Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2007, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 01.10.2007, Qupperneq 34
Ég er ekki fyrsta manneskjan til að fetta fingur út í mannasiði Íslendinga, og vænt- anlega ekki sú síð- asta. Í ljósi reynslu síðustu vikna verð ég samt að pústa aðeins. Það eru nokkur ár síðan ég setti djammdrottningarskóna á hilluna og kom mér þægilega fyrir í sófanum. Ég hef ekki stundað næturlífið stíft síðan, þó að ég takist auðvitað af og til á hendur könnunarför í miðbæinn. Nú hef ég, í fyrsta skipti í umrædd ár, afrekað það að kíkja í bæinn þrjár helgar í röð. Kannski eru það ekki beint mannasiðir Íslendinga, almennt, sem fara í taugarnar á mér. Það eru eiginlega mannasiðir drukkinna Íslendinga, eða öllu heldur yfir- þyrmandi skortur á þeim. Á þessum þremur helgum hef ég komist í of náin kynni við mann sem fannst alveg réttlætanlegt að draga mig að sér þar sem ég stóð í blásakleysi mínu við bar ásamt vinkonum. Hann talaði þar að auki um sjálfan sig í þriðju persónu, sem flokkast reyndar varla sem skortur á mannasiðum heldur heilbrigðri skynsemi. Ég hef fengið óteljandi olnboga í rifbeinin, það hefur verið öskrað í andlitið á mér, hellt yfir mig og troðið á tánum á mér. Ítrekað. Ein umræddra vinkona fékk pinnahæl í ristina af þvílíkum krafti að einu skórnir sem hún kemst í þessa dagana, vegna mars og bólgu, eru svona bláar skóhlífar sem maður fær í sundi. Hvað er málið? Þetta er ekki spurning um að vera ofurölvi, því það eru það alls ekki allir sem hætta sér út á dansgólfin, eða dauðagildrurnar eins og ég vil kalla þau. Það er alveg hægt að samræma það að fá sér í glas og geta átt samskipti sem felast í öðru og meira en hrindingum og hártogi. Prófið það! Þið gætuð haft gaman af því. Já, og djammdrottningarskórnir. Þeir eru úr rúskinni. Það er blett- ótt, með kertavaxi, rifið, þvælt, brennt og slitið. Ég ætla að henda þeim.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.