Fréttablaðið - 05.11.2007, Qupperneq 8
Samtök fjármálafyrirtækja efna til fræðslufundar um vaxtamun á
Grand Hótel (Hvammi) kl.12.00 -13.15 mánudaginn 5. nóvember
Hvað er vaxtamunur?
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ávarpar fundinn
Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
Samkeppni, bankar og hagkvæmni
Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur og frkvstj. verðbréfasviðs Landsbankans
Rétt og rangt um vaxtamun
DA
GS
KR
Á
Fundurinn er öllum opinn, enginn aðgangseyrir.
Léttar veitingar í boði.
Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda
póst á netfangið sff@sff.is
Pallborðsumræður:
Þorvaldur Gylfason, Yngvi Örn Kristinsson og Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri
upplýsingasviðs Seðlabanka Íslands
Fundarstjóri er Haraldur Johannessen ritstjóri Viðskiptablaðsins
Fita og önnur óhreinindi hverfa
skotvirkar á erfiða bletti eins og fitu, blek, vaxliti,
varalit, vín, matarleifar og fleira. Efninu er úðað
beint úr brúsanum á blettinn og síðan þurrkað.
Þarf ekki að skola. Skilur ekki eftir leifar.
Burt með uppsafnaðan kísil
Frábært til að fjarlægja erfiða bletti, uppsöfnuð
óhreinindi, fitu, gúmmíför, kísil og sápuskánir.
Notist á postulín, keramik, ryðfrítt stál o.fl.
Auðvelt að skola og skilur ekki eftir himnu.
Burt með blettina!
Náðu burt blettum og öðrum óhreinindum úr
sófum og teppum með Contempo teppa- og
blettahreinsi.
Helluborðið eins og nýtt
Helluborðið verður eins og nýtt með Sterling
keramikhelluhreinsi.
Skítur á veggjum ekki vandamál
Hvimleið fingraför og skítur á veggjum eru ekki
lengur vandamál með SD-20 hreinsiefninu.
Svigrúm til uppbygging-
ar álvera hér á landi er minna en
ýmsir halda. Gangi öll áform um
uppbyggingu upp mun fram-
leiðslugeta
Íslands á raf-
orku verða full-
nýtt. Svigrúm
til aukinnar
álframleiðslu
hér á landi tak-
markast auk
þess af heimild-
um til losunar
gróðurhúsaloft-
tegunda.
Þetta kom fram í ræðu Össurar
Skarphéðinssonar iðnaðarráð-
herra á flokksráðsfundi Samfylk-
ingarinnar í gær. Vegna forfalla
Össurar flutti Einar Karl Haralds-
son, aðstoðarmaður Össurar, ræðu
ráðherrans í hans stað.
Í ræðu Össurar er farið yfir
áherslur hans í orkumálum, en nú
er unnið að gerð frumvarps að
orkulögum í iðnaðarráðuneytinu.
Einar Karl segir að stefnt sé á að
leggja frumvarpið fram á Alþingi
sem fyrst, svo líklegt má telja að
það líti dagsins ljós fyrir jólafrí
Alþingis.
Í ræðu Össurar segir að svo
virðist sem pólitísk samstaða hafi
myndast um nokkur atriði tengd
orkumálum. Líklegt er að á hana
reyni þegar fjallað verður um
frumvarp um orkumál á Alþingi.
Sem dæmi nefnis Össur að sátt
virðist vera um lögbundinn
aðskilnað á samkeppnisrekstri og
sérleyfisþáttum svo sem dreif-
ingu rafmagns og vatns. Einnig
um að orkuauðlindir verði í félags-
legri meirihlutaeign, og mögulegt
verði að leigja þær tímabundið til
einkaaðila.
„Eins og málum er nú háttað
hafa stjórnvöld engin bein stjórn-
tæki til þess að stýra uppbygg-
ingu stóriðju á landinu – eða hafa
áhrif á staðsetningu hennar eða
tímasetningar byggingaráfanga.
Þannig gæti bygging álvers í
Helguvík hafist á fyrri hluta
næsta árs án þess að ríkisvaldið
hafi haft nokkuð með framvindu
þess máls að gera,“ segir í ræðu
Össurar.
Þar segir að nú virðist fleiri
berja á dyr en rúmist í veislusaln-
um; orkulindir landsmanna séu
takmarkaðar. Ekki sé æskilegt að
nýta þær allar til málmfram-
leiðslu, enda efnahagsleg áhætta
fólgin í einsleitum atvinnuvegum,
eins og dæmin úr sjávarútvegi
sýni.
Samstaða um félags-
lega meirihlutaeign
Minna svigrúm er til uppbyggingar álvera en ýmsir halda segir iðnaðarráðherra.
Pólitísk samstaða að myndast um ákveðin atriði í væntanlegum orkulögum.
Um það bil fimm þúsund þjóðernissinnar
komu saman í miðborg Moskvu í gær til að halda
hátíðlegan nýja þjóðhátíðardaginn, sem stjórnvöld
ákváðu fyrir þremur árum að skyldi taka við af gamla
þjóðhátíðardeginum 7. nóvember, sem var haldinn í
minningu októberbyltingar bolsévika árið 1917.
Þetta er í þriðja sinn sem dagurinn er haldinn
hátíðlegur. Stjórnvöld hafa tengt hann við sögulega
atburði sem urðu árið 1612 þegar hersveitir Pólverja
og Kósakka voru hraktar á brott frá Moskvu eftir stutt
hernám þeirra.
Rússneskir þjóðernissinnar hafa hins vegar tekið
þessum degi fagnandi og setja stóran svip á hátíðar-
höldin. Þar á meðal eru áberandi nokkur samtök
öfgamanna sem telja hörundshvítt fólk æðra öðru fólki
og vilja reka alla þeldökka útlendinga úr landi.
„Rússland verður hvítt,“ sagði leiðtogi Hreyfingar,
maður sem nefnir sig Alexander Belov, en eftirnafn
hans þýðir „hvítur“ á rússnesku. „Þjóðin ofar öllu,“
sagði hann og vísaði þar til slagorðs þýskra nasista.
Vilja reka útlendinga burt