Fréttablaðið - 13.12.2007, Qupperneq 34
34 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
UMRÆÐAN
Trúmál
Að undanförnu hafa þjónar kirkjunnar, með biskup Íslands í fararbroddi,
beint harðri gagnrýni að trúleysingjum og
öðrum þeim sem telja tímabært að draga
úr kristnu trúboði í grunnskólum landsins
og samhliða því auka veg hlutlausrar
lífsskoðanafræðslu. Svo langt hefur
biskupinn gengið að kalla þennan mál-
flutning hatramman. Í stað þess að gjalda
líku líkt þá langar mig nota þetta tækifæri
til þess að þakka biskupi fyrir nýtt svar á tru.is þar
sem hann sýnir í hnotskurn af hverju ég vil halda
kristnu trúboði utan grunnskólanna.
Nýlega sendu nemendur í 4. og 5. bekk grunn-
skólans á Drangsnesi eftirfarandi spurningu inn á
tru.is: „Eru til englar og getur Guð sent þá til
hjálpar mönnunum?“. Biskupinn tók að sér að
svara spurningunni og eftir nokkrar málalengingar
kemst hann að kjarna svarsins: „Já, Guð getur sent
engla sína til hjálpar mönnunum. Hann lætur
verndarengla sína vaka yfir okkur á nótt sem degi.
Það er mikilvægt að hryggja þá ekki né styggja.
Englar Guðs eru yfirleitt ósýnilegir.“
Á yfirborðinu hljómar þetta svar mjög fallega en
undir þessu meinleysislega yfirborði kraumar eitt
erfiðasta vandamál þeirra sem trúa á persónuleg-
an, almáttugan og algóðan guð: Illskuvandamálið,
sem hinn kunni bandaríski trúvarnarmaður
William Lane Craig kallaði í nýlegri bók „rothöggs-
röksemd“ trúleysingja gegn guðshugmynd
kristinna manna. Lítum nánar á málið. Ung
og saklaus börn deyja á hverjum degi út
um allan heim. Hér á landi er þetta sem
betur fer ekki daglegur viðburður en í ljósi
svars biskups þá hljóta eftirfarandi
spurningar að vakna: Hvað hafa ung börn,
sem á hverju ári deyja úr hörmulegum
sjúkdómum eða farast í slysum, gert á hlut
hins persónulega, almáttuga og algóða
guðs, sem réttlættir að enginn „verndar-
engill“ bjargi lífi þeirra? Hvað gerðu þau
til þess að „hryggja þá“ og „styggja“?
Hvernig getur guð kristninnar, sem skv.
biskupi ræður yfir her „verndarengla“, leyft aðra
eins illsku og þjáningar? Með þessar spurningar í
huga er ekki að undra að einn helsti Biblíusérfræð-
ingur heimsins, Bart D. Ehrman, mun í upphafi
næsta árs senda frá sér bókina God’s Problem:
How the Bible Fails to Answer Our Most Important
Question – Why We Suffer.
Hefðbundna skýringin á illskuvandamálinu er að
vegir guðs séu órannsakanlegir eða að ákveðinn
hörmulegur atburður sé hluti af einhverri áætlun
guðs sem sé hulin okkur mönnunum. Hvað sem
þessum sýndarskýringum líður þá hefur biskupinn
með svari sínu opinberað illskuna sem er innifalin í
hinum kristna hugmyndaheimi, sem sumir telja svo
fullkominn að ekki megi fjarlægja vísanir í hann úr
landslögum. Öll siðferðisleg kerfi sem maðurinn
hefur búið sér til glíma við miserfið vandamál og
er illskuvandamál kristninnar eitt þeirra. Þetta tel
ég vera ærna ástæðu til þess að dregið verði úr
vægi kristinna „fræða“ í grunnskólum landsins á
kostnað hlutlausrar lífsskoðanafræðslu þar sem
fjallað er jafnt um kosti og galla þeirra siðferðis-,
trúar- og lífsskoðanakerfa sem maðurinn hefur í
gegnum aldirnar búið til.
Höfundur er
vísindasagnfræðingur.
Illskuvandamál kristinnar trúar
Hvað sem þessum sýndarskýringum líður þá
hefur biskupinn með svari sínu opinberað
illskuna sem er innifalin í hinum kristna hug-
myndaheimi...
STEINDÓR J.
