Fréttablaðið - 01.10.2007, Síða 42
Powerade-bikar karla
Powerade-bikar kvenna
N1-deild kvenna í handbolta
Meistaradeild kv. í handb.
Enska úrvalsdeildin
Norska úrvalsdeildin
Ítalska A-deildin
Keflavíkurkonur eru
Powerade-meistarar í körfubolta
eftir 95-80 sigur á Íslandsmeistur-
um Hauka í úrslitaleik í gær.
Bandaríski bakvörðurinn í Kefla-
víkurliðinu, Kesha Watson, skoraði
36 stig í leiknum og bætti stiga-
metið í úrslitaleik keppninnar.
Haukaliðið var komið 14 stigum
yfir, 34-20, eftir fyrsta leikhluta
en tveir sprettir Keflavíkurliðsins
þar sem þær skoruðu annars
vegar 12 stig í röð og hinsvegar 11
stig í röð komu þeim yfir 44-48
fyrir hálfleik. Haukaliðið lék síðan
án Bandaríkjamannsins síns allan
seinni hálfleik eftir að Kiera
Hardy var borin út af eftir 18
sekúndur í seinni hálfleik. Kefla-
víkurliðið gekk á lagið og vann
öruggan sigur.
„Þetta var fyrsti titillinn af
mörgum sem eru í boði og kær-
komið að byrja þetta svona og við
ætlum okkur auðvitað að keppa
um þessa titla. Við erum búin að
vinna fyrsta bikarinn og það
hlýtur að vera ákveðin yfirlýsing
um áætlanir okkar í vetur,“ sagði
Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari
Keflavíkur.
„Við byrjuðum betur, en stelp-
urnar í Keflavík komu grimmar
inn í annan leikhluta og við lentum
í smá vandræðum með pressuna
hjá þeim og náðum ekki fara eftir
því sem upp var lagt gegn henni. Í
upphafi seinni hálfleiks urðum við
náttúrlega fyrir áfalli þegar við
misstum Kieru Hardy út af, sem
er okkar aðalleikstjórnandi,
þannig að við lentum í miklu basli
eftir það,“ sagði Yngvi Gunnlaugs-
son, þjálfari Hauka. „Við þurfum
að fínpússa okkar leik og Kiera
Hardy á eftir að koma betur inn í
þetta hjá okkur en ég tel að við
eigum alveg að geta verið með í
baráttunni um titilinn í vetur,”
bætti Yngvi við.
Pálína Gunnlaugsdóttir vann
Powerade-bikarinn þriðja árið í
röð en hún var í Haukum áður en
hún fór í Keflavík í sumar.
„Ég er bara mjög sátt með mig
hjá Keflavík. Mótið er að fara af
stað og við vinnum bara í okkar
málum og ég hef fulla trú á því
þetta komi smátt og smátt hjá
okkur,“ sagði Pálína, sem átti fínan
leik, skoraði 10 stig og gaf 6 stoð-
sendingar.
Kesha bætti stigametið í Keflavíkursigri
Lið Þjóðverja varði í gær
heimsmeistaratitil sinn í fótbolta
kvenna þegar liðið vann Brasilíu í
úrslitaleik í Shanghai, 2-0, með
mörkum frá Birgit Prinz og
Simone Laudehr.
Þetta var jafnframt í fyrsta
sinn sem að ríkjandi heimsmeist-
arar náðu að verja titil sinn í
kvennaboltanum. Marta frá
Brasilíu varð markadrottning
mótsins en hún skoraði 7 mörk í 6
leikjum.
Lið Bandaríkjamanna tók
bronsið með því að leggja norska
liðið auðveldlega að velli 4-1. -
Lið Þjóðverja
varði titilinn
Hinn breski Lewis
Hamilton hjá McLaren, er
kominn með 12 stiga forystu í
stigakeppni ökuþóra eftir sigur
sinn í japanska Grand Prix
kappakstrinum í gær.
„Ég kemst auðvitað ekki hjá því
að hugsa um stöðuna sem ég er í,
en ég verð samt bara að einbeita
mér að næsta kappakstri og sjá til
þess að undirbúningur minn sé
réttur fyrir hann,“ sagði Hamil-
ton, sem getur orðið fyrsti
nýliðinn til þess að verða
heimsmeistari í Formúlu 1. -
Með titilinn
innan seilingar
Snæfell er Powerade-
bikarmeistari karla í annað sinn á
þremur árum eftir 72-65 sigur á
Íslandsmeisturum KR í miklum
baráttuleik í Höllinni í kvöld.
