Fréttablaðið - 13.12.2007, Blaðsíða 96
64 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarar KR-
inga hafa verið með hæsta fram-
lagið frá bekknum af öllum liðum
Iceland Express deild karla en níu
umferðir eru búnar af deildinni í
vetur. KR hefur fengið flest stig
(20,5) og flest fráköst (8,9 í leik)
frá varamönnum sínum og þá hafa
varmenn liðsins skilaði flestum
framlagsstigum í leik.
Besta dæmið um mikilvægi
varamannabekksins fyrir KR-liðið
hefur komið í tveimur síðustu
leikjum, sem KR hefur unnið báða
með aðeins einu stigi. Sá fyrri var
í deildinni í Hveragerði 2. desem-
ber þar sem KR var fimmtán stig-
um undir, 33-18, eftir fyrsta leik-
hluta. Benedikt Guðmundsson
fékk 26 stig frá varamönnum
sínum í öðrum leikhluta sem KR
vann 36-15 og kom sér aftur inn í
leikinn, KR vann á endanum 91-
90 og það var varamaðurinn
Darri Hilmarsson sem skoraði
síðustu þrjú stig liðsins þar af
sigurstigið á vítalínunni sex
sekúndum fyrir leikslok.
Varamenn KR enduðu með
39 stig gegn aðeins 5 stigum
hjá varamönnum KR.
Sá seinni var í 16 liða
úrslitum bikarsins gegn
Grindavík á sunnudags-
kvöldið. KR var komið
sex stigum undir þegar
sex mínútur eftir
en tveir þrist-
ar frá vara-
mannin-
um
Brynjari Þór Björnssyni og fjögur
stig frá Fannari Ólafssyni spiluðu
lykilihlutverk í að landa sigrinum
en Fannar skoraði sigurkörfuna
átta sekúndum fyrir leikslok. KR
vann leikinn 104-103 og varamenn
liðsins unnu baráttuna við bekk
Grindvíkinga með miklum yfir-
burðum 37-9.
Það er margt sam-
eiginlegt með þess-
um leikjum. Í þeim
báðum kemur vara-
maður
sjóð-
heitur inn í annan leikhluta,
Brynjar skoraði 18 stig í 2. leik-
hluta í Hveragerði og Darri skor-
aði 13 stig í 2. leikhluta gegn
Grindavík. Í báðum leikjum eru
það síðan varamenn sem tryggja
sigurinn á lokasekúndum leiksins
og þegar heildarstigaskor af
bekknum er skoðað kemur í ljós
að varamenn KR skoruðu 76 stig
gegn 14 í þessum tveimur naumu
sigrum.
Þegar tölfræði er skoðuð yfir
flest stig varamanna liðs í einum
leik kemur í ljós að KR-ingar eiga
þrjá af sex bestu leikjunum í
vetur en ekki þó tvo þá hæstu. ÍR-
ingar fengu 45 stig frá bekknum í
fyrsta leik gegn Þór á Akureyri og
Keflvíkingar fengu 45 stig frá
bekknum gegn sama Þórsliði
fimmtán dögum síðar.
KR-ingar hafa mest fengið 44
stig frá bekknum og enn komu
Þórsararnir þar við sögu en Akur-
eyringar voru þá búnir að láta
varamenn mótherja sinna skora á
sig 170 stig í fyrstu fjórum leikjun-
um. Lærisveinar Hrafns Kristj-
ánssonar hafa tekið sig á eftir
það og varamenn mótherj-
anna hafa aðeins skorað 59
stig í síðustu fimm deildar-
leikjum þar af aðeins 13
stig í síðustu tveimur.
Hér til hliðar má finna
lista yfir besta
árangur
vara-
manna
liðanna
í Iceland
Express
deild karla
í vetur.
ooj@frettabladid.is
Bekkur KR-inga sá besti í deildinni
Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, hefur fengið 267 stig og 116 fráköst frá varamönnum í vetur. Vara-
menn KR skoruðu 62 stigum fleira en varamenn Hamars og Grindavíkur í eins stigs sigrum KR.
