Fréttablaðið - 08.01.2008, Blaðsíða 4
4 8. janúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
! #
$
%
&
& '
# (! %'
)
#
$
*+, *+, -+, ./
0+, *+,
1.
23+,/ 1.
23+, 4+,
1.
5+, 1.
5+, 1.
*+, 1.
4+, 26+,
1.
25+, 1.
-2+, 1.
!"#$%# & "'
('#)*"#%#+
'%"!,!-
.''#"
(' '#(!/
'"#/" *#"#
01''#0'(/'#/"
'/"2%'
#%%#-3%)#
'"!"' 12"'
04"01' /"+!
"#2( *#
#%# -."%
*%"##"#-
5!!,#'"6'
(' # '"#!')
7',02"###-
8945539
.,!(' %,!-
#!#!" %6-
.##%,!0'(/'#-
0768
07238 9:
.9:
.
:#!' ';-!'(&
2" '0', #!'
=
<
>
?
@
>
@
A
@
?
@
A
<
??
<
02.03
05.46
01.11
23.25
23.13
22.37
22.23
22.22
22.02
22.01
21.58
21.46
21.45
21.43
21.42
21.32
21.09
21.02
20.21
19.00
17.14
17.00
01.38
01.35
00.48
00.26
23.05
23.05
22.49
19.54
14.29
06.07
00.44
00.02
GENGIÐ 07.01.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
119,713
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
61,83 62,13
121,84 122,44
90,68 91,18
12,170 12,242
11,528 11,596
9,666 9,722
0,5638 0,5670
97,60 98,18
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
flugfelag.is
Burt úr bænum
SNÆFELLSJÖKULL
DRANGJÖKULL
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Hópaferðir fyrir öll tilefni
Upplýsingar:
Sími 570 3075
hopadeild@flugfelag.is
FERÐAMÁL Félag háskólamennt-
aðra ferðamálafræðinga, FHF,
telur ráðningu nýs ferðamála-
stjóra algjörlega á skjön við
þróun íslenskrar ferðaþjónustu
undanfarin ár. „Það er augljós-
lega gengið fram hjá fólki með
háskólamenntun á sviði ferða-
málafræði og það gagnrýnum
við harðlega,“ segir Bjarnheiður
Hallsdóttir, stjórnarmaður í
FHF.
Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra réð Ólöfu Ýrr Atladótt-
ur líffræðing í stöðu ferðamála-
stjóra. Bjarnheiður segir þetta
einkennilegt. „Það skýtur
skökku við að hann skuli ráða
líffræðing í embætti ferðamála-
stjóra. Líffræðing með enga
sérmenntun í ferðaþjónustu,
enga sérþekkingu og ekki
umtalsverða reynslu af nokkru
sviði ferðaþjónustu [...] Meðal
umsækjenda um þessar stöðu
voru að minnsta kosti sjö
umsækjendur með sérhæfða
háskólamenntun af sviði
ferðamála auk víðtækrar
reynslu í atvinnugreininni.“ - mh
Ferðmálafræðingar:
Mótmælu ráðn-
ingu ráðherra
BRUNI Hálffimmtugur karlmaður,
Hilmar Ragnarsson, lést þegar
eldur kom upp í íbúð á þriðju hæð í
fjölbýlishúsi við Tungusel 8 í
Reykjavík rétt fyrir klukkan sex í
gærmorgun.
Maðurinn bjargaði konu og
tveimur börnum úr íbúðinni áður
en hann hneig niður. Tveir
reykkafarar úr slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins fundu manninn í
íbúðinni.
Konan og börnin voru flutt á
slysadeild vegna reykeitrunar.
Slökkviliðsmönnum tókst að bjarga
fólki úr íbúð á fjórðu hæð með hjálp
körfubíls.
Slökkviliðið fékk tilkynningu um
eld í húsinu korter fyrir sex og var
allt tiltækt slökkvilið sent á vett-
vang. „Slökkvistarf á vettvangi
gekk vel. Góð samvinna var á milli
lögreglu og annarra sem komu að
hjálp á vettvangi, þar á meðal
Rauða krossins,“ sagði Jón Viðar
Matthíasson slökkviliðsstjóri.
Lögreglan kallaði til strætisvagn
og hópferðabíl til að hlúa að þeim
sem þurftu að yfirgefa íbúðir sínar
í stigaganginum. Mikill reykur var
í stigaganginum þegar slökkviliðið
kom á vettvang en greiðlega gekk
að reykræsta.
Íbúum í húsinu var boðin áfalla-
hjálp auk þess sem nágrannar
hjálpuðu til með því að gefa fólkinu
sem yfirgefa þurfti íbúðir sínar
mat og drykk.
Tuttugu slökkviliðsmenn voru að
störfum í og við fjölbýlishúsið
þegar mest var en lögð var áhersla
á að koma fólki út og reykræsta
húsið fljótt og vel.
Rannsóknardeild lögreglunnar
tók við þegar slökkvistarfi var lokið
og hóf strax vettvangsrannsókn.
Eldsupptök eru óljós en samkvæmt
upplýsingum frá Sigurbirni Víði
Eggertssyni, í rannsóknardeild lög-
reglunnar, getur vettvangsrann-
sóknin tekið tvo daga. Ingibjörg
Eggertsdóttir, verkefnisstjóri hjá
Rauða krossinum, segir samstarf á
milli þeirra sem sinntu björgunar-
starfi hafa gengið vel. „Það var
kominn strætisvagn á staðinn þegar
við komum. Sjálfboðaliðar frá
okkur voru komnir á vettvang
innan skamms til þess að aðstoða.“
Haukur Sigurðsson, íbúi í Tungu-
seli 6, segir brunann í húsinu áfall.