Bæði lið spiluðu grimma og
harða vörn og sóknarleikurinn
gekk lítið sem ekkert. Snæfell var
með frumkvæðið nánast allan
tímann, komst í 8-2, 20-9 en KR
skoraði 11 stig í röð í lok þriðja og
byrjun fjórða leikhluta og komst
yfir í leiknum. Hinn 18 ára gamli
Atli Rafn Hreinsson skoraði þá átta
stig Snæfells í röð og hélt sínum
mönnum inn í leiknum áður en
þriggja stiga körfur frá Jóni Ólafi
Jónssyni og Sigurði Þorvaldssyni
komu Snæfelli í 53-57.
Lokamínúturnar voru jafnar og
spennandi en úrslitin réðust þegar
47 sekúndur voru eftir af leiknum.
Fannar Ólafsson fékk þá sig sína
fimmtu villu og síðan tæknivillu
fyrir mótmæli. Snæfell fékk fjög-
ur víti og boltann, náði sex stiga
sókn og komst um leið átta stigum
yfir, 61-69. Eftir það var aðeins
formsatriði að klára leikinn.
Benedikt Guðmundsson, þjálf-
ari KR var ekki ánægður með sína
menn sem náðu sér ekki á strik
fyrir utan Helga Má Magnússon
sem var algjör yfirburðamaður í
liðinu með 23 stig á þeim 25 mínút-
um sem hann spilaði.
„Mér fannst þetta alveg ömur-
legur leikur og ég trúi varla hversu
illa við spiluðum. Við náðum okkur
fannst mér aldrei á strik en
auðvitað má segja að við hefðum
verið inn í leiknum alveg fram að
því að við fengum á okkur tæknivíti
í lokin. Það má segja Snæfells
liðinu til hróss að þeir vildu þennan
sigur bara meira en við,” sagði
Benedikt Guðmundsson, þjálfari
KR. KR liðið var að prófa nýjan
leikstjórnanda í leiknum og Bene-
dikt viðurkenndi að þeir væru í
erfiðleikum með að fylla þá stöðu.
„Liðið mun ekki virka rétt fyrr
en við finnum leikstjórnanda sem
hentar okkur og eins og staðan er
núna þá er þetta óráðið og því
vantar allan heildarbrag á sóknar-
leik okkar,” sagði Benedikt.
Jón Ólafur Jónsson kom sterkur
inn af bekknum hjá Snæfelli og
setti niður 23 stig á 27 mínútum.
„Þetta var kannski ekki fallegur
leikur en það er alltaf gaman að
vinna svona leiki. Það má kannski
segja að við hefðum átt harma að
hefna gegn þeim og það var sætt
að vinna þá, en það virðist vera
sem að leikirnir á móti KR fari
alltaf í einhverja stimpingar þar
sem varnarleikurinn er í
fyrirrúmi,” sagði Jón Ólafur sem
var ánægður með stuðningin sem
liðið fékk í leiknum.
„Þetta var magnað og virðist
alltaf vera svona þegar við komum
í bæinn að við erum með fleiri
stuðningsmenn en heimaliðið.
Stemmningin í kringum liðið er
frábær og við stefnum að því að
vinna allt sem er í boði, það er
ekkert flóknara en það,” sagði Jón
Ólafur sigurreifur í leikslok.
Jón Ólafur átti mjög góðan leik
fyrir Snæfell og var besti maður
liðsins. Fyrirliðinn Hlynur Bær-
ingsson var mjög traustur með 15
stig og 13 fráköst og þótt að Justin
Shouse hafi oft spilað miklu betur
sóknarlega þá var hann góður í
vörninni og stjórnaði sókknar-
leiknum vel hjá liðinu í
lokaleikhlutanum.
Snæfell vann Powerade-bikarinn eftir 72-65 sigur á KR í Höllinni í gær. Þetta
var fjórði úrslitaleikurinn í röð sem Vesturbæingar tapa í þessari keppni.
Fimm lið eiga möguleika á að vinna titilinn