Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2007, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 01.10.2007, Qupperneq 14
greinar@frettabladid.is Ná ekki endar saman? Vantar þig góða aukavinnu eða viltu breyta um starfsvettvang? Pósthúsið leitar að kraftmiklu samstarfsfólki til íhlaupastarfa. Um er að ræða dreifingu á Fréttablaðinu og fylgiritum í breytilegum hverfum á höfuðborgasvæðinu milli kl. 2 og 9. Í boði eru góð laun fyrir duglegt fólk, hressandi útivera og sveigjanlegur vinnutími. Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára og hafa bíl til umráða. Allar nánari upplýsingar veitir dreifingardeild Pósthússins í síma 585 8330. Einnig er hægt að sækja um á www.posthusid.is. – ódýrari valkostur Pósthúsið ehf | Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 585 8300 | posthusid.is Pósthúsið er ungt og öflugt dreifingarfyrirtæki á sviði blaða- og vörudreifingar. Hjá Pósthúsinu starfa um sjöhundruð manns að uppbyggingu á fjölbreyttum og skemmtilegum vettvangi.H im in n o g h af / S ÍA Nixon-stjórnin í Banda-ríkjunum þótti sérlega ófyrirleitin í garð andstæðinga sinna á fyrri hluta áttunda áratugarins. Meðal þeirra sem urðu fyrir barðinu á njósnum og öðru áreiti FBI, sérsveitum stjórnarinnar, var John Lennon en eftir að slitnaði upp úr bandi hans og Pauls og hinna Bítlanna sótti hann það fast að fá að búa í New York með Yoko. Þeirri sömu Yoko sem nú er að koma til landsins að vígja friðarsúlu – og ætlar að hafa með sér Paul og Ringo til marks um löngun sína til að lifa í friði við aðra menn. Nema hvað: Í Bandaríkjunum fást birt gömul skjöl þótt óþægileg séu fyrir ráðamenn. Og þau votta að Nixon-stjórnin og sérsveit ríkislögreglustjórans J. Edgars Hoovers töldu það miklu varða að koma John Lennon úr landi og réru að því öllum árum að honum yrði neitað um dvalarleyfi í landinu. Þetta var vegna þess að hann tók á þessum árum virkan þátt í mótmælum gegn stefnu stjórnarinnar í Víetnamstríðinu sem náði þá sínu villimannlega hámarki með glórulausum loftárásum á Víetnam og Kambódíu. Þeir töldu að mótmæli Lennons stríddu gegn þeim „grunn- gildum“ sem þeir trúðu á og töldu vera grunngildi samfélagsins. En jafnvel þessir ofstækisfullu og óprúttnu menn sáu að þeir myndu þurfa að bera fram haldbetri ástæðu fyrir því að vísa honum úr landi en að hann bryti „gegn grunngildum samfélagsins“. Þessi í stað vísuðu þeir til þess að í fórum Ono-hjónanna hefði fundist lítilræði af marjúana í London nokkrum árum fyrr. Eins og skjölin votta var þetta augljóst yfirvarp, ekki síst á þessum árum þegar flestir töldu hampefni skaðlítinn gleðigjafa og áhrif þeirra á geðheilsu manna voru mjög vanmetin. Í síðustu viku flutti fréttastofa Ríkisútvarpsins okkur þær fregnir að íslenska lögreglan hefði farið fram á það við Útlendingastofnun að enskum jarðfræðingi Miriam Rose yrði meinuð landvist hér þótt hún eigi íslenskan unnusta og íslenska tengdafjölskyldu og hafi þannig þegar skotið rótum hér. Ekki mun hún uppvís að glæpastarfsemi í landinu en klifraði víst einhvern tímann upp í krana í mótmæla- aðgerðum Saving Iceland og truflaði vinnu um hríð. Ástæðan sem lögreglan gefur fyrir beiðni sinni er þessi: Miriam Rose ógnar „grunn- gildum samfélagsins“ með mótmælum sínum gegn stóriðju. Af einhverjum ástæðum virðist ríkislögreglustjóri standa í þeirri trú að helsta hlutverk lögregl- unnar hér á landi sé að standa vörð um álversframkvæmdir. Í því skyni að bæla niður ímynd- aðar óeirðir