„Ég vaknaði við þessi ósköp í
[gær]morgun. Slökkviliðið náði
fljótt tökum á aðstæðum og við sem
ekki vorum á svæðinu þar sem
bruninn hafði áhrif gátum verið
inni. Sumir fóru út og fylgdust með
gangi máli. Þetta er vitaskuld mikið
áfall.“
Hilmar lætur eftir sig þrjú börn
á aldrinum sex til fimmtán ára.
magnush@frettabladid.is
Bjargvættur fórst í bruna
Hálffimmtugur maður lést eftir að eldur kom upp í íbúð í Tunguseli. Áður hafði hann bjargað konu og
tveimur börnum. Þremur var bjargað af hæðinni fyrir ofan. Maðurinn lætur eftir sig þrjú börn.
Taylor var í Líberíu
Charles Taylor, sem nú hefur verið
dreginn fyrir stríðsglæpadómstól í
Hollandi, var að sjálfsögðu harðstjóri
í Líberíu en ekki Síerra Leóne, eins og
fullyrt var í Fréttablaðinu í gær.
LEIÐRÉTTING
RANNSÓKNARDEILD Á VETTVANGI Rannsóknar-
deild lögreglunnar var kvödd á vettvang sjö mín-
útur yfir sex. Hún hóf rannsókn á vettvangi eftir
að slökkviliðið hafði lokið störfum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Maður spyr sig óneitan-
lega hvert stefnir í samfé-
laginu þegar við þurfum
að þeytast um allt svæðið
til að slökkva elda sem
fólk hefur kveikt að gamni
sínu,“ segir Jón Viðar
Matthíasson, slökkviliðs-
stjóri á höfuðborgarsvæð-
inu, en mjög hefur borið á
íkveikjum að undanförnu.
„Við sendum dælubíla
í tólf útköll aðfaranótt
sunnudags og 21 útkall
síðustu nótt [fyrrinótt].
Útköllin voru misalvarleg
en það var auðvitað alltof
mikið um útköll þar sem
vísvitandi hafði verið
kveikt í.“
Jón Viðar segir fólk
skapa óþarfa hættu með
því að kveikja í ruslagám-
um og ýmsu öðru laus-
legu og það geti komið
niður á viðbragðsflýti
þegar mest liggur við. - mh
Slökkviliðsstjóri ósáttur við íkveikjur:
SKAPA HÆTTU ÞEGAR MEST LIGGUR VIÐ
FJÁRMÁL Sífellt fleiri bera fyrir sig
vankunnáttu í fjármálum sem
ástæðu þess að þeir hafi lent í
fjárhagskröggum og þurfi því að
leita til Ráðgjafarstofu um fjármál
heimilanna. Árið 2006 gáfu
rúmlega 16 prósent þeirra sem
þangað leituðu þá skýringu en
aðeins tæp fimm árið 2003.
„Stundum er þetta fólk sem
hefur skrifað undir eitthvað en svo
ekki áttað sig á að böndin myndu
berast að þeim ef lántakandi lendir
í vanda. Eins segist fólk ekki hafa
áttað sig almennilega á því hvað
það var að gera þegar það samdi
við bankann,“ segir Ásta S.
Helgadóttir forstöðumaður. - jse
Fjármál heimilanna:
Vankunnátta
veldur vanda
ÚTKÖLL SLÖKKVILIÐSINS
SÓLARHRING FYRIR SLYSIÐ
Fyrir dóm vegna fíkniefna
Þrítugur Kópavogsbúi hefur verið
ákærður fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur fyrir fíkniefnalagabrot. Í janúar
2007 gómaði lögregla hann með
11,38 grömm af amfetamíni, 0,57
grömm af marijúana og 2,5 skammta
af vímuefninu LSD.
DÓMSTÓLAR
LANDBÚNAÐUR Nærri þrjátíu ára
gamalt met í mjólkurframleiðslu
var slegið á síðasta ári. Þá voru
framleiddar 126 milljónir lítra af
mjólk. Baldur Helgi Benjamíns-
son, framkvæmdastjóri Lands-
sambands kúabænda, segir fjár-
hagslegan hvata til framleiðenda
og minni hömlur á framleiðslu
mjólkur helstu ástæðurnar.
„Í janúar 2006 voru birgðir af
mjólkurvörum orðnar óþægilega
litlar, þar sem neysla hafði aukist
hraðar en framleiðsla um nokkurn
tíma,“ segir hann. „Þá voru bænd-
ur hvattir til að auka framleiðslu
og gefið út að það yrði borgað fullt
verð fyrir mjólk umfram kvóta.
Kvótakerfið var þannig í raun
tekið úr sambandi um tíma.“
Baldur segist eiga von á því að
framleiðslan verði eitthvað minni
í ár en í fyrra, þar sem kvótakerf-
ið sé aftur komið á. Þess utan sjái
bændur fram á töluverðar hækk-
anir á kjarnfóðri og áburði, sem
auki framleiðslukostnað.
Aðspurður hvaða mjólkurvöru-
tegundir hafi selst best á síðasta
ári segir hann mesta aukningu
hafa verið í smjöri.
„Neysla á smjörlíki hefur verið
á undanhaldi og fólk snúið sér í
ríkari mæli að náttúrulegri fitu.
Það er alveg sama á hvaða mat-
reiðsluþátt þú horfir, þegar verið
eru að elda fínan mat þá nota menn
alvöru hráefni,“ segir Baldur. - sþs
Fjárhagslegur hvati og minni hömlur á framleiðslu mjólkur helstu ástæður:
Mjólkurframleiðendur slá met
MJÓLK Framkvæmdastjóri Landssam-
bands kúabænda segist eiga von á
minni framleiðslu í ár en var í fyrra.
Hömlur á framleiðslu hafi aukist og
framleiðslukostnaður hækkað.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR