Fréttablaðið - 01.10.2007, Side 10
BÓNUS BÝÐUR BETUR
40%
750 kr/ kg. 40% afsláttur 450 kr/kg.
forkrydduð
Holta
kjúklingalæri
með legg
tilbúin beint í ofninn!
450 kr/kg
490
Auglýsingasími
– Mest lesið
Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi 26 þingmenn og
Samfylking 20 ef gengið yrði til
kosninga nú, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins. 40,2
prósent sögðust myndu kjósa
Sjálfstæðisflokkinn. Skekkjumörk
eru 4,4 prósentustig. Flokkurinn
hlaut 36,6 prósent atkvæða í þing-
kosningunum í vor og 25 þingmenn
kjörna. Helsta breytingin frá
síðustu könnun blaðsins, sem gerð
var daginn eftir kosningar, er
aðeins aukinn stuðningur íbúa á
landsbyggðinni við flokkinn.
29,8 prósent segjast nú myndu
kjósa Samfylkinguna. Skekkjumörk
eru 4,1 prósentustig. Flokkurinn
hlaut átján þingmenn í kosningunum
og 26,8 prósent atkvæða. Konum
sem kjósa flokkinn hefur fjölgað
nokkuð á milli kannana.
Af stjórnarandstöðuflokkunum
bæta einungis Vinstri græn við sig
fylgi frá kosningum. Nú segjast
16,5 prósent myndu kjósa flokkinn,
sem gæti fært honum ellefu þing-
menn ef gengið yrði til kosninga
nú. Skekkjumörk eru 3,3 prósent. Í
kosningunum í vor hlaut flokkurinn
níu þingmenn kjörna og 14,3
prósent atkvæða. Sé miðað við
könnun blaðsins 15. maí eykst
fylgið á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgi hinna stjórnarandstöðu-
flokkanna tveggja dalar frá kosn-
ingum. 8,8 prósent segjast nú
myndu kjósa Framsóknarflokkinn.
Út á það gæti flokkurinn fengið sex
þingmenn kjörna. Skekkjumörk
eru 2,5 prósentustig.
Þingmenn flokksins eru nú sjö og
hlaut flokkurinn 11,7 prósent
atkvæða. Sé miðað við síðustu
könnun blaðsins hefur fylgi flokks-
ins dregist saman á landsbyggð-
inni, meðal kvenna og karla.
4,4 prósent segjast nú myndu
kjósa Frjálslynda flokkinn. Vegna
þess að flokkurinn mælist undir
fimm prósenta markinu sem nauð-
synlegt er til að fá uppbótarþingmann
er ekki reiknaður þingmaður á
flokkinn nú. Hins vegar eru vik-
mörk 1,8 prósentustig. Færi flokkur-
inn yfir fimm prósent fylgi myndi
hann fá þrjá þingmenn og taka
mann frá Framsóknarflokki, Sjálf-
stæðisflokki og Samfylkingu.
Hringt var í 800 manns á kosn-
ingaaldri laugardaginn 29. sept-
ember og skiptust svarendur jafnt
eftir kyni og hlutfallslega eftir
kjördæmum. Spurt var: Hvaða lista
myndir þú kjósa ef gengið yrði til
kosninga nú? 60,0 prósent tóku
afstöðu til spurningarinnar.
Fylgistap hjá
Framsókn og
frjálslyndum
Stjórnarflokkarnir bæta við sig fylgi, samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Framsóknar-
flokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn tapa fylgi.