Fréttablaðið - 01.10.2007, Page 46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég er bara með útvarpið í
gangi. Ef strákarnir kveikja á
því er það FM 95,7, en ef ég næ
að kveikja á því er það Gull-
bylgjan. Ég hef gaman af gull-
inu, það eru lög frá því maður
var yngri.“
Nú er komið í ljós að það verða þeir
Björn Jörundur Friðbjörnsson og
Vilhelm Anton Jónsson sem munu
sitja í dómnefnd í þáttunum Bandið
hans Bubba ásamt kónginum sjálf-
um. Þættirnir hefja göngu sína á
Stöð 2 í febrúar.
„Bubbi er aðalmaðurinn í dóm-
nefndinni. Við getum orðað
það sem svo að hann sé yfir-
dómari,“ segir Þór Freysson
hjá Saga Film sem sér um
framleiðslu þáttanna. „Ástæð-
an fyrir því að við vildum
fá þessa tvo í starfið er sú að þarna
eru á ferðinni tveir vanir sjónvarps-
menn sem báðir eru öflugir músí-
kantar. Þeir hafa auk þess mikla
reynslu og gríðarlegt vit á viðfangs-
efninu. Ekki skemmir fyrir að þeir
eru báðir mjög skemmtilegir og
sjónvarpsvænir.“
Þór segir að
þegar hafi fjöl-
margir skráð sig
til þátttöku í þátt-
unum en
áheyrnar-
prufur
verða víðs vegar um landið í október
og nóvember. „Svo ætlar Bubbi
hreinlega að fara og heilsa upp á fólk
sem honum hefur verið bent á. Ein-
hverjir geta þess vegna átt von á að
fá hann í heimsókn og verða rukkað-
ir um að syngja eða spila.“ Þór segir
þáttinn verða ólíkan Idol-þáttunum
og X-Factor að því leytinu til að
íslenskan verði í aðalhlutverki. „Við
erum alls ekki að leita að arftaka
Bubba Morthens. Bara einfaldlega
nýjum talent í íslensku tónlistarlífi
líkt og við höfum verið að gera áður.“
Björn Jörundur og Villi dæma með Bubba
„Við höfum verið að skoða línubáta en þeir
gætu verið of litlir fyrir heila kvikmynd og
við erum því að athuga hvort það væri hent-
ugra að notast við frystitogara,“ segir kvik-
myndaleikstjórinn Árni Ólafur Ásgeirsson
en hann mun færa leikrit Jóns Atla Jónas-
sonar, Brim, upp á hvíta tjaldið í samstarfi
við Vesturport. Kvikmyndafyrirtækið
ZikZak mun síðan sjá um framleiðslu mynd-
arinnar.
Brim gerist að mestu leyti um borð í línu-
bát og eru aðstandendur hennar stórhuga,
ekki verður byggð nein leikmynd á landi
heldur farið á sjóinn með tökulið og leikara.
Þetta verklag hefur ekki þótt líklegt til
afreka í kvikmyndaheiminum en leikstjór-
inn er hvergi banginn, sjóveikitöflur geti til
að mynda gert kraftaverk.
Árni er þegar farinn að búa sig undir tök-
urnar, fór meðal annars í fjögurra daga túr
með línubátnum Örvari sem gerður er út frá
Rifi á Snæfellsnesi. „Ég fékk aðeins að prufa
að gera að fisknum en þá stöðvaðist öll
vinnslan um borð og mér var fljótlega ýtt til
hliðar,“ segir Árni og hlær en bætir því við
að þetta hafi verið mögnuð lífsreynsla. Hann
bjóst jafnframt við því að leikhópurinn færi
í slíkar ferðir til að kynna sér aðeins betur
lífið um borð fyrir myndina. Árni vonaðist
til þess að tökur hæfust í byrjun næsta árs.
„Alls ekki seinna en í mars enda viljum við
rigningu og rok, svolitla brælu.“
Brim um borð í frystitogara
Friðrik Weisshappel er ekki eini
Íslendingurinn sem fær að njóta
sín í vinsældakosningu Alt om
Köbenhavn. Dóra Takefusa og
Dóra Dúna Sighvatsdóttir eru
einnig tilnefndar, sem helstu
menningarfrumkvöðlar í
bænum.
Fréttablaðið greindi frá því á
dögunum að dögurðurinn, eða
„brunchinn“, á kaffihúsum Frið-
riks og félaga hans væri tilnefnd-
ur í Byens bedste-vinsældakosn-
ingu vefsins Alt om Köbenhavn.
Dóra Takefusa og Dóra Dúna Sig-
hvatsdóttir hafa hins vegar líka
hlotið tilnefningu í kosningunni,
en þær opnuðu barinn Jolene á
Norðurbrú í Kaupmannahöfn í
byrjun ágúst.
„Við erum tilnefndar sem
„kulturelle iverksætter“,“
útskýrði Dóra Takefusa, en hug-
takið myndi útleggjast sem
menningarfrumkvöðull á
íslensku. „Okkur finnst þetta
frekar fyndið. Staðurinn er ekki
tilnefndur, heldur við fyrir stað-
inn. Mér finnst það líka svolítið
spaugilegt að vera tilnefnd fyrir
það kúltíveraða framtak að opna
bar,“ sagði Dóra og hló við.
Í sama flokki hefur dómnefnd
tilnefnt framkvæmdastjóra
menningarhússins Grand Teatret,
menningar- og samkomusalinn
Docken og Alþjóðlegt leikfélag
Kaupmannahafnar, svo eitthvað
sé nefnt.
Dóra telur að staðsetning bars-
ins hafi skipt máli. „Minn skiln-
ingur er sá að þetta þyki merki-
legt af því að við erum að koma
með barinn inn í þetta hverfi,
Norðurbrú, þar sem er í rauninni
ekkert mikið um að vera,“ sagði
Dóra. Dómnefndin virðist vera á
sama máli, því á heimasíðu kosn-
ingarinnar er tekið fram að með
opnun Jolene hafi Dóra Takefusa
og Dóra Dúna „auðgað hverfi sem
hefur liðinn dálítinn skort“.
Jolene hefur fengið töluverða
athygli og þykir staðurinn
skemmtilega innréttaður. „Það
eru nokkur blöð búin að fá að taka
tískuþætti hérna inni og MTV var
að taka upp viðtöl hjá okkur um
daginn,“ sagði Dóra, en hún og
nafna hennar eiga veg og vanda
af hönnun staðarins. „Svo feng-
um við íslenska stelpu og kærast-
ann hennar til að gera svona
graffítímyndverk, og unga
danska listakonu til að hanna DJ-
búrið okkar,“ benti Dóra á.
Kosningin er þegar hafin og
stendur yfir til 23. nóvember.
Úrslit verða tilkynnt á fullveldis-
daginn, 1. desember. Hægt er að
kjósa á vefnum byensbedste.aok.
dk.