Fréttablaðið - 01.10.2007, Qupperneq 4
MARKAÐURINN
á www.visir
alla daga
„Það er mjög
góð stemning
hjá okkur
varðandi
þingsetning-
una, okkur
klæjar í
fingurna að fá
að takast á við
ríkisstjórnina,“
segir Siv Friðleifsdóttir, þing-
flokksformaður Framsóknar-
flokksins. „Þingið er helsti
vettvangurinn sem andstaðan
hefur til að veita ríkisstjórninni
aðhald.“
Hún segir blikur á lofti
varðandi efnahagsmál, og þau
verði ofarlega á baugi í þingsaln-
um í haust. Vextir séu háir,
krónan sveiflist og væntingar
séu varðandi kjarasamninga.
Hlakkar til að
veita aðhald
„Ég hugsa að
mótvægisað-
gerðir ríkis-
stjórnarinnar,
niðurskurður
þorskkvótans
og það sem af
honum leiðir
verði einna
mest til
umræðu á
þinginu í haust,“ segir Kristinn H.
Gunnarsson, formaður þingflokks
Frjálslynda flokksins. „Síðan held
ég að efnahagsmálin verði
töluvert ofarlega á baugi.“
Hann segir stjórnarandstöðuna
vissulega eiga við ofurefli að etja,
en Alþingi sé þannig vettvangur
að liðsstyrkurinn nýtist stjórninni
ekki sem skyldi. „Ég tel að
andstaðan geti verið nokkuð
öflug.“
Þorskkvótinn
og efnahagsmál
„Þetta þing
leggst afskap-
lega vel í mig,“
segir Lúðvík
Bergvinsson,
formaður
þingflokks Sam-
fylkingarinnar.
„Það er klárt að
þessi ríkis-
stjórn ætlar
ekki að vera í kyrrstöðu heldur
koma hlutunum á hreyfingu.“
Hann segist telja að fjárlögin
muni taka drjúgan hluta af
haustþinginu, auk þess sem
orkumál og efnahagsmál muni
setja sterkan svip á þingið. „Það
er það sem ég tel að muni standa
upp úr.“
Engin kyrrstaða
„Mér vitandi
hefur ekki verið
boðuð nein stór
umræða af hálfu
andstöðunnar
um einhver
afgerandi mál,
en efnahagsmál
og ríkisfjármál
eru alltaf vinsæl umræðuefni,“
segir Arnbjörg Sveinsdóttir,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins. „Svo þarf að ræða
frumvörp í sambandi við mótvæg-
isaðgerðirnar vegna skerðingu
þorskkvótans.“
Hún segir það munu hafa sitt að
segja hversu mikill meirihluti
ríkisstjórnarinnar er. „Málin ættu
að ganga tiltölulega betur fyrir
sig en áður.“
Engin afgerandi
mál á dagskrá
„Það er augljóst
að efnahags- og
atvinnumál
verða ofarlega
á baugi á
haustþinginu og
sömuleiðis allt
sem snýr að
orkugeiranum,
bæði í efna-
hagslegu tilliti
og hvað umhverfið snertir,“ segir
Ögmundur Jónasson, þingflokks-
formaður Vinstri grænna.
Hann segir að þótt róðurinn
verði þungur fyrir stjórnarand-
stöðuna muni margir leggjast á
árarnar. „Ég held að fólk muni
ekki auðveldlega fyrirgefa
þessum stóra meirihluta ef hann
svíkur þau loforð sem hann var
kosinn fyrir.“
Orkugeirinn í
umræðunni
„Ég á ekki von á að
þetta verði tíðindamikið þing,“
segir Einar Mar Þórðarson stjórn-
málafræðingur. Hann segir að
sterk staða stjórnarinnar muni
einkenna störf þingsins að þessu
sinni en ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar hefur 43
þingsæti af 63. „Ég er hræddur
um að það verði lítið um átök. For-
menn beggja stjórnarflokkanna
hafa lýst því yfir að samstarfið
gangi vel og stjórnarandstaðan er
ekki einungis lítil heldur er mikill
skoðanamunur innan hennar. Það
hefur andað frekar köldu milli
Framsóknarflokks og Vinstri
grænna og ýmislegt virðist einnig
ganga á innan Frjálslynda flokks-
ins,“ segir Einar.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, setur Alþingi í dag.
