Fréttablaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 49
aldri og þetta fer bara eftir karakterum
hvernig fólk passar saman. En þegar
maður hugsar um að hann hafi verið
að fá bílpróf þegar ég var í vöggu þá er
aldursmunurinn auðvitað mikill. En
fólk getur verið svo þröngsýnt. Ég var
spurð að því hvort mér þætti ekki
hræðilegt að hann myndi deyja á
undan mér eins og það væri eitthvað
aldurstakmark á dauðanum.“ Líf
Friðriku hefur breyst töluvert eftir að
hún kynntist Stefáni en hún vill þó
ekki gera mikið úr því. „Ég ferðast
kannski meira en annars hef ég alltaf
verið á ferð og flugi sjálf þannig að líf
mitt breyttist ekki svo mikið. Ég held
við lifum ósköp venjulegu lífi og
leyfum okkur alls ekki allt frekar en
annað fólk. Við erum mjög heimakær
og eftir að Gunnar Helgi fæddist
höfum við ekki ferðast eins mikið og
áður. Við höfum ekki getað tekið eins
virkan þátt í samkvæmislífinu og oft
þurft að afboða okkur í skemmtileg
boð. Okkur líður best í faðmi fjölskyld-
unnar en við erum bæði mjög náin
fjölskyldum okkar. Þó heima sé best er
alltaf gaman að hitta vini sína og
annað skemmtilegt fólk.“ Áhugamálin
eru margvísleg, fyrir utan mat er fjöl-
skyldan, mannúðarmál og ljósmyndun
efst á baugi. Þegar hún er spurð að því
hvað þau geri saman nefnir hún lax-
veiði og skíðaiðkun. „Svo elda ég kræs-
ingar og hann velur vínin en hann er
mikill vínáhugamaður.“
Þessa dagana snýst líf Friðriku um
mennina í lífi hennar, Stefán og
Gunnar Helga. Hún nýtur þess að vera
húsmóðir enda kann hún alltaf best
við sig í eldhúsinu. „Ég fæ mikla útrás
í eldhúsinu, sumir fara í jóga, en ég
baka og bý til mat. Svo er ég ennþá að
koma okkur betur fyrir enda erum við
nýflutt en annars er ég alltaf að plotta
eitthvað, er alltaf að hugsa um hvað ég
ætla að gera næst,“ segir Friðrika. Hún
vill þó ekki gefa upp hvað hún sé að
plotta en viðurkennir að hana langi
alltaf til að vera með eigin matreiðslu-
þátt. „Mér finnst svo gaman að vinna í
sjónvarpi. Þar hittir maður svo mikið
að skemmtilegu fólki og þetta er ákaf-
lega lifandi starf. Draumurinn um
matreiðsluþáttinn er búinn að blunda
í mér síðan ég var barn og hver veit
nema óskin rætist einn daginn.“
martamaria@365.is
STIGINN UPP Á AÐRA HÆÐINA ER
MJÖG GLÆSILEGUR
Hann er teppalagður með svörtu
ullarteppi en handriðið er að
hluta til upprunalegt. Kjartan
Rafnsson arkítekt var þeim innan
handar en Stefán og Friðrika
höfðu mjög ákveðnar skoðanir
hvernig þau vildu hafa þetta.
MYNDIR/VALLI
FAGURKERI Friðrika er farin að hlakka mikið til
jólanna enda voru síðustu jól langt frá því að
vera hefðbundin. Borðstofuborðið er úr
Modern og stólarnir eru frá Casa. Glösin og
kransinn koma frá móður hennar, Hjördísi
Gissurardóttur, en hún er með jólamarkað í
Englum og fólki.
ÞAÐ VÆSIR EKKI UM PRINSINN Gunnar Helgi hefur
nægt leikpláss. Takið eftir arninum en hann er
klæddur með svörtum leðurflísum og setur svip sinn
á stofuna.
9. NÓVEMBER 2007 | SIRKUS | BLS. 9