ERLINGSSON
LÁRA HANNA
EINARSDÓTTIR
Siðlaust og jafnvel
kolólöglegt líka
UMRÆÐAN
Orkumál
Orkuveita Reykjavíkur
(OR) og Sveitarfélagið
Ölfus (SÖ) gerðu sam-
komulag í apríl 2006
þar sem OR kaupir
blygðunarlaust loforð
um, að framkvæmda-
leyfi verði veitt fyrir
virkjunum og greitt
fyrir flýtimeðferð gegn
því að OR kosti ýmsar fram-
kvæmdir í Ölfusi. Samkomulag-
ið er gert löngu áður en lögbund-
ið ferli hófst við umhverfismat
og breytingu aðalskipulags.
Samkomulagið er metið á 500
milljónir sem greiðast úr vasa
Reykvíkinga, eigenda OR.
Matsupphæðin er úr fundargerð
Ölfuss dags. 28. apríl 2006.
Í kvöldfréttum Sjónvarps
nýverið gagnrýndi umhverfis-
ráðherra sveitarstjórnir fyrir
að taka ekki nægt tillit til nátt-
úruverndar við skipulags-
ákvarðanir. Hún sagði náttúr-
unni of oft fórnað fyrir
atvinnusjónarmið. Ráðherra
sagði einnig: „Ég fæ ekki séð
hvernig fyrirtæki, hvort sem
það er ríkisfyrirtæki eða annað,
geti lofað þjónustubótum sem
eru í raun á hendi ríkisins.“ Hér
lofar opinbert fyrirtæki í eigu
Reykvíkinga sveitarfélagi ljós-
leiðara, hesthúsum, raflýsingu
og fleiru til að horft verði fram-
hjá skaðsemi framkvæmda og
ferlinu flýtt.
Þegar er vitað um gríðarlega
lyktarmengun sem hlýst af
virkjanaæðinu. Ólíft getur orðið
í Hveragerði 70 daga á ári.
Reykvíkingar finna þegar tölu-
verða lyktarmengun og magn
brennisteinsvetnis hefur farið
yfir hættumörk þótt aðeins sé
búið að reisa tvær virkjanir af
fimm eða sex. Virkjanirnar
endast aðeins í 40 ár, nýting er
einungis 12-15% og eingöngu á
að framleiða rafmagn, ekki heitt
vatn. Þetta er fullkomin rán-
yrkja.
Hér er stuttur útdráttur úr
nokkrum greinum samkomu-
lagsins. Dæmi hver fyrir sig
hvort þetta sé bara siðlaust eða
hvort þetta sé ólöglegt í þokka-
bót. En varla getur þetta talist
eðlileg meðferð á fjármunum
Reykvíkinga:
2. grein
Bæjarstjórn Ölfuss veitir fram-
kvæmdaleyfi og greiðir fyrir
skipulagsmálum eins hratt og
unnt er vegna umræddra fram-
kvæmda enda byggi þær á
lögum um mat á umhverfis-
áhrifum fyrir hvern áfanga og
viðkomandi verkþætti. OR
greiðir SÖ skv. 11. grein fyrir
aukið álag og vinnu sem fram-
kvæmdirnar kalla á hjá sveitar-
félaginu. Þetta gerir sveitar-
félaginu kleift að hraða öllum
umsögnum og leyfisveitingum
sem þörf er á.
3. grein
OR sér um og ber allan kostnað
af hugsanlegum málaferlum og
skaðabótakröfum sem rekstur
og framkvæmdir tengdar OR
leiða til, sama hvaða nafni þær
nefnast. Þetta á einnig við um
hugsanleg skaðabótamál á
hendur SÖ sem rekja má til
virkjunarframkvæmda og orku-
vera á Hellisheiði.
4. grein
...sérstök ráðgjafa-
nefnd sem skipuð verði
um uppgræðsluverk-
efni skili tillögum til
beggja aðila um upp-
græðslu í SÖ... Miðað
er við að OR verji til
þessa verkefnis 12,5
milljónum á ári fram
til 2012... Þá mun OR
leggja að auki til starf
unglinga til landbóta í
sveitarfélaginu...
5. grein
Vegna framkvæmda OR tekur
hún að sér að byggja upp nýja
fjárrétt og hesthús við Hús-
múla sem notuð er til smölunar
á afrétti Ölfusinga skv. fyrir-
liggjandi teikningum. OR ann-
ast viðhald þessara mann-
virkja...
