Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 86

Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 86
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Gnoðarvogi 44, s. 588 8686. Opið 10-18:15 laugardaga 11-14. NÝR TÚNFISKUR ófrosinn • RISARÆKJUR LÚÐA • SKÖTUSELUR • HÖRPUSKEL „Þetta eru ekki stærilæti né er ég auðugur maður,“ segir Ólafur Egill Egilsson, sem afþakkaði laun fyrir þátttöku sína í Stundinni okkar á starfsmannafundi á miðvikudaginn í Efstaleiti að viðstöddum Páli Magnússyni útvarpsstjóra. Ástæðuna segir Ólafur vera einfalda: launin séu einfaldlega ekki samboðin þeirri vinnu sem þyrfti að leggja í verkið þannig að það yrði sómasam- lega gert. „Þetta eru fimmtán þús- und krónur fyrir fimm tíma í upp- tökuveri eftir skatt,“ segir Ólafur og bætir við að inni í þessari upphæð sé aug- ljóslega ekki gert ráð fyrir því að leikarar undirbúi sig þannig að útkomin verði samboðin neytendum, sem séu börnin í þessu tilviki. „Enginn er að neyða mig til að leika fyrir Ríkissjónvarpið en í staðinn fyrir að afþakka það vildi ég frekar vekja á þessu athygli,“ segir Ólafur. Hann segist jafnframt hafa gert Ríkissjónvarpinu tilboð um að fá borgaðan heilan tökudag. En því var hafnað. Og í staðinn fyrir að fara í eitthvert hark hafi hann ákveðið að fara þessa leið. Ólafur ber mikla virðingu fyrir þeim Ívari Erni Sverrissyni og Ísgerði Elfu sem stjórna Stund- inni og segir það með eindæmum hvernig þau nái að halda dampi sunnudag eftir sunnudag. Páll Magnússon útvarpsstjóri mundi vel eftir þessu og rámaði í að upphæðin ætti að renna til íslenskrar dagskrárgerðar. Hann segist á hinn boginn ekki vita til þess að leikarar hafi verið vanhaldnir fyrir leik sinn hjá Ríkisútvarpinu og segir RÚV borga leikurum hæstu taxt- ana í þessum bransa. „Og svo er verið að ganga frá nýjum samningum við Félag leikara sem verða væntanlega klárir í þessari viku eða þeirri næstu,“ bætir Páll við. Ólafur afþakkar laun fyrir vinnu í Stundinni „Það hefur viljað brenna við að fólk vilji afgreiða nútímatónlist sem eitthvert pukur nokkurra manna úti í horni.“ Víkingur Kristjánsson leikari dvelur nú í Berlín. Hann lagði leið sína þangað í september og sagðist þá ætla að nýta tímann til að leika sér, skrifa og skoða borgina. Dvölin er nú farin að bera árangur, því Víkingur hefur birt sjö kafla úr nýrri skáldsögu á netinu. „Fyrstu vikurnar mínar hérna fóru í að sækja hina og þessa viðburði á kostnað þess að sinna skrifum og eigin hugðarefnum. Berlín er dásamleg borg og endalaust hægt að finna sér eitthvað til dundurs,“ segir Víkingur. „Síðustu vikur hef ég svo brett upp ermar og er kominn á fullt með hitt og þetta og alls konar,“ bætir hann við. Víkingur hefur haldið úti bloggi um nokkurt skeið og síðasta vetur birti hann framhaldsskáldsöguna Nágranninn á netinu. „Hún hlaut góðan hljómgrunn og viðtökurnar voru eiginlega framar vonum. Fyrir stuttu byrjaði ég á annarri sögu, Síðustu dagar Eiríks Vignis, og svo virðist sem fólk fylgist með þessu,“ segir Víkingur, sem kveðst hrifinn af þessu formi ritstarfa. „Þetta er skemmti- legt form að glíma við. Maður er náttúrlega ekki að hafa neitt upp úr þessu annað en ómælda ánægju, en ég lít líka á þetta sem aðferð við að koma mér á framfæri og sýna hvað ég get. Það getur reynst vel þegar fram í sækir,“ segir hann. Leið Víkings liggur aftur heim um miðjan desember. „Ef ekki væri fyrir börnin mín heima á Íslandi myndi ég dvelja hér mun lengur. Stefnan er samt að halda íslensk jól, og svo verður framtíðin bara að skera úr um hvað verður,“ segir hann. Skáldsögur Víkings má lesa á eirikurvignis. blogspot.com og nagranninn-saga.blogspot. com. Leikari birtir skáldsögu á netinu Einar Bárðarson bjargaði pólitísk- um ferli Marðar Árnasonar, sem hékk á bláþræði í kjölfar tillögu hans um að Birta, lag Einars í Euro- vision 2001, yrði sungið á íslensku en ekki ensku. Þetta kemur fram í bók hans og Arnars Eggerts Thor- oddsen, Öll trixin í bókinni. Einar upplýsir að það hafi verið Össur Skarphéðinsson, þáverandi formaður Samfylkingarinnar og núverandi iðnaðarráðherra, sem hafi greint honum frá alvöru máls- ins í símtali um hánótt. Og þar kom fram að Samfylkingin væri komin í bobba vegna deilunnar: „Hann biður mig lengstra orða að sýna Merði biðlund, sjá til þess að það verði ekki vaðið í hann, enda hafi þetta allt saman verið klaufaskap- ur og hann verði lagaður,“ skrifar Einar í bókinni og bætir því að þó að þetta hljómi kannski hálffárán- lega nú hafi mönnum verið dauðans alvara þá. Össur Skarphéðinsson iðnaðar- ráðherra mundi vel eftir öllu þessu og segir að fylgi Samfylkingarinn- ar hafi legið niður á við í skoðana- könnunum þarna. Málið hafi meira að segja ratað inn á fund fram- kvæmdastjórnar flokksins enda einhverjir á því að Samfylkingin væri á leiðinni í hundana sökum íslenskuástar Marðar. „Við funduð- um í reykmettuðu bakherbergi undir skemmtistaðnum Rex. Og mig minnir að það hafi verið núver- andi háskólarektor á Bifröst, Ágúst Einarsson, sem hafi opnað umræð- una um það,“ segir Össur. „Sam- fylkingin var ung og skjálfandi á þessum tíma og umræðan var held- ur æsingarkennd á köflum,“ segir Össur en síðan hafi tekist sættir í málinu. Össur viðurkennir reyndar að hafa heldur viljað halda nafninu Birtu enda á hann dóttur sem ber sama nafn. „Og kannski fékk Mörður uppreisn æru þegar Angel fékk ekki nema þrjú stig því hver veit nema Birta hefði verið svo framandi að hún hefði fengið eitt jaðaratkvæði sem hefði híft það upp í fjögur,“ segir Össur. Einar segir að lélegt gengi Angel hafi verið honum mikil vonbrigði en honum tókst að nýta tímann í eitthvað uppbyggilegt. Við hliðina á borðinu hans í Kaupmannahöfn sátu nefnilega Olsen-bræðurnir sem höfðu unnið keppnina árið áður og hann sannfærði þá um að koma til Íslands að halda tónleika á meðan þjóðin fékk kökk í hálsinn yfir brot- lendingu Two Tricky. „Þetta voru fyrstu tónleikarnir sem ég stóð að með erlendum listamönnum og mörkuðu upphafið að fyrirtæki mínu, Concert.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.