Fréttablaðið - 19.11.2007, Blaðsíða 47
MÁNUDAGUR 19. nóvember 2007 27
Popparanum Justin Timberlake
er greinilega mikið í mun að kon-
urnar í lífi hans geti skellt sér með
honum á brimbretti. Nýlega gaf
hann nýju kærustunni
sinni, Jessicu Biel,
sérhannað brimbretti
og ársbirgðir af brim-
brettavaxi, en það er
sama gjöf og hann
færði fyrrverandi
unnustu sinni,
Cameron
Diaz, fyrir
fjórum
árum.
Söngkonan Britney Spears þykir
ekki sú vænlegasta til að gefa upp-
eldisráð en ofurfyrirsætan Heidi
Klum segist hafa lært margt nyt-
samlegt af Britney þegar hún dúkk-
aði óboðin upp í hrekkjavökupartí
Heidiar. „Hún kenndi
mér helling um
bleyjur. Ég hafði
ekki hugmynd
um til hvers
límmiðarnir á
hliðunum voru. Til
að loka bleyjunni
að framan! Ég batt
alltaf band utan
um,“ segir þriggja
barna móð-
irin Heidi
Klum.
Leikaranum Tom Cruise hefur
verið boðið að fara með hlutverk
klámkóngsins Hugh Hefner í
kvikmyndinni Playboy. Vinur Toms
segir hann afar spenntan fyrir
að túlka litríka ævi
Hefner, sem er á
níræðisaldri en
býr með þrem-
ur kornungum
unnustum
sínum. Leikar-
inn Leonardo
DiCaprio hefur
einnig verið orðaður
við hlutverkið en
hann er víst
fastagestur á
Playboy-setri
Hefners.
Breska söngkonan Amy Wine-
house hefur nú með villtu líferni
sínu hrakið burt umboðsmann
tónleikaferðar sinnar, Thom Stone.
Kunnugir segja Stone hafa gefist
upp á fylgifiskum starfsins, að
þurfa iðulega að borga dömuna
úr fangelsi, horfa á hana neyta
eiturlyfja og lifa sífellt
í óvissu um hvort
af tónleikum verði
vegna ástands
stjörn-
unnar.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Fyrsta plata Siggu Beinteins í fjögur ár, Til eru fræ,
er væntanleg í búðir. Sigga segir að platan sé sú besta
sem hún hafi gert til þessa. „Þessi diskur er rólegur
en mjög hátíðlegur, þótt hann sé ekki jóladiskur. Ég er
að taka bæði þekkt lög og óþekkt í nýjum útsetning-
um, stórum og miklum,“ segir Sigga, sem fékk aðstoð
frá yfir eitt hundrað hljóðfæraleikurum á plötunni.
Sinfóníuhljómsveit Búlgaríu spilar undir í flestum
laganna, auk þess sem Sigríður nýtur aðstoðar kórs.
Um útsetningar sá Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
Titillagið Til eru fræ, sem Haukur Morthens söng
svo eftirminnilega á sínum tíma, er vitaskuld á
plötunni. „Það kom mér á óvart hversu það er fallegt.
Ég hafði aldrei pælt í því þegar ég fór að vinna með
það. Svo útsetti Þorvaldur það líka svo yndislega.“
Sigga syngur einnig lögin Yndislegt líf og Nella
Fantasia þar sem hún spreytir sig á ítölsku í fyrsta
sinn. „Það gekk ágætlega. Ég veit ekkert með
framburðinn og neitt slíkt, það verður bara að koma í
ljós,“ segir hún og hlær. - fb
Sigga Beinteins syngur á ítölsku
SIGGA BEINTEINS Söngkonan Sigga Beinteins hefur gefið út
sína fyrstu plötu í fjögur ár.
Keira Knightley ver ákvörðun sína um að stefna
blaðinu Daily Mail fyrir að ýja að því að hún
væri haldin lystarstoli. Blaðið birti myndir af
hinni afar grannvöxnu leikkonu í bikiníi og gaf í
skyn að líkamsvöxtur hennar hefði verið
„innblástur“ fyrir unga stúlku sem þjáðist af
lystarstoli, og lést af sjúkdómnum.
Keiru mislíkaði greinin stórlega, stefndi
blaðinu og fékk skaðabætur. Hún heldur því nú
fram að viðbrögðin hafi verið nauðsynleg. „Þetta
hefði getað eyðilagt feril minn, því ef ég hefði
þjáðst af lystarstoli hefði ég ekki getað leikið í
mörgum hasarmyndum. Fólk hefði ekki ráðið
mig,“ segir hún. „Þegar greinar sem miða að því
að eyðileggja feril minn eru birtar, eins og þessi
var, verð ég augljóslega að taka það mjög
alvarlega,“ segir leikkonan.
Nauðsynlegt að
stefna Daily Mail
EINKAR ILLKEYTT FERÐAKISTA, ÍMYNDAÐIR DREKAR, TRÖLL,
PÚKAR, ÁLFAR, GALDRAMENN, DAUÐINN SJÁLFUR OG
HAMINGJUSAMUR TÚRISTI SEM ALLIR VILJA DREPA
,,Einn fyndnasti og besti
rithöfundur Bretlands”
The Independent
,,Ég hef sjaldan hlegið eins mikið né
skemmt mér eins konunglega
yfir neinni bók”
,,Ótrúleg saga og ótrúlegt ímynd-
unarafl hjá Terry Pratchett. Hvernig
fer hann að þessu?”
Litbrigði galdranna hefur verið
gefin út á 33 tungumálum og selst í
yfir 2 milljónum eintaka.
Ef þig langar til að hlæja, lestu þá
eina skemmtilegustu bók síðari ára.