Fréttablaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 12
Hotel Føroyar ****
krónur 36.167,-
Gisting í tveggjamanna herbergi
m / morgunmat.
Verð pr. per.
Farfuglaheimilið
Kerjalon
krónur 28.520,-
Gisting í tveggjamanna herbergi
uppábúið án / morgunmat. Verð pr. per.
Hotel Tórshavn ***
krónur 34.270,-
Gisting í tveggjamanna herbergi
m / morgunmat.
Verð pr. per.
sími: 482 2426 . davidsam@eyjar.is . www.faereyjaferdir.is
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
Tilboðið gildir frá 26. okt. 2007 – 31. mar. 2008.
Verð með sköttum.
frá krónum 28.520,- Flug og gisting frá föstudegi til mánudags
Helgartilboð
til Færeyja í vetur
K
R
E
A
Pervez Musharraf,
forseti Pakistans, fullyrti í gær að
þingkosningar yrðu haldnar um
miðjan febrúar, eða aðeins mánuði
síðar en áætlað var. Benazir Bhutto,
leiðtogi stærsta stjórnarandstöðu-
flokksins, segir að Musharraf verði
að segja af sér sem yfirmaður
hersins ekki síðar en í næstu viku.
Bandaríkin hafa beitt Musharraf
þrýstingi um að aflétta neyðar-
ástandi, fresta ekki kosningum og
segja af sér sem yfirmaður hers-
ins. Meðal annars hringdi George
W. Bush Bandaríkjaforseti í
Musharraf í gær, og lýsti síðar um
daginn yfir ánægju sinni með að
tímasetning væri komin á kosning-
arnar.
Musharraf, sem klæddist
borgaralegum fötum í staðinn fyrir
herforingjabúninginn sem hann er
vanur að bera, ítrekaði í gær fyrri
loforð sín um að hann myndi segja
af sér sem yfirmaður hersins um
leið og hæstiréttur landsins hefði
staðfest að hann væri réttkjörinn
forseti landsins í eitt kjörtímabil
enn.
Bhutto, sem er fyrrverandi for-
sætisráðherra, gaf þó lítið fyrir
þessar yfirlýsingar. Hún krefst
þess einnig að hundruð lögmanna,
dómara og annarra sem mótmælt
hafa Musharraf, verði látnir
lausir.
Musharraf nam á laugardaginn
stjórnarskrá landsins úr gildi og
rak jafnframt flesta dómara í
hæstarétti landsins. Lögfræðingar
og dómarar víða um land brugðust
ókvæða við og hafa efnt til mót-
mæla gegn stjórninni við ýmis
tækifæri.
Enn á ný kom til átaka í gær milli
lögreglu og lögfræðinga, sem hafa
verið í fararbroddi andófsins gegn
Musharraf.
Bhutto vill
afsögn strax
Musharraf lýsir því yfir að kosningar verði haldnar
í febrúar. Bhutto vill að hann segi strax af sér sem
yfirmaður hersins og haldi kosningar á réttum tíma.
Fokker 50-flugvélin sem
nauðlenti á Egilsstaðaflugvelli á
þriðjudagskvöld fór í farþegaflug
frá Reykjavík til Egilsstaða í gær.
Þetta er fyrsta flugið sem vélin
fer í síðan slysið varð.
Olíuþrýstingur í öðrum hreyfli
vélarinnar, sem flýgur fyrir
Flugfélag Íslands, gaf sig á
þriðjudaginn með þeim afleiðing-
um að nauðlenda þurfti vélinni.
Að sögn Árna Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Flugfélags
Íslands, er nú búið að skipta um
búnaðinn sem bilaði. Rannsóknar-
nefnd flugslysa rannsakar slysið,
sem flokkast undir alvarlegt
flugatvik.
Vélin komin í loftið