Fréttablaðið - 01.10.2007, Page 36
Kl.14
Japönsku anime-myndirnar
The Well-ordered Restaurant
og Night on the Galactic
Railway eru sýndar í Norræna
húsinu í dag kl. 14. Aðgangur er
ókeypis.
Mikil fjölbreytni er í
tónleikahaldi Salarins í
októbermánuði og margar
glæsilegar stjörnur frá
ýmsum þjóðlöndum stíga á
sviðið á næstunni.
Vigdís Esradóttir, forstöðumaður
Salarins, segir dagskrána í október
óvenju spennandi.
„Mánuðurinn hefst á því að við
fáum hóp kínverskra listamanna
frá Wuhan sem heldur hér tvenna
tónleika 3. og 5. október. Þessi
hópur inniheldur bæði söngvara
og hljóðfæraleikara sem hafa sér-
hæft sig í varðveislu hefðbundinn-
ar kínverskrar alþýðutónlistar og
ferðast um heiminn til þess að
kynna hana. Þau koma hingað í
tengslum við kínverska menningar-
hátíð í Kópavogi og það er aldrei
að vita nema þau spreyti sig á
íslenskri tónlist á tónleikunum.“
Í vikunni þar á eftir er von á
hinum heimskunna kúbverska
gítarleikara Manuel Barrueco, en
hann heldur tónleika í salnum 10.
október. Í tengslum við komu hans
sýnir Sjónvarpið heimildarmynd í
tveimur hlutum sem fjallar um
ævi hans og störf, en Manuel Barr-
ueco er jafnan álitinn einn af bestu
gítarleikurum heims.
„Hann hélt einleikstónleika á
listahátíð í Hafnarfirði árið 1993
og kom fram með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands árið 1999 og fékk í
bæði skiptin afburðagóða dóma.
Það er því mikill fengur að því að
fá hann hingað í Salinn,“ segir Vig-
dís. Á efnisskrá Barrueco í Saln-
um má finna Sónötu eftir Bach,
Tango-Études eftir Piazzolla, auk
verka eftir Turina og Albeniz.
Pétur Grétarsson slagverksleik-
ari og Kristjana Stefánsdóttir söng-
kona kynna tónlist Richard Rodgers
á tónleikum sunnudagskvöldið 14.
október. „Þetta verða afar fræð-
andi og skemmtilegir tónleikar.
Richard Rodgers var annar af tví-
eykinu góðkunna Rodgers og
Hammerstein. Hann samdi meira
en 900 lög á ferli sínum, en eðli
málsins samkvæmt fáum við
aðeins að heyra úrval þeirra á tón-
leikunum,“ segir Vigdís.
Á meðal annarra atriða sem
verða á dagskrá í október má
nefna óperustjörnur frá Þjóðar-
óperunni í Riga sem flytja aríur
og dúetta hinn 12. október. Tanya
Anisimova, framúrskarandi og
margverðlaunaður sellisti frá
Moskvu, flytur hinn 21. október
glænýtt verk eftir sjálfa sig sem
er innblásið af íslenskri kórtónlist
og byggt á sönglaginu Lilju frá
árinu 1340. Dagskránni lýkur svo
með tónleikum ísraelska stórpían-
istans Albert Mamriev sem leikur
umritanir Franz Liszt á stefum og
þáttum úr óperum Wagners hinn
27. október.
Nánari upplýsingar um dagskrá
Salarins og miðaverð má finna á
www.salurinn.is
FRUMS
ÝND 28
. SEPT
EMBER
Miðvikudaginn 3. október kl. 20
Föstudaginn 5. október kl. 20
Í KÓPAVOGI 29. SEPTEMBER - 7. OKTÓBER 2007
Þjóðlagahljómsveit og einsöngvarar Söngleikja- og
dansstofnunar Wuhan flytja hefðbundna og nýja
kínverska tónlist og spreyta sig á íslenskri tónlist
á tvennum tónleikum í Salnum.
