Fréttablaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
Opið 10-18:15 laugardaga 11-14.
NÝR TÚNFISKUR ófrosinn • RISARÆKJUR
LÚÐA • SKÖTUSELUR • HÖRPUSKEL
„Þetta eru ekki stærilæti né er ég auðugur
maður,“ segir Ólafur Egill Egilsson, sem
afþakkaði laun fyrir þátttöku sína í Stundinni
okkar á starfsmannafundi á miðvikudaginn í
Efstaleiti að viðstöddum Páli Magnússyni
útvarpsstjóra.
Ástæðuna segir Ólafur vera einfalda:
launin séu einfaldlega ekki samboðin
þeirri vinnu sem þyrfti að leggja í
verkið þannig að það yrði sómasam-
lega gert. „Þetta eru fimmtán þús-
und krónur fyrir fimm tíma í upp-
tökuveri eftir skatt,“
segir Ólafur og bætir
við að inni í þessari
upphæð sé aug-
ljóslega ekki gert
ráð fyrir því að
leikarar undirbúi
sig þannig að
útkomin verði samboðin neytendum, sem séu
börnin í þessu tilviki. „Enginn er að neyða mig
til að leika fyrir Ríkissjónvarpið en í staðinn
fyrir að afþakka það vildi ég frekar vekja
á þessu athygli,“ segir Ólafur.
Hann segist jafnframt hafa gert
Ríkissjónvarpinu tilboð um að fá
borgaðan heilan tökudag. En
því var hafnað. Og í staðinn
fyrir að fara í eitthvert hark
hafi hann ákveðið að fara þessa
leið. Ólafur ber mikla virðingu
fyrir þeim Ívari Erni Sverrissyni
og Ísgerði Elfu sem stjórna Stund-
inni og segir það með eindæmum hvernig þau
nái að halda dampi sunnudag eftir sunnudag.
Páll Magnússon útvarpsstjóri mundi vel
eftir þessu og rámaði í að upphæðin ætti að
renna til íslenskrar dagskrárgerðar.
Hann segist á hinn boginn ekki vita til
þess að leikarar hafi verið vanhaldnir
fyrir leik sinn hjá Ríkisútvarpinu og
segir RÚV borga leikurum hæstu taxt-
ana í þessum bransa. „Og svo er verið
að ganga frá nýjum samningum við
Félag leikara sem verða væntanlega
klárir í þessari viku eða þeirri næstu,“
bætir Páll við.
Ólafur afþakkar laun fyrir vinnu í Stundinni
„Það hefur viljað brenna við að
fólk vilji afgreiða nútímatónlist
sem eitthvert pukur nokkurra
manna úti í horni.“
Víkingur Kristjánsson leikari dvelur nú í Berlín. Hann
lagði leið sína þangað í september og sagðist þá ætla
að nýta tímann til að leika sér, skrifa og skoða
borgina. Dvölin er nú farin að bera árangur, því
Víkingur hefur birt sjö kafla úr nýrri skáldsögu á
netinu. „Fyrstu vikurnar mínar hérna fóru í að sækja
hina og þessa viðburði á kostnað þess að sinna
skrifum og eigin hugðarefnum. Berlín er
dásamleg borg og endalaust hægt að finna sér
eitthvað til dundurs,“ segir Víkingur. „Síðustu
vikur hef ég svo brett upp ermar og er
kominn á fullt með hitt og þetta og alls
konar,“ bætir hann við.
Víkingur hefur haldið úti bloggi um
nokkurt skeið og síðasta vetur birti
hann framhaldsskáldsöguna
Nágranninn á netinu. „Hún hlaut
góðan hljómgrunn og viðtökurnar
voru eiginlega framar vonum.