Annað kvöld flytur Geir H. Haarde
forsætisráðherra stefnuræðu sína
og á fimmtudag mælir fjár-
málaráðherra fyrir frumvarpi til
fjárlaga. Búast má við að fjárlag-
aumræðan verði fyrirferðarmikil
á haustmánuðum og Einar á ekki
von á neinum stórtíðindum úr
Alþingishúsinu.
„Menn verða uppteknir af fjár-
lögunum fram að jólum. Þar
munu mótvægisaðgerðirnar líta
dagsins ljós sem og aðrar aðgerð-
ir sem stjórnin er búin að boða, til
dæmis í heilbrigðis- og fjöl-
skyldumálum. Ríkisstjórnin þarf
að halda vel á spöðunum og að
mörgu leyti eru erfiðir tímar
fram undan, sérstaklega í sjávar-
útvegi. Ákveðin byggðarlög
standa frammi fyrir erfiðleikum
og það getur orðið þungur róður
fyrir nýja ríkisstjórn,“ segir
Einar.
Einar segir sterka stöðu stjórn-
arinnar gefa þingmönnum flokka
meira frelsi til þess að hafa eigin
skoðanir. „Það verður ekki eins
mikill flokksagi og við þekkjum
frá fyrri ríkisstjórn. Staða
Samfylkingarinnar er sterk og
hún ætlar að leyfa sér að vera ekki
sammála Sjálfstæðisflokknum í
öllum málum,“ segir Einar.
Nokkrar breytingar verða á
setningarathöfn Alþingis að þessu
sinni. Strengjakvartett mun flytja
tónverk í sal Alþingis og íslenska
fánanum hefur verið komið fyrir í
þingsalnum í fyrsta sinn. Eftir
athöfnina verður gestum boðið í
hanastél í mötuneyti Alþingis og
þar verða makar þingmanna
einnig boðnir velkomnir sem er
nýmæli.
Engra stórtíðinda að
vænta úr þinghúsinu
Alþingi verður sett í dag. Einar Mar Þórðarson stjórmálafræðingur býst við að
þingið verði tíðindalítið og ríkisstjórnin farsæl. Hann segir anda köldu á milli
Framsóknar og Vinstri grænna. Erfiðir tímar fram undan í sjávarútvegi.
Tíu friðargæsluliðar
Afríkusambandsins (AU) voru
myrtir og tíu særðir þegar að tvö-
þúsund uppreisnarmenn úr Frelsis-
her Súdan réðust inn í stöð þeirra
í Darfur-héraði í Súdan aðfaranótt
sunnudags. Um 130 friðargæslu-
liðar voru í stöðinni.
„Þetta er mesta mannfall og
stærsta árás sem gerð hefur verið
á lið Afríkusambandsins,“ sagði
talsmaður AU, Noureddine Mezni.
„Hermenn okkar háðu varnar-
baráttu til að verja stöðina en
þrjátíu ökutæki réðust síðan inn.
...Stöðin er gjöreyðilögð.“
Meira en 50 friðargæsluliða og
starfsfólks er saknað eftir árás-
ina. Í gær voru þeir sem eftir voru
í stöðinni fluttir á brott og síðar
um daginn sáust stjórnarhermenn
fara ránshendi um svæðið.
Til ítrekaðra átaka hefur komið
milli uppreisnarmanna og stjórn-
arhersins frá því að tilkynnt var
um friðarviðræður sem fyrirhug-
aðar eru í október til að reyna að
binda enda á átökin sem hafa
varað í fjögur ár þar sem báðar
hliðar reyna að styrkja sína stöðu
fyrir viðræðurnar.
Uppreisnarmenn, sem hafa gagn-
rýnt friðargæslulið AU fyrir að vera
hliðhollt stjórnarhernum, hafa stað-
ið fyrir nokkrum árásum á friðar-
gæsluliðið undanfarið ár.
Ég er
hrædd-
ur um að það
verði lítið um
átök.