Konunglega danska bókhlaðan hefur
sett síðustu bindin af dagbókum
Georg Brandes á netið. Þetta tiltæki
sætir nokkrum tíðindum, en þetta
eru síðustu dagbækur hans, en
Brandes dó 1927 en var fæddur 1842
og var mikill áhrifamaður í dönsku
menntalífi og bókmenntum, skrifað-
ist á við menn á borð við Matthías
Jochumsson og Hannes Hafstein.
Dagbækurnar eru skannaðar inn
og er skriftin smá og erfið í lestri en
hægt að stækka hana. Gallinn er sá
að dóttir Brandesar hefur ritskoðað
textann og látið nema burt hluta í
dagbókunum, stundum æði langa.
Aðgengið á netinu er öllum frjálst
sem vilja gera sér mat úr textum
Brandesar. Netið er tekið að gera
söfnum fært að bjóða upp á þjón-
ustu sem þessa og verður gaman að
sjá hvaða efni í handritum íslensk
söfn gera fyrst aðgengilegt á vef.
Dagbók Brandes á netinu
Íslenska óperan leitar um þessar
mundir að söngnemendum héðan
af höfuðborgarsvæðinu og víðar
til þátttöku í næsta Óperustúdíói
Íslensku óperunnar, sem nú er
starfrækt í fimmta sinn. Eins og
áður stendur til að ráðast í flutn-
ing á fullmannaðri óperu og fá
hinir ungu listamenn tækifæri til
að takast á við stór og smá hlut-
verk á sviði og er frumsýning
áætluð um mánaðamótin mars-
apríl 2008. Daníel Bjarnason
hljómsveitarstjóri er umsjónar-
maður Óperustúdíósins.
Prufusöngur verður haldinn
mánudaginn 8. október og þriðju-
daginn 9. október næstkomandi kl.
10.30-14 í Íslensku óperunni. Til að
bóka tíma í prufusöng skal hringja
í síma 511-6400. Þátttakendur eru
beðnir að syngja aríu eftir Mozart
eða annað frá sama tímabili sem
bendir til að forráðamenn óperu-
stúdíósins hyggist leita á þær
slóðir eftir verkefni. Þeir sem
vilja kynna sér betur feril þessa
merka fyrirbæris í rekstri Óper-
unnar ættu að líta á heimasíðuna:
www.opera.is. eða snúa sér til
umsjónarmanns.
Óperustúdíó vantar raddir
Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Akureyrar
á verðlaunaverkinu Ökutímar eftir Paulu
Vogel. Meðal annars hlaut það hin virtu
Pulitzer-verðlaun þegar það var frumsýnt í
Bandaríkjunum fyrir sjö árum. Hópur lista-
manna var við vinnu í síðustu viku á verkinu
í Reykjavík en flytur sig nú um set norður
yfir heiðar. Meðal þeirra er tónlistarkonan
Lay Low en hún semur tónlist fyrir uppsetn-
inguna og flytur í sýningunni. Ökutímar
verða frumsýndir á Akureyri 2. nóvember.
Ökutímar er margslungið leikrit sem segir
þroskasögu ungrar stúlku, Lillu. Fjölskylda
hennar er allt annað en venjuleg. Mamma og
amma keppast við að leggja henni lífsregl-
urnar. En er Peck bara góður frændi þegar
hann býðst til að kenna henni á bíl? Höfund-
ur fjallar hér um kynferðislega misnotkun
en nálgunin er óvænt. Hér er á ferðinni
þroska- og fjölskyldusaga sem fær áhorf-
endur til að súpa hveljur en er þó drifin
áfram af heillandi húmor.
Með aðalhlutverk fara leikarinn góð-
kunni Þröstur Leó Gunnarsson og Kristín
Þóra Haraldsdóttir en hún er nýútskrif-
uð leikkona og nýkomin á fastan samn-
ing hjá LA. Þýðingu gerir Sigtryggur
Magnason en María Reyndal leikstýrir.
Leikmynd og búningar gerir Filippía
Elísdóttir en Björn Bergsteinn Guð-
mundsson lýsir. Leikarar eru, auk
Þrastar og Kristínar, Guðjón
Davíð Karlsson, Hallgrímur
Ólafsson og Þrúður Vilhjálms-
dóttir.
Ökutímar á Akureyri