SIGURKARFA GEGN GRINDAVÍK
Fannar Ólafsson hefur byrjað á bekknum í síðustu
leikjum og var með 10 stig og sigurkörfuna gegn
Grindavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ERTU TILBÚINN AÐ FARA INN Á? Bene-
dikt Guðmundsson getur óhræddur kall-
að á menn af bekknum hjá KR-liðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Flest stig frá bekk:
1. KR 267 (20,5 í leik)
2. Keflavík 236 (18,2)
3. Njarðvík 211 (16,2)
4. Grindavík 195 (15,0)
5. ÍR 164 (12,6)
6. Fjölnir 163 (12,5)
7. Snæfell 160 (12,3)
8. Stjarnan 158 (12,2)
9. Hamar 135 (10,4)
10. Þór Ak. 122 (9,4)
11. Tindastóll 85 (6,5)
12. Skallagrímur 81 (6,2)
Flest fráköst frá bekk:
1. KR 116 (8,9)
2. Keflavík 107 (8,2)
3. ÍR 82 (6,3)
4. Þór Ak. 80 (6,2)
4. Fjölnir 80 (6,2)
6. Stjarnan 79 (6,1)
7. Grindavík 78 (6,0)
8. Njarðvík 72 (5,5)
9. Snæfell 68 (5,2)
10. Hamar 44 (3,4)
11. Skallagrímur 42 (3,2)
12. Tindastóll 22 (1,7)
Hæsta framlag frá bekk:
1. KR 23,3
2. Keflavík 20,2
3. Njarðvík 18,8
4. Grindavík 16,0
5. ÍR 13,7
6. Fjölnir 12,0
7. Snæfell 11,3
8. Stjarnan 11,2
9. Þór Ak. 8,3
10. Skallagrímur 6,5
11. Hamar 6,2
12. Tindastóll 3,7
FRAMLAG FRÁ BEKKNUM Í 1. TIL 9. UMFERÐ Í ICELAND EXPRESS DEILD KARLA:
BESTU OG VERSTU VARA-
MANNABEKKIRNIR
Á toppnum
Flest sóknarfráköst Keflavík, 44
Flestar þriggja stiga körfur KR, 30
Flest fengin víti Keflavík, 87
Flestar stoðsendingar Keflavík, 66
Flestir stolnir boltar Keflavík, 40
Flest varin skot Njarðvík, 17
Flestar villur KR, 107
Besta skotnýting Njarðvík 44,9%
Besta vítanýting Stjarnan, 85,2%
Besta 3ja stiga skotn. Njarðvík 39,7%
Á botninum
Fæst sóknarfráköst Tindastóll, 7
Fætar 3ja stiga körfur Tindastóll, 5
Fæst fengin víti Skallagrímur, 14
Fæstar stoðsendingar Hamar,
Tindastóll 12
Fæstir stolnir boltar Hamar,
Tindastóll 12
Fæst varin skot Snæfell, Þór,
Tindastóll 2
Fæstar villur Hamar 36
Versta skotnýting Þór Ak. 33,1%
Versta vítanýt. Skallagrímur, 28,6%
Versta 3ja stiga skotn. Tindast., 15,6%
KÖRFUBOLTI Það verða stórleikir í
Njarðvík og Stykkishólmi í átta
liða úrslitum Lýsingarbikars
karla en dregið var í bæði karla-
og kvennaflokki í gær.
Njarðvíkingar drógust á móti
Íslandsmeisturum KR og þá fá
Snæfellingar Keflavík í heima-
sókn. Báðir leikir liðanna til
þessa í vetur hafa verið æsi-
spennandi og mikil veisla fyrir
áhorfendur. KR vann eins stigs
sigur á Njarðvík í DHL-Höllinni í
nóvember og Keflavík vann
Snæfell í framlengingu í Hólmin-
um í október.
Í hinum leikjunum tekur Skalla-
grímur á móti bikarmeisturum ÍR
og Fjölnir fær Þór úr Þorlákshöfn
í heimsókn en Þórsliðið er eina
liða í átta liða úrslitunum sem er
ekki í Iceland Express-deildinni.
Skallagrímsmenn eiga harma að
hefna gegn ÍR-ingum sem unnu
þá Kanalausir fyrr í vetur.
Hjá konunum er stærsti
leikurinn milli Grindavíkur og
KR í Grindavík en þar fara liðin
sem hafa veitt Keflavík mesta
keppni það sem af er í vetur. Þá
mætast einnig Valur-Keflavík,
Haukar-Hamar og Snæfell-Fjölnir
en í síðasta leiknum mætast efsta
liðið í 1. deild og neðsta liðið í
úrvalsdeildinni.