kringum þær hefur hann stóreflt óeirðalögreglu, svonefnda „sérsveit“, á kostnað annarra deilda með þeim afleiðingum að sárlega hefur skort lögreglumenn til raunveru- legra löggæslustarfa, en eins og kunnugt er felast slík störf hér á landi einkum í því að stöðva séríslenskar ölæðisaðgerðir. Skörin er farin að færast upp í bekkinn hvað þessa ál-meinloku lögreglunnar varðar þegar hún er farin að senda út tilmæli um að manneskja sem allt bendir til að geti orðið nýtur borgari skuli flæmd úr landi fyrir þær sakir að hafa barist fyrir náttúruvernd. Vissulega hefur manni á köflum fundist Saving Iceland fremur sýna veikleika andstöð- unnar við virkjanir hér á landi en styrk, og þá verr af stað farið en heima setið í aðgerðum í mál- efnum þar sem helst þyrfti að höfða til almennings og smáborgaranna alveg sérstaklega. En það er bara eins og hver önnur skoðun á aðgerðum fólks í frjálsu landi, röng eða rétt eftir atvikum. Lögreglan á hins vegar ekki að hafa skoðun á réttmæti mótmælaaðgerða. Almennt á hún ekki að skipta sér af mótmæla- aðgerðum nema greiða fyrir þeim og passa að þær fari ekki úr böndunum. Framganga lög- reglunnar við Saving Iceland hefur vitnað um einhvern hvimleiðan kylfukláða og sýnir vanþroskað lýðræðisskyn. Það fer vel á því að hugleidd séu „grunngildi samfélagsins“ þegar umsókn Miriam Rose verður tekin fyrir af Útlendinga- stofnun því hluti af þeim er rétturinn til að mótmæla, rétturinn til að hafa aðra skoðun en stjórnvöld og rétturinn til að láta óvinsæla skoðun í ljós með þeim hætti að eftir sé tekið – allt þetta sem Hirsi Ali var á dögunum að hrósa okkur fyrir. Ætli niðurstaðan verði ekki sú að Miriam Rose hafi einmitt starfað í anda þessara grunngilda. Heiðra skaltu grunngildin Leikskólanefnd Kópavogs hefur kynnt aðgerðaáætlun til að bregðast við mann- eklu á leikskólum í rekstri bæjarins. Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi minnihlutans, reynir að bregða fæti fyrir framtakið með grein í Fréttablaðinu þar sem hún fer rangt með staðreyndir, kastar ryki í augu lesenda og gerir úlfalda úr mýflugu. Það er lítið sem hundstungan ekki finnur. Fulltrúar Samfylkingarinnar studdu aðgerða- áætlunina enda er hún metnaðarfull. Hún eykur stöðugleika í starfsmannahaldi og laðar starfsfólk að leikskólum bæjarfélagsins. Aðgerðaáætlunin felur í sér aukin tækifæri starfsmanna til náms í leikskólafræðum og aukið faglegt öryggi í starfi. Stjórnendur geta sótt stjórnunarnám sem er sérsniðið að þörfum þeirra. Vinnuaðstaðan verður bætt og kjörin sömuleiðis, t.d. verða greiðslur hækkaðar vegna kostnaðar í starfi og námsstyrkja. Það vantar starfsfólk í 26 stöðugildi á leikskóla sem bærinn rekur. Guðríður gefur í skyn að við í meirihlutanum gerum of lítið úr vandanum með því að telja ekki lausar stöður á einkareknum leikskólum með. Samt veit hún að bærinn ræður aðeins í stöður á þeim skólum sem eru í rekstri Kópavogsbæjar. Nú virðist stuðningur Samfylkingar- innar fara minnkandi. Guðríður segir að það vanti að gera ráð fyrir beinhörðum peningum sem sé eina raunhæfa lausnin. Það er ekki rétt. Bæjarráð hefur samþykkt aðgerðaáætlunina, bæjar- sjóður greiðir kostnaðinn og undir- búningur að framkvæmd áætlunarinnar er í fullum gangi. Við þetta má bæta að Kópavogsbær hefur aukið framlög til leikskóla, er að úthluta tímabundnum viðbótarlaunum, svonefndum TV- einingum, í annað sinn og hefur samþykkt að fella niður 2 ára aldursmörk fyrir heimgreiðslum og framlengja þær til þess tíma að börn fá inni á leikskóla. Er þá viðeigandi að oddviti Samfylkingarinnar spyrji hvort góð rekstrarniðurstaða bæjarins sé á kostnað þjónustunnar við börnin í bænum? Er ekki stundum eðlilegt að leggja pólitíkina til hliðar og byggja upp frekar en að rífa niður? Ég held að oddviti Samfylkingarinnar ætti að spyrja sig að því. Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi. Umbætur í leikskólamálum Þ að er gott veganesti sem ríkisstjórnin fær á fyrsta starfsdegi Alþingis. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins segjast nú sjötíu prósent þjóðarinnar myndu kjósa annan hvorn ríkisstjórnarflokkinn og bæta báðir flokkarnir við sig fylgi frá síðustu kosningum. Til samanburðar var samanlagt fylgi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks yfirleitt í kringum fimmtíu prósent allt síðasta kjörtímabil. Yfirleitt gerist fátt í stjórnmálum yfir sumartímann en af nægu hefði átt að vera að taka þetta sumarið til að hafa áhrif á fylgi stjórnarflokkanna, til að mynda Grímseyjarferjudeilan, deilur innan stjórnar um evruna og Evrópusambandið og áhrif verulegrar kvótaskerðingar þetta árið. Þingmeirihluti núverandi ríkisstjórnar er 43 þingmenn af 63. Því geta ellefu stjórnarþingmenn gengið úr takti við flokksforystuna og vilja framkvæmdavaldsins án þess að hafa áhrif á vilja ríkisstjórnarinnar. Af þessu getur tvennt leitt; dregið getur úr flokksaga innan stjórnarflokkanna og minna mál verður fyrir framkvæmdavaldið að breyta frumvörpum í lög. Með tæpum meirihluta getur lítill hópur stjórnarþingmanna haldið frumvörpum í gíslingum, en sá hópur þarf nú að vera nokkuð stór. Stjórnarandstaðan hefur ekki enn sýnt þann styrk að hún verði til mikilla stórræða á komandi þingi. Ef af verður, eins og líklegt er, að stjórnarþingmenn verði frjálsari nú til að fylgja sannfær- ingu sinni en áður hefur tíðkast með litlum meirihluta, er alveg eins líklegt að helsta andstaðan komi frá ósáttum stjórnarþing- mönnum eins og stjórnarandstöðunni. Margir gætu fallið í þá gryfju að túlka slík andmæli sem veikleikamerki ríkisstjórnar- innar og óánægju þingmannanna með stjórnarsamstarfið. Slíkt ætti frekar að túlkast sem heilbrigt merki lýðræðisins. Við þessar aðstæður er komið upp tilvalið tækifæri fyrir annan ríkisstjórnarflokkinn að rifja upp orð sín um mikilvægi þess að styrkja löggjafarvaldið gegn framkvæmdarvaldinu þegar flokk- urinn var enn í stjórnarandstöðu. Sérstaklega var Jóhönnu Sig- urðardóttur, núverandi félagsmálaráðherra, annt um þetta mál, en það naut verulegs stuðnings formanna flokksins. Jóhanna lagði meðal annars fram frumvarp á þingi 2001 þar sem lagt var til að sérstakar þingnefndir gætu, að eigin frumkvæði, fjallað um og rannsakað mál eins og „framkvæmd laga, meðferð opinberra fjármuna og önnur mikilvæg mál er almenning varða,“ eins og stóð í frumvarpinu. Sjálfstæði löggjafarvaldsins birtist einna helst í starfi þing- nefndanna, þar sem í raun og sann er komist að samkomulagi um framgang mála. Með því að efla starf þingnefndanna, jafnt þeirra sem fyrir eru og ad hoc nefnda, er hægt að vinna gegn því ofurvaldi sem núverandi ríkisstjórn og þar af leiðandi framkvæmdarvald getur haft í krafti þrettán þingmanna meirihluta. Með styrkri stjórn Við þessar aðstæður er komið upp tilvalið tækifæri fyrir annan ríkisstjórnarflokkinn að rifja upp orð sín um mikilvægi þess að styrkja löggjafarvaldið gegn framkvæmdarvaldinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.