6. grein
OR gerir SÖ tilboð í lýsingu
vegarins um Þrengsli, frá Suð-
urlandsvegi í Þorlákshöfn fyrir
14 milljónir á ári... Innifalin er
lýsing á veginum... allur fjár-
magnskostnaður, orka og við-
hald er innifalið í tilboðinu...
9. grein
Á árinu 2008 hafi OR lokið lagn-
ingu ljósleiðara um þéttbýli í
Þorlákshöfn og fyrir árið 2012
verði lagningu ljósleiðara lokið
um aðgengilegan hluta dreif-
býlis Ölfuss skv. nánara sam-
komulagi er liggi fyrir áramót
2006/2007.
11. grein
...umsvif og álag á bæjarstjórn
og bæjarstjóra Ölfuss mun
fyrirsjáanlega aukast meðan
framkvæmdir við virkjanir á
Hengilssvæðinu standa yfir...
Samkomulag er um að OR
greiði SÖ fyrir þann kostnað
sem af þessu hlýst með fastri
heildargreiðslu, kr. 7,5 milljón-
ir á ári árin 2006 til 2012... Þess-
ar greiðslur verða notaðar til að
kappkosta við að afgreiðsla
umsagna og leyfa verði eins
hröð og hægt er.
Ég kref Orkuveitu Reykja-
víkur svara við því, hvernig
hún telur sig þess umkomna að
gefa Sveitarfélaginu Ölfusi
hálfan milljarð af fjármunum
Reykvíkinga. OR er opinbert
fyrirtæki í eigu skattgreiðenda
og þeir eiga heimtingu á skýr-
um svörum.
Einnig vil ég vita nákvæm-
lega í hvað gjafaféð sem þegar
hefur verið reitt af hendi hefur
farið. Sveitarstjóri Ölfuss á að
gefa skýringar á hverri einustu
krónu.
Meirihluti sveitarstjórnar
Ölfuss er skipaður 4 einstakl-
ingum með 495 atkvæði á bak
við sig. Athugasemdir við
fyrirhugaða Bitruvirkjun voru
um 700. Ákvörðun um virkjanir
á Hellisheiði og Hengilssvæð-
inu snertir um 200.000 manns í
formi spilltrar náttúru, lyktar-,
loft- og sjónmengunar og alla
landsmenn í formi ofurþenslu,
verðbólgu og vaxtahækkana.
Ég lýsi eftir lýðræðinu í þessum
gjörningi.
Höfundur er þýðandi, leiðsögu-
maður og einn eigenda Orku-
veitu Reykjavíkur. Samkomulag-
ið er birt í heild sinni á
larahanna.blog.is.
Stofnfjáraukning hjá Byr sparisjóði.
Útboðinu lýkur föstudaginn
14. desember kl. 16.00
Nú stendur yfir aukning stofnfjár um kr. 23.726.114.700 með útboði þar sem
stofnfjáreigendum er boðið að skrá sig fyrir nýju stofnfé. Nafnverð nýs stofnfjár í
útboðinu er kr. 12.200.000.000 og er verð hvers stofnfjárhlutar kr. 1,94476350.
Útboðslýsing er aðgengileg á vef sparisjóðsins, www.byr.is, og í útibúum
sparisjóðsins.
Áskriftartímabilinu lýkur föstudaginn 14. desember 2007 kl. 16.00.
Stofnfjáreigendur eiga kost á að skrá sig rafrænt fyrir nýju stofnfé, á vef spari-
sjóðsins undir slóðinni www.byr.is. Stofnfjáreigendum gefst einnig kostur á að skrá
sig fyrir nýju stofnfé með því að fylla út áskriftarblað og skila því undirrituðu í útibú
Byrs áður en áskriftartímabilinu lýkur, kl. 16.00 föstudaginn 14. desember 2007.
Áskriftir sem sendar verða til Byrs í pósti verða ekki teknar gildar í útboðinu.
Ef stofnfjáreigandi nýtir að engu leyti rétt sinn til kaupa á nýju stofnfé í útboðinu
mun eignarhlutur hans í sparisjóðnum þynnast um 86,20% að því gefnu að allt
stofnfé sem boðið er til sölu í útboðinu seljist. Eindagi áskrifta er 21. desember 2007.