Fréttablaðið - 08.01.2008, Síða 10
10 8. janúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
FÉLAGSMÁL Arnar Sigurmundsson,
formaður Landssamtaka lífeyris-
sjóða, telur ástæðulaust að
lífeyrissjóðir gaumgæfi fjár -
festingar sínar í íslenskum
fjárfestingarfyrirtækjum út frá
siðferðissjónarmiðum – umfram
það sem þegar er gert.
Skúli Thoroddsen, fram-
kvæmdastjóri Starfsgreinasam-
bandsins, kallar eftir samfélags-
legri meðvitund í fjárfestingum
lífeyrissjóða. Hann vill ekki að
sjóðirnir eigi hluti í fjárfestingar-
fyrirtækjum sem kaupa fyrir-
tæki til að umbreyta þeim og
selja svo aftur í smærri eining-
um. „Ég vil ekki að lífeyrissjóð-
irnir taki þátt í að skilja eftir slóð
atvinnuleysis,“ sagði Skúli í
Fréttablaðinu í gær.
Arnar Sigurmundsson er í
meginatriðum sammála Skúla.
Hann segir að horfa eigi til sið-
ferðislegra þátta við mat á fjár-
festingum. „Það á að gera það og
það er gert,“ segir Arnar en telur
ástæðulaust að lífeyrissjóðir taki
upp önnur vinnubrögð en þeir
ástundi nú þegar.
Í nýársgrein á vef Starfs-
greinasambandsins fjallaði Skúli
Thoroddsen um nýkapítalisma og
sagði hann vera að ryðja sér til
rúms. Kvaðst hann þeirrar skoð-
unar að kröfur fjárfesta um mik-
inn skyndigróða hefðu skaðað
samfélagið og sagði stjórnendur
sjávarútvegsfyrirtækja í þeim
hópi. „Kvótabrask og græðgi
hefur verið aðall greinarinnar,“
sagði Skúli.
Arnar, sem jafnframt er
formaður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, lítur hlutina öðrum
augum. „Það er eðlilegt að fyrir-
tæki vilji efla kvótastöðu sína og
slíkt leiðir til nauðsynlegrar hag-
ræðingar. En þegar menn vilja
hætta og fara í eitthvað annað er
ekkert við því að gera. Um þetta
var talsvert rætt fyrir fimm til
tíu árum en það er búið núna.“
- bþs
Formaður stjórnar samtaka lífeyrissjóða telur fjárfestingar sjóðanna standast kröfur um siðferði:
Lífeyrissjóðir stuðla ekki að atvinnuleysi
FINNLAND Finnar eru lítt hrifnir af
því að Vladimír Pútín verði áfram
leiðtogi Rússlands þegar kjörtíma-
bili hans sem
forseta Rússlands
lýkur. Margir
Finnar líta á
Rússland sem ógn
við Finnland.
Skoðanakönnun,
sem finnska
dagblaðið Helsing-
in Sanomat lét gera
í lok nóvember og
byrjun desember,
sýnir að innan við fjórðungur
aðspurðra vill að Pútín verði áfram
raunverulegur leiðtogi Rússlands.
Pútín lýsti því yfir í desember
að hann væri reiðubúinn í embætti
forsætisráðherra ef Dmitri
Medvedev næði kjöri sem forseti í
mars. - ghs
Finnsk skoðanakönnun:
Fáir Finnar
hrifnir af Pútín
VLADIMÍR
PÚTÍN
EINFÆTTUR Í HÁLOFTUM Meðlimur í
japönskum minningarsamtökum um
slökkviliðsmenn sýnir listir sínar þar
sem hann stendur á einum fæti efst
í háum bambusstiga í verslunarmið-
stöð. Er hann íklæddur búningi sem
slökkviliðsmenn notuðu á fyrri hluta 20.
aldarinnar. NORDICPHOTOS/AFP
INDLAND, AP Yfirvöld í einu af ríkj-
um Norður-Indlands hyggjast nýta
krafta atvinnulausra í að gelda
apa sem hafa hrellt íbúa undan-
farin ár. Ætlunin er að koma
þannig böndum á fjölgun apanna,
sem halda til í borgum í tug-
þúsundatali. Aparnir verða geltir
með leysigeisla.
Verkefnið er hugarfóstur
nýkjörins ríkisstjóra Himachal
Pradesh sem vill leysa tvö helstu
vandamál ríkisins – atvinnuleysi
og árásargjarna apa – samtímis.
Aðstoðarborgarstjórinn í Nýju-
Delí lést í lok október þegar hann
féll fram af svölum eftir árás
villtra apa. - sþs
Atvinnulausir á Norður-Indlandi:
Gelda villta apa
APAPLÁGA Gelda á indversku borgarapana með leysigeislum.
