökudólgur verði
fundnir innan skamms. Örlög Mad-
eleine og annarra týndra barna eru
orðið aukaatriði í söguþræðinum.
Hver sigrar?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
9
0
2
2
EYÐIR AÐEINS 4,7 LÍTRUM Á HUNDRAÐIÐ
Í BLÖNDUÐUM AKSTRI
Verð nú 1.775.000 kr.
Verð áður 1.875.000 kr.
100.000 KRÓNA
LÆKKUN Á NÝJUM
KIA RIO DÍSIL
Engin útborgun, 25.351 kr. á mánuði*
*M.v. 100% lán og 84 mánaða fjármögnun í blandaðri myntkörfu.
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU.
Takmarkað magn af þessum frábæra bíl á þessu verði.
Sumar- og vetrardekk fylgja með.
KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
Kia Rio er margrómaður og glæsilegur bíll sem hefur
undanfarin ár vakið mikla eftirtekt. Hann býr yfir kraftmikilli og
sparneytinni 110 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins 4,7 lítrum á
hundraðið í blönduðum akstri.
Rio er jafnframt búinn aksturstölvu, átta öryggisloftpúðum, ABS
hemlalæsivörn og álfelgum. Hér fara því saman gæði, fegurð
og hagkvæmni.