Fréttablaðið - 19.11.2007, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn 19.
nóvember, 323. dagur ársins.
10.08 13.13 16.18
10.09 12.58 15.46
Á föstudagskvöld horfðum við á þátt sem heitir „Tekinn“ á Stöð
2. Andri, 9 ára, leit upp frá sjón-
varpinu og sagði: „Þetta er eigin-
lega allt á ensku. Af hverju er
verið að sýna þetta á „degi
íslenskrar tungu“?“
REYNDAR mátti hafa illkvittnis-
lega ánægju af því að sumir þátt-
takendurnir virtust hafa alist upp
fjarri mannabyggð án móðurmáls
og voru jafnófærir um að tjá sig á
ensku og íslensku. Þarna var t.d.
verið að spauga með Jakob Frí-
mann Magnússon sem venjulega á
ekki í neinum vandræðum með að
tjá sig á gullaldaríslensku, en til
þess að komast niður á stig sjón-
varpsfólksins var Jakob farinn að
babbla á þeirri pidgin-ensku sem
var tungumál þáttarins.
ÞAÐ er sama hversu mikillar
virðingar Jónas Hallgrímsson
nýtur hjá þjóðinni, það er samt
borin von að Íslendingar fari að
leggja rækt við málfar sitt í þakk-
lætisskyni við látinn mann. Fimm-
tíu Jónasarhátíðir á ári myndu
ekki duga. Jónas lagði meira en
sinn skerf af mörkum til íslensk-
unnar meðan hann lifði. Allmarg-
ar ljóðlínur eftir hann lifa enn í
minni þjóðarinnar og hafa áhrif
enn í dag. Það er fallegt að sýna
látnum dánumanni ræktarsemi.
Að gera hann að dýrlingi tungunn-
ar; að syngja honum messur, færa
honum fórnir og vona að bænar-
hitinn dugi er hins vegar vægast
sagt kjánalegt.
VIÐ Íslendingar höfum átt marga
málsnjalla menn. Við þurfum að
kalla þá alla, lifendur og dauða á
vettvang frá Sturlu Þórðarsyni til
Össurar Skarphéðinssonar, frá
Æra-Tobba til Steinunnar Sigurð-
ardóttur, frá Halldóri Laxness til
Guðrúnar Helgadóttur. Og við
þurfum að kalla þjóðina til þátt-
töku í þessu átaki. Það er ekki nóg
að gefa börnum í Þelamerkurskóla
eintak af ævisögu Jónasar. Fram-
tíð íslenskrar tungu stendur
hvorki né fellur með honum.
Framtíð tungunnar fer eftir því
hvort okkur sem höfum áhuga á
langlífi íslenskrar tungu tekst að
vekja fólk á öllum aldri til umhugs-
unar um tungutak sitt – því að
hvað sem líður „bökkum og eggj-
um“ og „öndum sem unnast“ í
kveðskap Jónasar getur eilífð
hæglega aðskilið þjóð og tungu -
og þarf ekki eilífð til.
VAR það ekki annars Jónas sem
orti: „Bera bý / bagga skoplítinn /
hvert að húsi heim...“
Dýrlingur
tungunnar