ARNAR SIGUR-
MUNDSSON
SKÚLI
THORODDSEN
SKATTABREYTINGAR Sorphirðu- og
sorpeyðingargjaldið hækkar hjá
öllum stærstu sveitarfélögum
landsins. Mest hækkar það að
krónutölu í Reykjavík og á Sel-
tjarnarnesi eða um fjögur þúsund
krónur í hvoru sveitarfélagi. Það
hækkar líka í Kópavogi, Hafnar-
firði, Garðabæ, Reykjanesbæ og á
Akureyri. Minnst hækkar það í
Mosfellsbæ og Garðabæ.
Sorphirðu- og sorpeyðingar-
gjaldið er hæst í Reykjanesbæ en
þar er það rétt tæpar 19 þúsund
krónur á íbúð. Í borginni er gjald-
ið 16.300 krónur á tunnuna á ári
frá áramótum en 8.150 ef tunnan
er græn. Gjaldið tvöfaldast ef
tunnurnar eru tvær. Sorphirðu-
gjaldið er þar með í hærri kantin-
um en það á að standa undir þjón-
ustunni og gerir það nú.
Kópavogsbúar og Akureyringar
greiða 14 þúsund krónur og Hafn-
firðingar 13 þúsund. Garðbæingar
greiða rúm 13 þúsund og Mosfell-
ingar 11.500 krónur.
„Sorphirðugjaldið er langt frá
því að standa undir rekstrarkostn-
aði við sorphirðuna,“ segir Karl
Guðmundsson, bæjarritari á Akur-
eyri. „Menn eru enn að greiða
þessa þjónustu niður. Með þessari
hækkun erum við farin að nálgast
það að gjaldið standi undir rekstr-
arkostnaði við sorphirðuna en það
standa enn út af nokkrar milljónir
sem við höfum ekki tekjur í. Þetta
er ástæðan fyrir því að menn eru
smám saman að hækka þetta
gjald.“
Á Akureyri kostar sorphirðan
rúmar 8.000 krónur á íbúa. Heild-
arkostnaðurinn er 138,8 milljónir
en sorphirðugjaldið skilar 120
milljónum króna. Inni í þessum
tölum er sorphreinsun og sorpeyð-
ing, reksturinn á sorphaugunum
og gámasvæði en ekki þjónusta
við fyrirtæki. Sorphirðugjaldið er
lagt á hverja íbúð á Akureyri, ekki
á tunnuna eins og í Reykjavík.
Hjörtur Zakaríasson, bæjarrit-
ari í Reykjanesbæ, segir að íbúar í
öllum sveitarfélögunum á Suður-
nesjum hafi sama sorphirðugjald-
ið, 18.900 krónur. Þjónustugjaldið
sé ákveðið hjá Sambandi sveitar-
félaga á Suðurnesjum sem sjái um
reksturinn á stöðinni. Gjaldið
standi undir rekstrinum og
þjónustan sé ekkert niðurgreidd.
Ástæðan fyrir miklum rekstrar-
kostnaði sé sú að sorpeyðingar-
stöðin hjá Kölku sé brennslustöð.
Guðjón E. Friðriksson, bæjar-
ritari í Garðabæ, segir að sorp-
hirðugjaldið hafi hækkað í sam-
ræmi við verðbólguna, eða um sex
prósent. Engin önnur vísindi séu
þar á bak við. ghs@frettabladid.is
Hækkar mest
úti á Nesi og
í Reykjavík
Sorphirðugjaldið hækkar í öllum stærstu sveitar-
félögum landsins. Mest hækkar það að krónutölu í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi eða um fjögur þúsund
krónur á hvorum stað.
HÆKKAR Á STÆRSTU STÖÐUNUM Sorphirðugjald hækkar í stærstu sveitarfélögum
landsins, sérstaklega er hækkunin þó mikil í Reykjavík og á Seltjarnarnesi eða um
heilar 4.000 krónur hvort sveitarfélag.
Safapressa
fyrir heilsuna og línurnar
Fæst með
berjapressu
Verð frá kr.: 23.500
Aðrir söluaðilar:
SORPHIRÐU- OG
EYÐINGARGJALD 2007
Gjaldið/krónur Hækkun/krónur
Reykjavík 16.300 4.000
Kópavogur 14.000 2.400
Hafnarfjörður 13.000 1.500
Garðabær 13.300 800
Reykjanesbær 18.900 1.600
Akureyri 12.650 1.150
Seltjarnarnes 14.000 4.000
Mosfellsbær 11.500 700