Fréttablaðið - 13.12.2007, Qupperneq 102
70 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Auður Guðjónsdóttir.
2 Fabio Capello.
3 Led Zeppelin.
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. kornstrá 6. til dæmis 8. kvikmynda-
hús 9. fugl 11. berist til 12. teygjudýr
14. konungssonur 16. hætta 17. í
hálsi 18. hrópa 20. ung 21. horfðu.
LÓÐRÉTT
1. hafa í hyggju 3. í röð 4. land 5.
form 7. fugl 10. sjór 13. tjara 15.
greinilegur 16. kjökur 19. bardagi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. hálm, 6. td, 8. bíó, 9. lóm,
11. bt, 12. amaba, 14. prins, 16. vá,
17. kok, 18. æpa, 20. ný, 21. litu.
LÓÐRÉTT: 1. ætla, 3. áb, 4. líbanon,
5. mót, 7. dómpápi, 10. mar, 13. bik,
15. skýr, 16. væl, 19. at.
„Ég fæ mér yfirleitt þykkmjólk
með eplum og perum með
múslíi út á. Mér finnst það rosa
gott.“
Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir leikkona.
Barði Jóhannsson er einn þeirra
þriggja lagahöfunda sem láta
ljós sitt skína í Laugardagslögum
Sjónvarpsins um helg-
ina. Margir hafa beðið
spenntir eftir því hvernig
hann muni fylgja eftir
teknó-smellinum
„Ho ho ho, we say
hey hey hey“ sem
fór beinustu leið
áfram í úrslitaþátt-
inn. Samkvæmt
upplýsingum
Fréttablaðsins komu upp ýmsar
hugmyndir í herbúðum Barða,
til dæmis að syngja lag á pólsku.
Lendingin mun þó hafa orðið lag
sem heitir „Friður á þessari jörð“ og
inniheldur að sögn Barða friðar-
boðskap í anda jólanna.
Hótel Búðir á Snæfellsnesi býður
gestum sínum í fjórða skiptið upp
á að leysa glænýja morðgátu fyrstu
helgina í febrúar. Gátan er orðin
einn vinsælasti dagskrárliður hót-
elsins en hún er sem fyrr samin af
þeim Davíð Þór Jónssyni og Ævari
Erni Jósepssyni. Um er að ræða leik
sem stendur yfir í um sólarhring.
Einhver er myrtur, einhverju stolið
og ýmis sönnunargögn koma upp
á yfirborðið. Sá sem fyrstur kemst
að því hver morðinginn er og
hvers vegna hann framdi
voðaverkið sigrar. Mikill
spenningur ríkir á Snæ-
fellsnesi vegna
þessa enda taka
ekki einungis
gestir og starfs-
fólk þátt heldur
hafa bændur í kring jafnvel verið
fengnir til að leika hlutverk.
Þónokkrir Íslendingar skemmtu sér
hið besta á tónleikum Led Zepp-
elin í London á mánudagskvöld.
Bankastarfsmenn voru áberandi en
ekki þó eins áberandi og félagarnir
Sigurður G. Guðjónsson lög-
maður og Sigurjón Sighvatsson
kvikmyndaframleiðandi. Hinn síðar-
nefndi flaug alla leið frá Mexíkó
til að ná tónleikunum. Að auki var
Zeppelin-aðdáandinn
Tryggvi Jónsson
meðal gesta og naut
hann hljómsveitarinnar
í botn.
- sók/hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nýir eigendur helsta sportbars
Íslands, Players í Kópavogi, hafa
í hyggju að stofna keðju skemmti-
staða um allt land undir formerkj-
um Players. „Við keyptum Sport-
barinn á Hverfisgötu og munum
opna þar útibúið Players miðbær
þegar framkvæmdum lýkur í
febrúar eða mars,“ segir Valgarð
Sörensen, sem nýlega keypti
Players ásamt Óskari Einarssyni.
Á Players miðbær verður einnig
gert út á sport, grill og lifandi tón-
list, en Players er einn stærsti
skemmti- og veitingastaður lands-
ins. Þar myndast oft gríðarleg
stemning þegar íþróttaaðdáendur
koma saman og fylgjast með
helstu íþróttaviðburðum líðandi
stundar í beinni útsendingu. Play-
ers hefur verið sannkölluð gull-
náma fyrir eigendur sína, enda
tekur staðurinn um 750 gesti og
jafnan er fullt út úr dyrum.
„Við ætlum auðvitað að setja
upp bestu skjáina og hljóðkerfið í
miðbæjarútibúinu og sýna beint
frá leikjum,“ segir Valgarð.
„Einnig munum við bjóða upp á
lifandi tónlist um helgar eins og
hefur verið á Players í mörg ár.
Hljómsveitirnar verða þó líklega
meira í anda 101 en þær sem hafa
spilað í Kópavoginum,“ segir Val-
garð.
Stefna nýju eigendanna er að
opna útibú Players um allt land
og horfa þá helst á Selfoss, Kefla-
vík, Akranes og Akureyri. „Von-
andi gerist þetta á næstu mánuð-
um eða árum en er þó allt á
byrjunarstigi enn þá,“ segir Val-
garð.
- eá
Players-sportbarir um allt land
ÍÞRÓTTAAÐDÁENDUR Á PLAYERS
Players í Kópavogi rúmar 750 manns og
myndast mikil stemning þegar sýnt er
frá helstu leikjum. Hér eru aðdáendur
Liverpool á góðri stundu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mýrin, vinsælasta kvikmynd Íslands, og
Næturvaktin, ein vinsælasta sjónvarpsþáttaröð-
in í íslensku sjónvarpi, berjast um hylli
kaupenda DVD-diska fyrir þessi jólin. Þeir
gætu því ekki verið ólíkari keppinautarnir, þeir
Ólafur Ragnar frá Skeljungi og Erlendur
rannsóknarlögreglumaður. „Þetta verður
skemmtileg barátta,“ segir Pétur Jóhann
Sigfússon, sem leikur Ólaf í sjónvarpsþáttun-
um vinsælu, en hann vildi þó ekki meina
að þetta yrði beint harður slagur í
orðsins fyllstu merkingu. „Ég óska bara
Næturvaktinni alls hins besta og megi
þeir selja sem mest enda sýnir þetta
bara hversu mikinn áhuga almenn-
ingur hefur á íslenskum kvikmynd-
um og íslensku sjónvarpsefni,“
segir Baltasar Kormákur, leikstjóri
Mýrarinnar.
Næturvaktin hefur hreinlega
verið rifin út úr hillum verslana síðustu daga og
hafa hátt í átta þúsund eintök selst. Diskurinn
náði gullsölu á aðeins sex dögum en eintök láku
út í verslanir á föstudaginn. Mýrin
hefur verið ögn lengur í sölu en er
þegar komin í tíu þúsund
eintök. Sem verður
að teljast ansi
góður árangur sé
tekið mið af því
að yfir áttatíu
þúsund
Íslendingar
fóru og sáu
myndina í
bíói. Jón
Gunnar
Geirdal,
markaðs-
stjóri
Senu, sem gefur út flesta íslensku mynddis-
kana, segir íslenska útgáfu vera í miklum
blóma. Og bætir því við að Íslendingar hafi í
síauknum mæli beint kaupum sínum að
íslensku efni í stað amerískra Hollywood-
mynda eins og algengt hefur verið. „Það er
ótrúlega mikið framboð af íslensku efni um
þessar mundir og þjóðin virðist taka því vel,“
segir Jón en sjónvarpsþættir á borð við Venna
Páer, Sigtið og Tekinn auk Fóstbræðra hafa
notið töluverðrar hylli að ógleymdum kvik-
myndunum Astrópíu, Syndir feðranna og Köld
slóð. „En það má eiginlega segja að þetta hafi
allt fallið í skuggann af ótrúlegri sölu á
Næturvaktinni undanfarna daga.“
- fgg
Ólafur Ragnar slæst við Erlend
ÓLÍKIR KEPPINAUTAR Þeir Erlendur rannsóknarlög-
reglumaður og Ólafur Ragnar, starfsmaður á plani,
berjast um hylli áhorfenda á DVD fyrir jólin.
„Já, Óli Palli og Rás 2 eru að hýru-
draga okkur. Það er bara svoleið-
is,” segir Birgir Nielsen trymbill í
köntríhljómsveitinni góðkunnu
Klaufum frá Selfossi.
Sérkennilegt mál er upp komið
en hjá RÚV liggja nú ógreiddir
reikningar frá hljómsveitinni
Klaufum og aðstoðarmönnum
þeirra, öllum meðlimum í FÍH,
vegna beinar útsendingar sem var
frá tónleikum þeirra 3. nóvember.
Birgir segir að reikningurinn frá
Klaufum nemi um 350 þúsund
krónum en Ólafur Páll Gunnars-
son tónlistarstjóri Rásar 2 harð-
neiti að borga. Harðvítug orða-,
bréfa- og tölvupóstsskeyti hafa
gengið á milli málsaðila og vill
enginn gefa eftir.
„Fyrir allan lifandi tónlistar-
flutning í RÚV fá menn einfald-
lega greitt. Þannig eru lögin.
Þannig er þetta um heim allan.
RÚV er enginn leikskóli, þetta er
ríkisstofnun og ber að fara að
lögum. Svo hringir Óli Palli í mig
alveg snælduvitlaus og segir að
við eigum bara að draga okkar
reikninga til baka. Þetta hafi aldrei
verið samþykkt. Hann gerði lítið
úr hljómsveitinni og var dónaleg-
ur við mig í símann,“ segir Birgir
sem þykist vita að Óli Palli hafi
betri mann að geyma en þann sem
hann sýnir af sér í þessu máli.
Forsaga málsins er sú að Sigur-
jón Sigurðsson hjá fyrirtækinu
Prins Valíant fékk þá hugmynd að
efna til stórdansleiks á Ásvöllum í
Hafnarfirði. Frægasta köntrísöng-
kona Dana, Tamra Rosanes auk
Birgittu Haukdal komu fram
við þetta tækifæri og fjöl-
margir línudanshópar stigu
á stokk. Birgir minnist
þess að hafa farið með
Sigurði á fund á Rás 2
þar sem lagt var á ráðin
um hvernig best væri að
kynna tiltækið en þar
hafi ekki komið neitt
fram sem gæfi það til
kynna að hljóð-
færaleikar-
arnir ættu
að gefa
vinnu
sína.
Sigur geir Sigmundsson gítarleik-
ari er með málið fyrir hönd FÍH.
„Óli Palli hafði þá einu spurningu
til mín á fundinum hvort Klaufar
gætu ekki staðið undir beinni
útsendingu og ég hélt það nú. Enda
kom það á daginn.“
Ólafur Páll kannast við málið en
það snýr öðruvísi við honum en
Birgi. Vægast sagt: „Við vorum að
gera þeim greiða og fáum svo hell-
ing af reikningum í hausinn. Ef
eitthvað er þá skulda þeir okkur.
Það er verið að koma aftan að
okkur. Það er á hreinu að við erum
ekki að hýrudraga einn né neinn.
Við vorum í samstarfi
og okkar framlag
voru ókeypis aug-
lýsingar í útvarp-
inu. Við vorum í
samstarfi,“ segir
Óli Palli. Hann
segir málið allt út
í hött, hann hafi
móðgast þegar
reikningarnir tóku
að streyma og hann er móðgaður
enn.
„Af hverju ættum við að vera að
ráða fjölda tónlistarmanna á FÍH
taxta til að spila í útsendingu frá
einhverju kántríballi í Hafnarfirði
eftir miðnætti á laugardagskvöldi
þegar hlustun er lítil?“ spyr Óli
Palli sem segir ekki koma til
greina að borga. Tekur þó fram að
hann hafi ekkert með fjármálin að
gera og borgi því enga reikninga
nema sína eigin. Hann veit ekki
hvar málið er statt í kerfinu.
„Ég held ég hafi ágæta réttlæt-
is kennd. Við gerðum samkomulag
við unga og óreynda óþekkta fjög-
urra manna hljómsveit. Um að
auglýsa giggið. Ef einhvern tíma
hefði komið til tals að RÚV ætti að
borga svo mikið sem fimmkall
hefði ég flautað útsendinguna af.
Svo standa allt í einu tíu manns á
sviðinu og við eigum að borga
samkvæmt FÍH töxtum. Mér
finnst þetta galið,“ segir Óli Palli.
Ljóst má vera að þessu máli er
hvergi nærri lokið. En Óli Palli
kannast við þau einu mistök að
standa í þeirri meiningu að Sigur-
jón hjá Prins Valíant væri umboðs-
maður Klaufa.
jakob@frettabladid.is
BIRGIR NIELSEN: RÁS 2 NEITAR AÐ BORGA UMSAMDA TAXTA
Óli Palli hýrudregur Klaufa
KLAUFAR Segja Óla Palla hafa hringt í sig og heimtað að þeir drægju reikninga sína
til baka. Birgir Nielen er annar frá vinstri á myndinni.
ÓLI PALLI Fékk óvænt í
hausinn reikninga frá
tíu tónlistarmönnum
samkvæmt taxta
FÍH.
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
Opið 10-18:15 laugardaga 11-14.