Fyrir stuttu byrjaði ég á annarri
sögu, Síðustu dagar Eiríks Vignis, og svo virðist sem
fólk fylgist með þessu,“ segir Víkingur, sem kveðst
hrifinn af þessu formi ritstarfa. „Þetta er skemmti-
legt form að glíma við. Maður er náttúrlega ekki að
hafa neitt upp úr þessu annað en ómælda ánægju, en
ég lít líka á þetta sem aðferð við að koma mér á
framfæri og sýna hvað ég get. Það getur reynst vel
þegar fram í sækir,“ segir hann.
Leið Víkings liggur aftur heim um miðjan
desember. „Ef ekki væri fyrir börnin mín heima á
Íslandi myndi ég dvelja hér mun lengur. Stefnan er
samt að halda íslensk jól, og svo verður framtíðin
bara að skera úr um hvað verður,“ segir hann.
Skáldsögur Víkings má lesa á eirikurvignis.
blogspot.com og nagranninn-saga.blogspot.
com.
Leikari birtir skáldsögu á netinu
Einar Bárðarson bjargaði pólitísk-
um ferli Marðar Árnasonar, sem
hékk á bláþræði í kjölfar tillögu
hans um að Birta, lag Einars í Euro-
vision 2001, yrði sungið á íslensku
en ekki ensku. Þetta kemur fram í
bók hans og Arnars Eggerts Thor-
oddsen, Öll trixin í bókinni.
Einar upplýsir að það hafi verið
Össur Skarphéðinsson, þáverandi
formaður Samfylkingarinnar og
núverandi iðnaðarráðherra, sem
hafi greint honum frá alvöru máls-
ins í símtali um hánótt. Og þar kom
fram að Samfylkingin væri komin í
bobba vegna deilunnar: „Hann
biður mig lengstra orða að sýna
Merði biðlund, sjá til þess að það
verði ekki vaðið í hann, enda hafi
þetta allt saman verið klaufaskap-
ur og hann verði lagaður,“ skrifar
Einar í bókinni og bætir því að þó
að þetta hljómi kannski hálffárán-
lega nú hafi mönnum verið dauðans
alvara þá.
Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra mundi vel eftir öllu þessu
og segir að fylgi Samfylkingarinn-
ar hafi legið niður á við í skoðana-
könnunum þarna. Málið hafi meira
að segja ratað inn á fund fram-
kvæmdastjórnar flokksins enda
einhverjir á því að Samfylkingin
væri á leiðinni í hundana sökum
íslenskuástar Marðar. „Við funduð-
um í reykmettuðu bakherbergi
undir skemmtistaðnum Rex. Og
mig minnir að það hafi verið núver-
andi háskólarektor á Bifröst, Ágúst
Einarsson, sem hafi opnað umræð-
una um það,“ segir Össur. „Sam-
fylkingin var ung og skjálfandi á
þessum tíma og umræðan var held-
ur æsingarkennd á köflum,“ segir
Össur en síðan hafi tekist sættir í
málinu. Össur viðurkennir reyndar
að hafa heldur viljað halda nafninu
Birtu enda á hann dóttur sem ber
sama nafn. „Og kannski fékk
Mörður uppreisn æru þegar Angel
fékk ekki nema þrjú stig því hver
veit nema Birta hefði verið svo
framandi að hún hefði fengið eitt
jaðaratkvæði sem hefði híft það
upp í fjögur,“ segir Össur.
Einar segir að lélegt gengi Angel
hafi verið honum mikil vonbrigði
en honum tókst að nýta tímann í
eitthvað uppbyggilegt. Við hliðina á
borðinu hans í Kaupmannahöfn
sátu nefnilega Olsen-bræðurnir
sem höfðu unnið keppnina árið áður
og hann sannfærði þá um að koma
til Íslands að halda tónleika á meðan
þjóðin fékk kökk í hálsinn yfir brot-
lendingu Two Tricky. „Þetta voru
fyrstu tónleikarnir sem ég stóð að
með erlendum listamönnum og
mörkuðu upphafið að fyrirtæki
mínu, Concert.“