Fréttablaðið - 13.12.2007, Qupperneq 16
16 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
JESÚS Eitt stærsta Jesúlíkneski í Asíu
gnæfir yfir borgina Manado á norður-
hluta Sulawesi-eyju á Indónesíu.
Meirihluti íbúa Manado er kristinn en
meirihluti Indónesa er íslamstrúar.
Styttan er þrjátíu metrar á hæð.
NORDICPHOTOS/AFP
ÞÝSKALAND, AP Þýski utanríkis-
ráðherrann Frank-Walter
Steinmeier boðaði staðgengil
sendiherra
Simbabve á sinn
fund á þriðjudag
til að koma því á
framfæri að
ummæli af því
tagi sem full trúar
Simbabvestjórn-
ar hefðu látið
hafa eftir sér um
Angelu Merkel
kanslara væru „algerlega
ólíðandi“.
Í málgagni Simbabvestjórnar,
The Herald, var Merkel sögð
vera „eftirlegukind nasista“ og
upplýsingamálaráðherrann
Sikhanyiso Ndlovu sakaði hana
um „kynþáttahatur af verstu
gerð“. Tilefnið er að á evrópsk-
afríska leiðtogafundinum í
Lissabon um helgina gagnrýndi
hún meðferð Roberts Mugabe
Simbabveforseta á eigin þegnum.
- aa
Eftirmál ESB-Afríkufundar:
Þýska stjórn for-
dæmir ummæli
ANGELA MERKEL
FINNLAND Bæjaryfirvöld í Nokia í
Finnlandi hafa skrifað bréf til
ríkisstjórnarinnar og óskað eftir
fjárhagslegri aðstoð vegna
neyðarástands sem skapaðist í
bænum vegna vatnsmengunar, að
sögn finnska dagblaðsins
Helsingin Sanomat. Frárennslis-
vatn komst í drykkjarvatn
Nokiabúa og olli veikindum hjá
stórum hluta bæjarbúa.
Í bréfi sínu til Matta Vanhanen
forsætisráðherra og Jyrki
Katanen fjármálaráðherra segir
Markku Rahikkala bæjarstjóri að
tjónið sé gríðarlegt. Trygginga-
félög muni bæta það að ein-
hverju leyti en meira þurfi til.
Lífið í Nokia er nú að komast í
samt lag. - ghs
Vatnsmengun í Nokia:
Ríkið veiti fjár-
hagsaðstoð
SVEITARSTJÓRNIR Ístak hefur látið
vinna drög að nýju deiliskipulagi á
Tungumelum í Mosfellsbæ vegna
námuvinnslu sinnar þar. Eins og
kom fram í Fréttablaðinu var
vinnsla fyrirtækisins stöðvuð
þegar uppgötvaðist að starfsemin
var komin út fyrir þau mörk sem
tilgreind eru í námuleyfinu.
Skipulagsnefndin sem beðin hefur
verið um að taka afstöðu til nýrrar
afmörkunar svæðisins ákvað á
síðasta fundi að fara áður í
skoðunarferð um svæðið. - gar
Yfirvöld í Mosfellsbæ:
Fara á vettvang
á Tungumelum
TUNGUMELAR Ístak sprengdi kletta án
leyfis segir Mosfellsbær.
ALÞINGI „Nú skal kennsluborðum
kristninnar velt og hún gerð
brottræk úr helgidómi íslenskra
menntastofnana,“ sagði Guðni
Ágústsson, formaður Framsóknar-
flokksins, á Alþingi í gær. Þing-
maðurinn fór fyrir utandagskrár-
umræðu um stöðu þjóðkirkjunnar,
kristni og kristnifræðslu.
Guðni gagnrýndi að í nýju
frumvarpi um grunnskólann væri
fellt burt orðalag um kristið sið-
gæði. Hann gagnrýndi einnig
kröfur um að fermingarfræðsla
fari ekki fram á skólatíma. „Þessa
óþarfa umræðu ber að kveða
niður strax,“ sagði Guðni. „Um og
yfir 80 prósent landsmanna til-
heyra þjóðkirkjunni. Um 95 pró-
sent landsmanna tilheyra kristn-
um söfnuðum.“
Séra Karl V. Matthíasson, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði
að ekki væri skynsamlegt að
kveða niður raddir sem töluðu
gegn þjóðkirkjunni. „Það væri
ekki í kristnum anda,“ sagði Karl.
Björn Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, sagði hinn
kristna arf vera þjóðinni mikils
virði. „Slitni tengsl skóla og hins
kristna menningararfs er vá fyrir
dyrum,“ sagði Björn. „Það yrði
íslensku þjóðinni til varanlegs
tjóns ef hætt yrði að leggja rækt
við hinn kristna arf.“
Björn segist ekki hafa komið að
gerð frumvarpsins. „Málið er nú
komið til Alþingis og Alþingi
hefur aldrei brugðist hinum
kristna málstað,“ sagði Björn.
„Ég tel að menn lesi of mikla
Ráðherra segir vá fyrir dyrum
slitni tengsl skóla og kristni
Formaður Framsóknarflokksins gagnrýnir að orðalag um kristið siðgæði verði fellt úr grunnskólalögum.
Hann segir umræðuna óþarfa. Ráðherra segir vá fyrir dyrum ef tengsl skóla og kristins arfs slitni.
KRISTILEGT SIÐGÆÐI Þingmenn voru almennt sammála um mikilvægi kristninnar í þjóðfélaginu í utandagskrárumræðu á Alþingi.
Við verðum að gera
greinarmun á fræðslu og
trúboði.
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
merkingu úr að orðin kristilegt
siðgæði séu ekki í lögum um
grunnskóla.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra segir að
nefnd sem vann að endurskoðun
grunnskólalaga hafi verið meðvit-
uð um að breytingin gæti orkað
tvímælis. „Niðurstaðan varð sú að
ekki væri stætt á öðru en að leggja
til breytingu. Við erum síður en
svo að úthýsa kristninni,“ sagði
Þorgerður.
„En við verðum að gera greinar-
mun á fræðslu og trúboði. Ferm-
ingarfræðsla getur ekki orðið hluti
af skóladagatali og skyldunámi,“
bætti Þorgerður við.
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Frjálslyndra, sagði það
vera afskræmingu á trúfrelsinu að
bera að jöfnu þjóðkirkjuna og
önnur trúfélög, vegna stærðar
hennar. „Kristnin á ekki að sitja
við sama borð og önnur trúarbrögð
sem fáir aðhyllast,“ sagði Krist-
inn. steindor@frettabladid.is
GUÐNI ÁGÚSTSSON BJÖRN BJARNASON