Fréttablaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 50
BLS. 10 | sirkus | 9. NÓVEMBER 2007 BRÚÐKAUP JÓNS ÁSGEIRS JÓHANNESSONAR OG INGIBJARGAR PÁLMADÓTTUR GJAFALISTI Hvað er hægt að gefa fólki sem á allt? Fallvötn og jarðskikar koma sterkt inn þar sem tilvonandi brúðhjón eru miklir nátturuunnendur og það geta allir á sig náttúruperlum bætt. Frum- legar og jafnvel heimatilbúnar gjafir eru vel þegnar. Sá sem getur búið til eilífa ást í poka sem ekki má loka á án efa eftir að vinna sér inn mörg prik. SKREYTINGARNAR Brúðkaupsveislan verður haldin í Hafnarhúsinu eftir að brúðhjónin hafa verið gefin saman. Eitt er víst að súkkulaðigosbrunnar og hvítar blómaskreytingar munu ekki prýða Hafnarhúsið. Líklegast verður skreyt- ingum haldið í lágmarki og hráu hús- næðinu leyft að njóta sín. BRÚÐGUMAKLIPPING JÓNS ÁSGEIRS Er ekki kominn tími til að Jón Ásgeir skilji sítt að aftan makkann eftir í for- tíðinni? Sirkus hafði samband við nokkrar hárgreiðslustofur á höfuð- borgarsvæðinu, en þar höfðu menn skiptar skoðanir á klippingu brúð- gumans tilvonandi. Hvernig myndir þú klippa Jón Ásgeir? Gosi, hárgreiðslumaður á hár- greiðslustofunni Rauðhettu og úlfin- um : „Mig grunar að Jón Ásgeir vilji halda hársíddinni sem hann er með í dag. Með það í huga sé ég hann fyrir mér með ekkert ósvipaða klipp- ingu og Bon Jovi, þar sem miðjuskipt- ingunni sem hefur einkennt hann í ára- tugi væri skipt út fyrir hliðar- greiðslu. Jón Ásgeir væri sömuleiðis flottur með hárið sleikt aftur í teygju líkt og leikarinn Steven Seagal. Ef ég hefði alger- lega frjálsar hendur í hári Jóns, væri þó snöggklippt herraklipp- ing frá 5. ára- tugnum ofan á.“ Hárgreiðslumaður- inn Stjúri á hárgreiðslustofunni Gel: „Jón Ásgeir er glæsilegur eins og hann er og ætti ekki að breyta neinu.“ BRÚÐARGREIÐSLAN Þeir sem þekkja stíl Ingibjargar vita að hár hennar verður lát- laust og hún mun líkast til hafa það slegið og flaks- andi. Hárgreiðslumaður- inn Simbi, og einn af nánustu vinum Ingi- bjargar, verður þó ekki langt undan á stóra deginum og mun ekki víla fyrir sér að hafa hendur í hári hennar eins og hann hefur gert í áratugi. Sirkus hafði samband við Simba og forvitnaðist um brúðargreiðsluna. „Það hefur ekkert verið ákveðið í þeim efnum. Við erum ekki komin svo langt í því ferli þar sem Ingibjörg hefur verið búsett erlendis upp á síðkastið og ég get því miður ekkert upplýst um málið að svo stöddu.” segir Simbi, einn af ástsælustu hárgreiðslumönnum þjóð- arinnar. Ætla má að þar sem brúðkaupsveislan er haldin í Hafnarhúsinu að borðhaldið verði standandi. Sirkus sló á þráðinn til ópersusöngvar- ans og siðapostulans Bergþórs Pálssonar og fékk góð ráð um það hvernig best er að athafna sig þegar pinnamatur og hlaðborð eru annars vegar. „Veislugestir ættu að forðast að standa yfir veisluborðinu og hrúga á servíettuna, ég mæli með að fólk fá sér einn bita í einu, það er mun snyrtilegra og kemur í veg fyrir að örtröð myndist við gnægtaborðið. Servíetturnar eru hugsaðar til að halda höndunum á okkur hreinum en ekki sem diskar. Það er mikilvægt í boðum sem þessum að fólk hafi hreinar hendur þegar næsta manni er heilsað með handabandi. Gott er að hafa í huga að halda hægri hendinni lausri af sömu ástæðu og temja sér að hafa glasið í þeirri vinstri. Mikilvægt er að gestirnir séu óhræddir við að kynna sig hver fyrir öðrum og hver veit hvaða afleiðingar sú viðkynning mun hafa í för með sér. Það sem skiptir þó öllu máli er að fólk skemmti sér vel og það ætti að vera inntak veislunnar,“ segir Bergþór að lokum. Fyrir alla þá sem vilja haga sér eins og lög gera ráð fyrir í brúðkaupinu mælum við með bókinni Vinamót eftir Bergþór, en hún kom út á dögunum. Stærsta og eflaust eitt íburðarmesta brúðkaup Íslandssögunnar er fram undan þegar þau Jón Ásgeir Jóhannes- son og Ingibjörg Pálmadóttir ganga í heilagt hjónaband 17. nóvember næstkomandi í Dómkirkjunni. Sögusagnir um væntanlegt brúðkaup fóru að kvisast út þegar dularfulla boðskortið kom í pósti en á því var ekki tekið fram að um brúðkaup væri að ræða heldur haust- fagnað. Viku seinna kom svo endanlegt boðskort þar sem boðið var formlega í brúðkaup. Skemmtanaelítan hefur iðað í skinninu síðan boðið kom enda ekki á hverjum degi sem boðskort í slíka veislu berst og mikil eftirvænting liggur í loftinu. Flestir förðunarfræðingar eru nú þegar uppbókaðir og sparikjólar og annar samkvæmisfatnaður hefur rokið út í betri verslunum borgarinnar. Fína fólkið ætlar ekki að láta hanka sig á hallærislegum klæðnaði og gerir allt til að forðast tískuslys.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.