Fréttablaðið - 01.10.2007, Side 18
Chuck Mack er kannski þekktastur fyrir
hönnunina á gíraffastólnum. Hann kynnir
tvo nýja muni til leiks á sýningu Handverks
og hönnunar sem verður í Ráðhúsinu 5. til 8.
október.
Hönnuðurinn Chuck Mack fylgir fimm reglum við
vinnu sína: Vertu frumlegur, gefðu því tilgang, láttu
það virka, láttu það endast og gerðu það fallegt.
Chuck er hálfur Íslendingur og hálfur Bandaríkja-
maður en er búsettur hér á landi þó hann starfi að
hluta til í Ameríku. Þekktasta verk Chuck er líklega
gíraffastóllinn sem er kollur með langri stöng sem
nýtist til ýmissa verka, bæði sem sæti og sem lítill
stigi.
Chuck mun kynna tvo nýja hluti á sýningunni Hand-
verk og hönnun sem verður í Ráðhúsinu dagana 5. til
8. október næstkomandi. Yfir fimmtíu sýnendur
taka þátt í sýningunni, sem sló í gegn í fyrra. (Sjá
nánar á www.handverkoghonnun.is)
Hinir nýju hlutir eru sófaborð og tölvuborð.
Sófaborðið er úr svokölluðu grænu efni sem kall-
ast Richlite sem hefur hingað til verið notað í
borðplötur í eldhúsum, baðherbergjum og á
vinnustöðum, svo og í skurðarbretti fyrir eldhús.
Efnið er hlýlegt, sterkt og fæst í mörgum lita-
tónum. Sófaborðin eru þegar komin í framleiðslu
og verður hægt að panta þau á sýningunni.
Þá sýnir Chuck fartölvuborð sem
hægt er að standa við. Borðplatan er
einnig úr Richlite en hægt er að fella
borðið saman líkt og málaratrönur
sem þjóna listmálurum.
Virkni, fegurð og ending
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is
GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR …
• ENGIN MÁLNINGAVINNA
• HVORKI FÚI NÉ RYÐ
• FRÁBÆR HITA OG HLJÓÐEINANGRUN
• FALLEGT ÚTLIT
• MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR
• ÖRUGG VIND- OG VATNSÞÉTTING
Auglýsingasími
– Mest lesið