Leikirinir í átta liða úrslitunum
fara fram helgina 11. til 13.
janúar - óój
Lýsingarbikarinn í körfu:
Spennandi leik-
ir fram undan
STÓRLEIKUR Brenton Birmingham og
Skarphéðinn Freyr Ingason fá að glíma í
bikarnum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar geta
verið ánægðir með dráttinn í átta
liða úrslitum Lýsingarbikars
karla þó svo að þeir hafi fengið
Íslandsmeistara KR-inga sem
hafa unnið þá fjórum sinnum í
röð.
Njarðvíkingar fengu nefnilega
loksins heimaleik í Ljónagryfj-
unni en áður en þeir komu upp úr
vasanum í gær voru þeir búnir
að dragast tólf sinnum í röð á úti-
völl í bikarnum. Síðasti heima-
leikur Njarðvíkur í bikarkeppn-
inni var gegn Hamri í átta liða
úrsltum 8. janúar 2004.
Síðan þá er Njarðvíkurliðið
búið að spila tvo bikarleiki í
Keflavík, Stykkishólmi og
Ásgarði auk þess að spila tvo
bikar úrslitaleiki en hefur hins
vegar aldrei fengið heimaleik á
þessu fjögurra ára tímabili fyrr
en liðið datt loksins í lukkupott-
inn í gær.
Árangur Njarðvíkurliðsins í
þessum tólf útileikjum er ekki
slæmur en liðið hefur unnið tíu
af þessum tólf leikjum en tapaði
fyrir ÍR í Seljaskóla í 32 liða
úrslitunum í fyrra og svo í Kefla-
vík í undanúrslitaleiknum 2006.
- óój
FJÓRTÁN ÚTILEIKIR Í RÖÐ
Í BIKARNUM
2004
17. janúar Snæfell 74-69 sigur
7. febrúar Keflavík (bik.ú.) 74-93 tap
29. nóvember ÍS 130-81 sigur
8. desember Stjarnan 115-63 sigur
2005
9. janúar Keflavík 88-85 sigur
23. janúar Breiðablik 113-76 sigur
13. feb. Fjölnir (bik.ú.) 90-64 sigur
10. desember Fjölnir-b 103-52 sigur
2006
8. janúar Þór Þorl., 97-76 sigur
22. janúar Snæfell 98-94 sigur
5. febrúar Keflavík 85-89 tap
25. nóvember ÍR 68-71 tap
2007
25. nóvember Valur-b 94-46 sigur
9. desember Stjarnan 104-86 sigur
Dregið í átta liða úrslit Lýsingarbikarsins í gær:
Fyrsti heimaleikur
Njarðvíkur í 4 ár
LOKSINS HEIMALEIKUR Teitur Örlygs-
son og lærisveinar hans í Njarðvík
mæta KR í Ljónagryfjunni í 8 liða
úrslitum bikarsins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Leiðir tveggja erlendra
leikmanna KR sem hafa yfirgefið
félagið á þessu tímabili hafa legið
upp á Sauðárkrók.
Leikmennirnir, sem eru þeir
Samir Shaptahovic og Phillip
Perry, mæta báðir með liði
Tindastóls í DHL-Höllina í kvöld
þegar liðin mætast í 10. umferð
Iceland Express-deildarinnar.
Shaptahovic er með 17 stig, 6,3
stoðsendingar og 43,5 prósenta
þriggja stiga skotnýtingu með
Tindastól í vetur. Hann kom til KR
í haust en var síðan látinn víkja
fyrir Avi Fogel sem hefur spilað
vel í stöðu leikstjórnanda hjá KR.
Perry, sem kom til að spila með
Bumbunni í bikarnum, lék sinn
fyrsta leik með Tindastól um
síðustu helgi þegar hann var með
10 stig í tapi gegn Keflavík.
Þeir Shaptahovic og Perry ætla
sér örugglega að sýna Benedikt
Guðmundssyni og lærisveinum
hans af hverju þeir misstu þegar
þeir létu þá félaga fara. - óój
Erlendir fyrrverandi KR-ingar:
Mæta aftur í
DHL-Höllina
AÐ SPILA VEL Samir Shaptahovic er að
gera góða hluti á Króknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
SENDU SMS JA ACF
Á NÚMERIÐ 1900 OG
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru Bíómiðar fyrir tvo, DVD
myndir, varningur tengdur myndinni
og margt fleira!
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
JÓLAMYNDIN Í ÁR!
STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.