Fréttablaðið - 08.01.2008, Page 39
ÞRIÐJUDAGUR 8. janúar 2008 23
Hefðbundin útgáfa af plötu hljóm-
sveitarinnar Radiohead, In Rain-
bows, fór beint á toppinn á breska
vinsældalistanum
sína fyrstu viku á
lista. Platan var
gefin út á netinu
í október þar sem
aðdáendur gátu
ráðið hversu mikið
þeir borguðu fyrir
hana. Virðist
það ekki
hafa hægt
á sölunni
á þess-
ari nýju
útgáfu.
Fyrrverandi konungur poppsins,
Michael Jackson ætlar að koma
fram á þrjátíu tónleikum í O2-
tónleikahöllinni í London síðar á
þessu ári. Verða þeir hluti af fyrstu
tónleikaferð Jacksons um heiminn
í rúman áratug. Talið er að kappinn
fái í sinn hlut um
120 milljónir
króna fyrir
hverja tónleika
í London,
eða alls um
3,6 milljarða
króna. Prince
hélt 21 sinni
tónleika á
sama stað
í fyrra við
miklar vin-
sældir.
Nýjasta mynd Nicolas Cage,
National Treasure: Book of Secret,
hélt toppsæti sínu
yfir vinsæl-
ustu myndir
Bandaríkj-
anna. Myndin
hefur því setið
á toppnum
í þrjár vikur
sem hlýtur að
teljast viðunandi
árangur. Í öðru
sæti er hasarmynd
Will Smith, I Am
Legend, og í því
þriðja er unglinga-
myndin Juno.
Leikkonan Reese Witherspoon er
sú kvenkyns stjarna sem flestum
konum líkar við. Kemur þetta fram í
nýrri skoðanakönnun sem rúmlega
eitt þúsund konur
tóku þátt í. Í öðru
sæti lenti Jenni-
fer Aniston
og í því þriðja
varð Angelina
Jolie. Næst á
eftir komu
Jennifer
Lopez
og Katie
Hol-
mes. Á
hinum
endan-
um bar
Paris
Hilton
naumlega
sigurorð
af Britney
Spears sem
óvinsælasta
stjarnan.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Jennifer Aniston ku nú leita logandi ljósi
að mögulegum sæðisgjafa. Samkvæmt
heimildum Femalefirst vill leikkonan óð
og uppvæg eignast barn, og vill helst fá
sæði að gjöf frá einhverjum vina sinna.
Heimildarmaður sem þekkir leikkonuna
segir hana orðna mjög áhugasama um
að eignast barn, þar sem tíminn sé henni
ekki í hag, en Aniston er 38 ára gömul.
„Jen er að velta fyrir sér kostum
karlkyns vina sinna, til að gera svo
fljótlega upp við sig hver þeirra væri
bestur í hlutverk sæðisgjafa,“ segir
heimildarmaðurinn.
„Hún skoðar útlit, gáfur og per-
sónuleika þar sem hún vill falleg
og gáfuð börn til að fullkomna líf
sitt. Þegar hún er búin að ákveða
sig mun hún spyrja einhvern
steinhissa piparsvein, og útskýra
að hún vilji ekki hjónaband – bara
börn!“ segir heimildarmaðurinn.
Á sæðisgjafalista leikkonunnar eru bæði
Vince Vaughn og nýi kærastinn Jason Lewis,
að sögn heimildarmannsins. „Þó að Jen hafi
kannski orðið fráhverf hjónabandi eftir
skilnaðinn frá Brad Pitt langar hana ennþá
mjög mikið í fjölskyldu. Hún á fallegt hús
með tilbúnu barnaherbergi, milljónir í
bankanum og lista af ákjósanlegum
mönnum – og hún mun bráðum velja
einn til þess að verða faðir,“ segir
heimildarmaðurinn.
Aniston leitar að sæðisgjafa
ÓÐ Í BÖRN Jennifer Aniston ku nú
leita að sæðisgjafa á meðal vina
sinna. Hún vill eignast börn sem fyrst.
Leikarinn Tom Cruise er orðinn
næstæðstur innan Vísindakirkj-
unnar. Þetta kemur fram í vænt-
anlegri ævisögu Cruise, sem
breski rithöfundurinn Andrew
Morton skrifaði án samráðs við
stjörnuna. Hann hefur áður skrif-
að bækur um Díönu prinsessu og
Beckham-hjónin.
Í bókinni kemur fram að söfnuð-
urinn reiði sig svo mikið á frægð
Cruise til að breiða út boðskap
sinn að leikarinn sé nú talinn vera
næstur leiðtoganum David Misca-
vige. Einnig segir í bókinni að
kvikmyndaferill Cruise hafi verið
byggður upp í kringum trúar-
brögðin og að hann hafi valið
eiginkonu sína, Katie Holmes, með
tilliti til þess hvað hentaði
Vísindakirkjunni best.
Lögfræðingur Cruise er ósáttur
við ævisöguna og segir hana fulla
af rangfærslum.
Cruise næstæðstur
CRUISE OG HOLMES Leikarinn Tom
Cruise er orðinn næstæðstur innan
Vísindakirkjunnar samkvæmt bók
Andrews Morton.
mig vantar orðabók á netinu ...
núna !
hm ...
tic tic tic tic tic tic tic . tic tic
... auðvitað ! :-)