Fréttablaðið - 13.12.2007, Qupperneq 28
28 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
74
6
98
5
1998 2007
Kí
ló
ve
rð
í
kr
ón
um
Blu-ray og HD DVD diskar verða
eflaust í pökkum margra tækni-
áhugamanna um jólin. Áður en
farið er af stað í innkaup er rétt að
fara yfir hvað þarf til þess að spila
þessa háskerpudiska, og hvers
vegna þeir eru betri en DVD.
Helsti munurinn á háskerpudisk-
um, eins og Blu-ray og HD DVD, og
venjulegum DVD-diskum er gæði
myndarinnar. Háskerpudiskarnir
rúma margfalt meira af gögnum en
DVD-diskar og geta því geymt
kvikmyndir í hærri upplausn. Allar
útlínur verða skýrari og litir dýpri.
Nauðsynlegt er að hafa háskerpusjónvarp til þess
að geta notfært sér þá kosti sem háskerpudiskarnir
hafa fram yfir DVD-diskana. Með háskerpusjón-
varpi er átt við sjónvarp, oftast
flatskjá, sem er merkt „HD-ready“
og birtir mynd í einhverri af
eftirfarandi upplausnum: 720p,
1080i eða 1080p.
Síðast en ekki síst þarf spilara
sem les háskerpudiska, en gamli
DVD-spilarinn er einskis nýtur í
það hlutverk.
Ódýrasti spilarinn fyrir Blu-ray
diska er PlayStation 3 leikjatölvan,
sem kostar rétt um fjörutíu þúsund
krónur. HD DVD spilarar kosta í
kringum fimmtíu þúsund krónur,
en þess utan er hægt að kaupa viðbót við Xbox 360
leikjatölvuna á tuttugu þúsund sem gerir henni
kleift að lesa slíka diska.
- sþs
Helsti munurinn á háskerpudiskum, eins og Blu-ray og HD DVD, og DVD-diskum:
Margfalt hærri upplausn
Þótt skortur sé á jólatrjám í
Evrópu eru innflutt jólatré
í verslunum á Íslandi ekki
dýrari en í fyrra. Lækkanir
á virðisaukaskatti 1. mars
síðastliðinn hafa þar áhrif.
„Flestir sem flytja inn jólatré á
Íslandi skipta við einhvern ákveð-
inn ræktanda og fá sín tré þrátt
fyrir skortinn. Það hefur því ekki
verið erfiðara fyrir okkur að
útvega tré nú frekar en undanfar-
in ár,“ segir Gísli Hinrik Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Garð-
heima.
Um nokkurra ára skeið hefur
verið nokkur skortur á jólatrjám,
einkum frá Danmörku. Gísli segir
að innkaupsverð jólatrjánna hafi
hækkað en sú hækkun skili sér þó
ekki til neytenda þar sem inn-
flutningstollur á jólatrjám hafi
verið felldur niður með breyting-
um á virðisaukaskatti 1. mars síð-
astliðinn. „Þetta kemur því á sama
stað niður og verðið er mjög svip-
að og í fyrra,“ segir Gísli en bætir
því við að hlutfallslega hækki
íslensk jólatré meira á milli ára
en þau erlendu þótt lítið sé.
Kristinn Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Blómavals, tekur í
sama streng og segir að verðið í
Blómavali sé svipað og í fyrra.
Hann spáir því að nóg verði af
trjám fyrir jólin en hvetur fólk þó
til þess að vera snemma á ferðinni.
„Það er betra að kaupa tréð
snemma og láta það standa úti á
svölum eða í bílskúrnum heldur en
að koma að tómum kofanum á Þor-
láksmessu,“ segir Kristinn.
Ásgerður Einarsdóttir, umsjón-
armaður jólatrjáasölu Flugbjörg-
unarsveitarinnar í Reykjavík,
segir að ekki hafi reynst erfitt að
útvega tré og að pantað hafi verið
meira til jólanna nú en í fyrra. „Ég
hef orðið vör við hækkun í sumum
flokkum og það er erfiðara að
útvega stærri tré. Verðið breytist
ekki mikið hjá okkur milli ára.
Lægri trén eru á sama verði og í
fyrra en stóru trén hækka örlítið
einfaldlega vegna þess að það það
er erfiðara að útvega þau,“ segir
Ásgerður.
