Fréttablaðið - 13.12.2007, Page 42
13. desember 2007 FIMMTUDAGUR6
Þeim sem eru einmana í að-
draganda jóla getur verið mikil
sálubót í samtali við aðra
manneskju þótt ókunnug sé.
Hjálparsími Rauða krossins er
opinn allt árið um kring.
Hjálparsíminn með númerið 1717
er rekinn af Reykjavíkurdeild
Rauða krossins með fulltingi Sím-
ans. Þar svara sérþjálfaðir sjálf-
boðaliðar. „Alltaf kemur mér á
óvart hversu vel gengur að fá
sjálfboðaliða á símavaktirnar á
aðventunni og hátíðum. Það bara
veitir mér trú á mannkynið,“
segir Elva Dögg S. Leifsdóttir,
verkefnastjóri Hjálparsímans.
Hún segir símtölum ekki fjölga á
aðventunni en umræðuefnin
breytast. Kvíði, þunglyndi og
streita séu meira áberandi á
þessum árstíma en öðrum, sem og
fjárhagsáhyggjur. En hvað getur
starfsfólk Rauða krossins gert
gegnum símann?
„Einkenni Hjálparsímans er
sálrænn stuðningur sem við reyn-
um að veita eins og hægt er. Við
fáum töluvert af hringingum
vegna samskiptamála og sorgar.
Ef fólk hefur upplifað skilnað eða
ástvinamissi á árinu eru jólin erf-
iður tími. Þá er það okkar að
hlusta og sýna skilning og benda
á hvar hægt er að leita sér aðstoð-
ar. Okkar sími er oft fyrsta leið til
að opna á erfið mál. Við bendum
til dæmis á sálfræðinga, fjöl-
skylduráðgjöf og presta. Eigin
skyldfólki má líkja við félagslegt
net ef erfiðleikar steðja að. Oft
lítur fólk fram hjá því, telur sig
vera að íþyngja því og er hrætt
við að trufla. En þar getur verið
góðan stuðning að fá.
Einnig höfum við tekið saman
lista yfir þá sem veita þjónustu
sérstaklega fyrir jólin og gefum
upplýsingar um hvar einstæðing-
ar geta sótt jólamat og hvar er
hægt að sækja um styrki og þess
háttar. Það er fólki til hjálpar sem
er í mikilli fátækt og einsemd.“
Elva Dögg segir fólk á öllum
aldri hringja í hjálparsímann, allt
frá tíu ára til einmana eldra fólks.
„Það er sérstaða okkar Íslendinga
að hafa sameiginlega línu fyrir alla
aldurshópa sem er opin allan sólar-
hringinn.“ Aðspurð segir hún mest
hringt á kvöldin frá átta til ellefu.
„Eftir lokun hefðbundinnar
þjónustu á heilsugæslunni og víðar
aukast hringingar hjá okkur. Svo
fækkar þeim á nóttunni en þá eru
samtölin oft alvarlegri,“ lýsir hún.
Sjálfboðaliðarnir koma úr
ýmsum áttum að sögn Elvu
Daggar. Margir þeirra eru sér-
fræðingar á sínu sviði og allir
fara í gegnum nokkur námskeið
hjá Reykjavíkurdeild Rauða
krossins áður en þeir geta hafið
störf. „Það eru námskeið í viðtals-
tækni og sálrænum stuðningi og
fræðsla um geðraskanir, þung-
lyndi og kvíða,“ segir hún og
bætir við að fljótlega eftir áramót
verði boðið upp á slík námskeið.
„Ef áramótaheitið verður sjálf-
boðavinna þá verður tekið hér vel
á móti fólki,“ segir hún glaðlega.
gun@frettabladid.is
Veitir mér trú á mannkynið
Elva Dögg er verkefnastjóri Hjálparsíma Rauða krossins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tilvalið í Jólakökubaukana
HÁLFMÁNAR.
340 g kartöflumjöl
200 g hveiti
200 g sykur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. hjartarsalt
200 g smjörlíki
6 msk. mjólk
2 tsk. vanilla
2 egg
þykk sulta
Deigið hnoðað, látið standa í um 15 mínútur á borði.
Flatt út og skorið undan glasi. Sléttfull teskeið af sultu
er sett á hverja köku. Kakan brotin saman og börmun-
um þrýst saman með fingurgómunum eða gaffli. Hálf-
mánarnir bakaðir mjög ljósir við 200 gráðu hita.
A WATCH YOU CAN
COUNT ON. UP TO 1/1000
OF A SECOND.
.
.
THE NEW G-7700 WITH 1/1000-
STOP WATCH AND DUAL DISPLAY
TOUGH TESTED BY EXPERTS:
THE G-SHOCK TOUGH TEST TEAM.
TICKS JUST LIKE YOU. autumnw i n t e r ’07 g-shock.eu
Ensk ávaxtakaka
Holtagarðar & Smáralind & Kringlunni
Nú er Jói Fel byrjaður að undirbúa jólin.
Leggjum mikinn metnað í að vera með
ferskt og gómsætt bakkelsi á boðstólnum
fyrir viðskiptavini okkar.
NÆTURVAKTIN
Á DVD
NÆTUR-
VAKTIN
allir 12 þættirnir
á 2 diskum troðfullir af
aukaefni; tilurð þáttanna
/ upptökur frá spunum,
gerð næturvaktarinnar
og yfirlestur
(commentary)
frá höfundum
og aðalleikurum.
Eigum við
að ræða
það eitthvað?
2
DVD
Pósthúsið - S: 585 8300 - www.posthusid.is
Nú þegar farið er að myrkva úti viljum við vinsamlega minna
íbúa á að hafa kveikt á útiljósum við heimili sín til að
auðvelda blaðberum Fréttablaðsins aðgengi að lúgu.
Munum eftir útiljósunum !
Fyrirfram þakkir, dreifing Fréttablaðsins
Auglýsingasími
– Mest lesið