Fréttablaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 76
Þórhallur Gunnarsson,
dagskrárstjóri Sjónvarps-
ins, hefur ráðið fjórar nýjar
þulur til starfa á stöðinni úr
hópi þeirra 103 sem sóttu
um starfið. Dagskrárkynn-
arnir verða því alls sex tals-
ins því tveir hætta störfum.
Þær Anna Rún Frímannsdóttir, Sig-
ríður Halldórsdóttir, Sigurlaug
Jónsdóttir og Matthildur Magnús-
dóttir bætast í hóp þeirra Evu Sólan
og Katrínar Brynju Hermanns-
dóttur. Guðmundur F. Benedikts-
son og Guðrún Kristín Erlingsdótt-
ir hætta. Þórhallur segir valið hafa
verið erfitt en skemmtilegt. „Þessar
fjórar voru þær hæfileikaríkustu.“
Hann segir tilviljun ráða því að
hópinn skipi eingöngu konur. „Það
voru átján strákar í hópi umsækj-
enda. Stelpurnar voru einfaldlega
betri og við völdum út frá hæfileik-
um og getu. Þetta starf mun gefa
möguleika á því að koma að annarri
dagskrárgerð og umsækjendur
voru valdir með tilliti til þess.“
Anna Rún var stödd í fríi í New
York ásamt manninum sínum þegar
Fréttablaðið náði tali af henni. „Ég
er bara nýbúin að frétta af þessu
sjálf,“ segir hún og hlær. „En ég
hlakka til að takast á við starfið. Ég
er förðunarfræðingur og hef unnið
sem sminka í Sjónvarpinu í hálft
ár.“ Anna Rún er einnig menntaður
íslensku- og fjölmiðlafræðingur
auk þess sem hún tók fréttamanna-
próf hjá Sjónvarpinu. „Mig langaði
til þess að nýta háskólamenntunina
en ætla að starfa samhliða sem
sminka. Þulustarfið opnar líka
ýmsar spennandi dyr.“
Sigríður er nemandi í félagsvís-
indadeild Háskólans á Bifröst þar
sem hún leggur stund á nám í heim-
speki, hagfræði og stjórnmála-
fræði. Hún er ekki alls ókunn störf-
um hjá Sjónvarpinu því hún starfaði
sem aðstoðarfréttamaður á Frétta-
stofu Sjónvarps um árabil. „Ég
ákvað eiginlega í gríni að sækja
um. Ég bjóst ekkert við því að kom-
ast í gegn, sérstaklega eftir að ég
frétti af því hversu margir sóttu
um. Mig langaði bara að sjá hvað ég
kæmist langt,“ segir hún og hlær.
Sigríður reiknar ekki með að verða
í vandræðum með að púsla saman
vöktum í Sjónvarpinu og háskóla-
námi úti á landi. „Þetta eru ekki
margar vaktir á mann, við erum
svo margar. Annars kemur þetta
bara allt í ljós.“
Sigurlaug hefur starfað sem flug-
freyja hjá Icelandair í þrjú ár auk
þess sem hún er í einkaþjálfara-
skóla. Hún segist ekki ætla að hætta
störfum sem flugfreyja. „Nei, ég
tími því ekki,“ segir hún og hlær.
„Þetta passar vel saman. Ég held að
Sjónvarpið sé líflegur og skemmti-
legur vinnustaður eins og flugið.
Maður kynnist skemmtilegu fólki
og fær að prófa eitthvað nýtt í leið-
inni. Ég hef ekki gert neitt þessu
líkt áður.“ Hún segir ráðninguna
hafa komið sér skemmtilega á
óvart. „Þórhallur hringdi bara áðan.
Næsta skref er að mæta upp í Sjón-
varp á þriðjudag þar sem við tekur
þjálfun í raddbeitingu, framsögn
og þess háttar.“
Matthildur er á þriðja ári í laga-
deild Háskólans í Reykjavík. „Ég
ætla í mastersnám næsta haust ef
allt gengur upp. Þulustarfið er fínt
með því. Ég er ekkert hætt í
skóla.“ Hún segist meðal annars
hafa sótt um starfið til að kynnast
fólki. „Maður er dálítið einn og út
af fyrir sig hérna í lagadeildinni.
Sjónvarpið er tilvalinn vettvangur
til þess að umgangast skemmti-
legt fólk. Þetta er spennandi fyrir-
tæki og góður staður til þess að
byrja á.“
Móðir Britney Spears kennir sjálfri
sér um vandræði dóttur sinnar.
Lynne Spears hefur viðurkennt að
draumar hennar um velgengni til
handa dóttur sinni hafi haft sorg-
legar afleiðingar. „Ég ól börnin mín
ekki upp með það að markmiði að
verða fræg í Hollywood. Þetta
sprakk bara allt í loft upp og stórir
draumar urðu að miklum höfuð-
verkjum,“ segir Lynne, en flestir
vita að Britney Spears hefur átt í
miklum vandræðum síðastliðin ár.
Hún stendur nú í forræðisdeilu við
fyrrverandi eiginmann sinn, Kevin
Federline, vegna sona þeirra
tveggja, Seans Prestons og Jaydens
James.
Britney var ung að árum þegar
hún steig fyrstu skref sín í skemmt-
anabransanum, og Jamie-Lynn, tíu
árum yngri systir hennar, virðist
stefna sömu leið í leiklistar-
heiminum. Hún hefur unnið verð-
laun fyrir frammistöðu sína sem
Zoey Brooks í þáttaröðinni Zoey 101
sem sýndir eru á Nickelodeon.
Lynne segist hafa náð sáttum við
eldri dóttur sína, eftir að upp úr
sambandi þeirra slitnaði fyrr á
árinu. Hún sér þó eftir ýmsu. „Ég
kenni sjálfri mér um allt það sem
miður hefur farið hjá Britney,“
segir Lynne, sem er með bók um
barnauppeldi í smíðum. Enn á eftir
að koma í ljós hversu margir for-
eldrar vilja leita í reynslubanka
hennar.
Álasar sjálfri sér vegna Britney