Reikna má með að fyrir jólin
seljist um 40.000 jólatré, þar af
um 10.000 íslensk tré. Þau hafa
hækkað örlítið milli ára, þannig
kostar nú 4.900 krónur að höggva
sitt eigið jólatré í Heiðmörk en í
fyrra kostaði slíkt 4.500 krónur.
thorgunnur@frettabladid.is
Skortur á jólatrjám
hefur lítil áhrif á verð
TRÉ TIL SÖLU Það var glatt á hjalla í jólatrjáasölu Flugbjörgunarsveitarinnar við Flug-
vallarveg þegar ljósmyndari Fréttablaðsins leit þar við. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Misjafnt er hvernig skila- og skiptireglur verslanir hafa
eftir jólavertíðina. Flestar verslanir taka við vörum ef
þær eru heilar og ekki of langt um liðið frá kaupunum.
Algengt er að vörur séu merktar með gjafa- eða skipti-
miða og má þá skipta þeim eða skila í ákveðinn tíma
eftir jól. Gott er að fylgjast með því í jólavertíðinni hvort
ekki sé örugglega settur slíkur miði á þær jólagjafir sem
keyptar eru. Það tryggir möguleika þess sem gjöfina fær á
að skila eða skipta ef hann þarf á því að halda eftir jól.
■ Jólaverslun
Fylgist með skiptimiðanum
Útgjöldin
> Verð á jólakökum
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS.
„Bestu kaupin mín voru íbúðin mín,“ segir
Gunnar Lárus Hjálmarsson tónlistarmaður,
betur þekktur sem Dr. Gunni, en hann
heldur úti umfangsmiklum neytenda-
vef á heimasíðu sinni. „Ég rétt náði að
kaupa hana áður en geðveikin skall á
þjóð félaginu. Hún var frekar ódýr
þá, miðað við það sem var í gangi,
enda hafði hún ekki verið gerð
upp. Það þurfti að skipta um
gólfefni og mála. Þetta er 130
fermetra íbúð í Vesturbænum
keypt á 15,6 milljónir árið
2004. Nú tæplega fjórum
árum síðar hefur hún meira
en tvöfaldast í verði. Það væri
hægt að fá svona 35 milljónir fyrir
hana. Þannig að það er alltaf inni í
myndinni að selja og hefja nýtt líf
úti á landi í ódýrara húsnæði, en konan vill ekki
heyra á þetta minnst. Það væri hægt að lifa á
mismuninum í nokkur ár.“
Verstu kaupin segir Gunnar vera Elvis
Presley-sólgleraugu, sem hann keypti á
heimasíðunni Elvis.com. „Þetta voru van-
hugsuð netkaup. Gleraugun kostuðu bara
þúsundkall, en voru send með rándýrri
Federal Express-sendingu, sem kostaði
svona 5.000 kall. Ofan á það bættist
tollur og virðisaukaskattur, þannig
að gleraugun kostuðu svona 10.000
krónur að lokum. Þetta voru bara
plastgleraugu eins og fást í Kolaport-
inu. Konan var lengi að tala um þessi
gleraugu og alltaf þegar hún vildi
kaupa eitthvað sem ég vildi ekki, þá
sagði hún bara „Elvis Presley-sólgler-
augun“. Þá gat ég lítið sagt.“
NEYTANDINN: DR. GUNNI TÓNLISTARMAÐUR
Elvis-sólgleraugu á tíu þúsund kall
■ Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn
mælir með klassískri tónlist til að
halda innbrotsþjófum í skefjum.
„Ég kann ekki svo
mörg húsráð þar sem
konan mín sér nær
alveg um allt slíkt en
þó kann ég nokk-
ur ráð til að halda
innbrotsþjófum frá
á nóttunni en það
er náttúrlega í fyrsta lagi að loka vel
öllum gluggum með hespum en
síðan læt ég tónlist á. Það má reyndar
ekki vera nein popptónlist, það gæti
jafnvel dregið athygli þeirra að, en
hins vegar held ég að það gefist vel
að spila klassíska tónlist, það fælir þá
bara.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
KLASSÍK FÆLIR
INNBROTSÞJÓFA
J
Þvottavél verð frá kr.:
99.900
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Eirvík kynnir
sportlínuna
frá Miele
Miele gæði
TILBOÐ