Fréttablaðið - 13.12.2007, Blaðsíða 12
12 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
GIRNILEGIR VEISLUBAKKAR
MEÐ LITLUM FYRIRVARA
554 6999 | www.jumbo.is
BLANDAÐUR
BAKKI 3.580 kr.
SAMLOKU-
BAKKI 2.890 kr.
TORTILLA
& PÓLARBRAUÐ
3.480 kr. FONDU
SÚKKULAÐIBAKKI
2.950 kr.
32
BITAR
10
MANNS
36
BITAR
36
BITAR
Kryddaðu eldhúsið
með heimilistækjum
frá Siemens.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Espressó-kaffivélar,
bjóðum upp á mikið úrval.
Tilvalin jólagjöf handa
heimilisfólkinu.
Heimilistæki, stór og smá,
ljós, símar, pottar og
pönnur.
INDÓNESÍA, AP Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir umhverfisráðherra ávarp-
aði loftslagsþing Sameinuðu þjóð-
anna á Balí í Indónesíu á lokadegi
þess í gær. Hún
hvatti til sam-
stöðu og dugnað-
ar í baráttunni
gegn gróður-
húsaáhrifunum.
„Þjóðir heims-
ins eyða yfir 60
þúsund milljörð-
um á ári í varnar-
mál. Við þurfum
að leggja meira í
baráttuna gegn loftslagsbreyting-
um,“ sagði Þórunn. Markmið ráð-
stefnunnar er að undirbúa nýtt
samkomulag um loftslagsmál, sem
taki við af Kyoto-bókuninni sem
rennur út árið 2012.
„Fátækt fólk mun finna mest
fyrir loftslagsbreytingum,“ sagði
Þórunn. „Sjötíu prósent þess eru
konur. Innan við sjötti hver ræðu-
manna á þessu þingi er kona. Þátt-
taka kvenna er nauðsynleg ef við
ætlum að ná árangri.“
Bandaríkin hafa ekki staðfest
Kyoto-bókunina og eitt helsta
markmið ráðstefnunnar hefur
verið að fá fulltrúa þeirra til við-
ræðna. Á ráðstefnunni höfnuðu
þeir þeim áætlunum sem lengst
ganga.
„Við verðum að tryggja að
Bandaríkin, stærsta hagkerfi
heims, sem losar gróðurhúsaloft-
tegundir í meiri mæli en nokkurt
annað ríki, helsta tækniveldi
heims, taki þátt í næsta samkomu-
lagi sem gildir frá 2012,“ sagði
Susilo Bambang Yudhoyono, full-
trúi Indónesíu.
Bandarísk stjórnvöld segjast
hins vegar vinna markvisst að
framgangi umhverfisvænna orku-
gjafa, þó að umheimurinn hafi
veitt því litla eftirtekt. - sgj
Umhverfisráðherra ávarpaði loftslagsþingið í Balí:
Verja þarf meira fé
í umhverfismál
ÞÓRUNN SVEIN-
BJARNARDÓTTIR
SNIGLAHRAÐI Aðgerðarsinnar á Balí brugðu á leik og hvöttu Sameinuðu þjóðirnar til
að taka ekki á málunum á hraða snigilsins. NORDICPHOTOS/AFP
MENNING „Það kemur líklega í ljós
á morgun hvort ég kemst heim um
jólin,“ segir Þórarinn Ingi Jónsson
listnemi, sem kærður hefur verið
fyrir óspektir á almannafæri
vegna listaverks í sprengjulíki
sem hann skildi eftir á listasafni í
miðborg Toronto, þar sem hann
nemur vídeólist.
„Mér hefur verið ráðlagt af lög-
fræðingi að tala ekki við fjölmiðla,
þar sem allt sem ég segi virðist
vera notað gegn mér. Ég get því
ekki tjáð mig frekar um þetta
mál,“ segir Þórarinn, sem hefur
verið rekinn úr listaháskólanum.
Listakonan Steinunn Þórarins-
dóttir, móðir Þórarins, hvatti í vik-
unni félagsmenn Sambands
íslenskra myndlistarmanna til
þess að senda stuðningsyfirlýs-
ingu við Þórarin til lögfræðings
hans í Kanada. - eb
Þórarinn Ingi Jónsson, listnemi í Kanada:
Sagt að ræða ekki við fjölmiðla
SPRENGJA Þórarinn segist fá að vita
á morgun hvort hann komist heim í
jólafrí.