Fréttablaðið - 13.12.2007, Page 8
8 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
ELDSVOÐI „Ég hlýt að hafa rekið
mig í takkann á eldavélinni þegar
ég fór út og þannig hefur kviknað
í,“ segir Íris Gústafsdóttir hár-
greiðslumeistari. Íbúð hennar við
Eiðistorg á Seltjarnarnesi stór-
skemmdist í bruna í gærmorgun.
Hún er nú heimilislaus ásamt
þremur börnum sínum en nokkra
mánuði getur tekið að tæma íbúð-
ina og gera hana íbúðarhæfa.
Tilkynning um eldinn barst
klukkan 9.53 í gærmorgun og var
slökkvilið komið á staðinn fjórum
mínútum síðar. Eldurinn var slökkt-
ur fljótlega en töluverðan tíma tók
að reykræsta íbúðina og fyrir-
byggja að reykurinn bærist í aðrar
íbúðir í fjölbýlishúsinu. Íbúðin er
stórskemmd eftir eldsvoðann.
„Óhöppin gera ekki boð á undan
sér, maður heldur alltaf að þetta
komi bara fyrir aðra en mann
sjálfan,“ segir Íris, sem er ánægð
með snörp viðbrögð slökkviliðsins.
„Þetta kemur líka á mjög slæmum
tíma, rétt fyrir jólahátíðina.“
Hún segist nú vera heimilislaus
þar sem pakka þurfi öllu úr íbúð-
inni, tæma hana og hreinsa.
Nokkrir mánuðir geti liðið þar til
hægt sé að flytja inn í íbúðina aftur.
„Sem betur fer á ég góða nágranna-
konu sem á lausa íbúð á sjöttu hæð
hússins sem ég bý í og er búin að
bjóða mér að vera í henni,“ segir
Íris. „Fyrst um sinn verð ég samt
hjá móðursystur minni sem er með
gistiheimili.“
Spurð um tryggingamál segist
Íris sem betur fer tryggð í bak og
fyrir. „Ég hef of oft lesið fréttir um
fólk sem lendir í einhverju svona
og þá endar hún alltaf á því að það
er ótryggt. Ég ætlaði ekki að lenda
í því og er þess vegna með allt
mjög vel tryggt.“
salvar@frettabladid.is
Rakst í takka
og kveikti í
Íbúð Írisar Gústafsdóttur hárgreiðslumeistara
skemmdist illa í eldsvoða í gærmorgun. Íris er nú
heimilislaus þar til íbúðin verður tæmd og hreinsuð.
„Maður heldur alltaf að þetta komi bara fyrir aðra.“
ÓNÝTT Eins og sjá má er allt eldhúsið ónýtt eftir brunann. Upptök eldsins voru hjá
eldavélinni í horninu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Stjórnarandstaðan mótmælti
harðlega frumvarpi ríkisstjórnarinnar
um flutning almannatrygginga undir
félagsmálaráðuneytið á þingi í gær.
Gagnrýnin felst í því að samkvæmt
frumvarpinu verður sett á fót ný
stofnun undir yfirstjórn heilbrigðisráð-
herra, sem annast þá málaflokka
almannatrygginga sem áfram heyra
undir heilbrigðisráðherra. Lög um
þessa stofnun hafa ekki verið sam-
þykkt.
„Þarna er verið að gera tilraun til
þess að setja stjórn og forstjóra í
stofnun sem á ekki að ræða á Alþingi
fyrr en í vor og á ekki að taka til starfa
fyrr en í haust,“ sagði Álfheiður
Ingadóttir, þingmaður Vinsti grænna.
„Þetta er svo illa unnið að það er ekki
boðlegt að afgreiða það að okkar mati.“
Ögmundur Jónasson, samflokksmaður
hennar, kallaði frumvarpið „óútfylltan
tékka, undirritaðan af Samfylkingunni“.
„Þetta er ljótt mál, sem mun senni-
lega kosta skattgreiðendur milljarð,“
sagði Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins. „Ég lýsi van-
trausti á Sjálfstæðisflokkinn.“
Varaformaður Framsóknarflokksins,
Valgerður Sverrisdóttir, tók í sama
streng. „Að mati okkar framsóknar-
manna hefði verið skynsamlegra að
sameina þessi ráðuneyti, heilbrigðis- og
tryggingamála,“ sagði Valgerður. - sgj
Stjórnarandstaðan segir heilbrigðisráðherra fá óútleystan tékka fyrir nýja stofnun:
Segja frumvarpið ekki vera boðlegt
Á ÞINGI Þingmenn Framsóknarflokksins, auk Vinstri grænna, sögðu
að frumvarpið væri gallað.
JAFNRÉTTI Kjarakannanir Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar
(STRV) og SFR leiða í ljós að
síðarnefnda félagið ofmetur
kynbundinn launamun í kjara-
könnun sinni.
Félögin notast við ólíkar
aðferðir við að greina ólík störf.
Hjá Reykjavíkurborg er notast
við starfsmat og fá störfin
tölugildi í stað starfsheitis. SFR
notar hins vegar Ístarf-flokkunar-
kerfi til þess að leiðrétta fyrir
áhrifum starfs á laun.
Munurinn á aðferðum félag-
anna reyndist ekki mikill. Sé
stuðst við niðurstöður Félagsvís-
indastofnunar, sem framkvæmdu
kjarakönnun STRV, er munur á
kynbundinn launamunur meðal
starfsmanna borgarinnar 14,9
prósent en séu notaðar aðferðir
Capacent fyrir SFR reynist
munurinn vera 15,8 prósent. - eb
Munur á kjarakönnunum:
Launamunur
kynja ofmetinn
1. Hver er aðal hvatamanneskj-
an fyrir stofnun Mænuskaða-
stofnunar Íslands?
2. Hver er sterklega orðaður
við landsliðsþjálfarastöðuna í
Englandi?
3. Hvaða rokksveit kom saman
á tónleikum í London eftir tæp-
lega þriggja áratuga hlé?
SVÖRIN ERU Á BLS. 70
VEISTU SVARIÐ?