Tíminn - 12.07.1981, Síða 7
Sunnudagur 12. júli 1981
7
THE AWOROMEDA STRAIN ÍHEN
THEGREATTRAiN ROBBERY W
Michael Chrichton:
Congo.
Penguin 1981.
■ Það er enn að brjótast um i
mér hvor sannsögulegir við-
burðir liggi að baki þessari
bók. 1 formála er gefið i skyn
að hún sé byggð á för
amerisks leiðangurs til
Kongó-árdalsins i fótspor
Henry Morton Stanleys 1979.
Þar er m.a.s. söguhetjunum
þakkað framlag þeirra til bók-
arinnar eins og þær væru per-
sónur af holdi og blóði. Siðan
kemur einhver lygilegasta
saga sem um getur. Leiðang-
urinn heldur til Afriku á veg-
um háþróaðrar leitarmið-
stöðvar i Texas, ERTS, og er
siðan i stöðugu sambandi um
gervihnött þangað, likt og i
Bond-mynd. Flokkurinn á að
leita að demantauppsprettu,
týndum leiðangri, gömlum
rústum eftir frumbyggja-
menningu og einn leiðangurs-
manna er að viðra górilluna
sina sem kann fingramál. Þau
komast i kast við mannætur,
gjósandi eldfjöll, villta mann-
apa, flýja á lygilegan hátt
undan pigmýum i loftbelg.
Sumsé ævintýraleg bók með
sannsögulegu yfirbragði.
THE ADVENTURES
Ol-
SHERLOCK HOLMES
Sir Arthur Conan
Doyle:
The Adventures of
Sherlock Holmes.
Penguin 1981.
■ Auðvitað er engin ástæða
til að vera með málalengingar
um Conan Doyle og hugarfikju
hans, hinn dáða og röklynda
eiknaspæjara Sherlock Holm-
es og vin hans, hinn trúfasta
Watson. Sherlock hefur fyrir
löngu vaxið uppúr bókum Con-
an Doyles, hann er almanna-
eign, erkitýpa, tákn. Hér er
kilja frá Penguin með völdum
sögum af meistaranum sem
allir aðdáendur hanns þekkja
mæta vel, t.a.m. ,,A Scandal
in Bohemia”, „The Red-Head-
ed League”, og „The Blue
Carbuncle”, og fleiri góðar.
Það er gott að hugsa til þess að
Sherlock Holmes liggi á lausu
i ódýrum og handhægum út-
gáfum. Betri afþreyingu getur
vart. Conan Doyle tileinkaði
safn þetta gömlum kennara
sinum, Joseph Bell lækni i
Edinborg, sem einmitt er tal-
inn fyrirmyndin að Sherláki.
V.S.NAIPAUm
THE RETURN
OFEVAPERON
ivith THE KtUJSGStíi. THINIDA l)
'\V(;nrft ríuL síihcé -Uiotht-íl p«>cé»of
ri(pt>rti»p*' »íiU - (Mtmvar
V.S. Naipaul:
The Return of Eva
Perón.
Penguin 1981.
■ Um daginn fjölluðum við um
skáldsögu eftir Naipaul hér á
siðunni, „A Bend in the
River”, sem er siðar tilkomir^
en þessi bók en fyrr útgefin.
Naipaul er fyrst og siðast höf-
undur þriðja heimsins og
þeirra sem velta málefnum
hansfyrirsér. Hann er fæddur
á Trinidad af indverskum
uppruna og skrifar á ensku.
Vandkvæði þessa bakgarðs
heimsins eru honum efst i
huga hér eins og áður. Þetta
er safn greina um þjóðfélags
mál sem Naipaul kveðst hafa
skrifað til að fylla upp i tóma-
rúm á rithöfundarferli sinum
1972-75. Hæst ber grein um
svarta múslimaleiðtogan
Michael X — Abdul Malik —
sem var hengdur fyrir morð á
Trinidad 1975. Bókin fær nafn
sitt af grein um endurkomu
Perónismans til Argentinu á
siðasta áratug, að auki um
borgaraskæruliða þar og
Borges. Ennfremur greinar
urh Zaireundir stjórn Mobutus
og um Joseph Conrad og við-
kynningu höfundar við hann,
Conrad og Afriku.
■
Vladimir
Nabokov
Tyrants Destroyed
Vladimir Nabokov:
Tyrants Destroyed.
Penguin 1981.
■ Nabokov sem lést árið 1977
skrifaði skáldsögur á þremur
tungumálum, móðurmáli sinu
rússnesku, á frönsku og svo
flestar á ensku. Með þessu öðl-
aðist hann fágætt vald yfir
tungumálinu, gat meðhöndlað
það úr vissri fjarlægð, enda
var hann fyrst og fremst stil-
isti, meistari fágaðra vinnu-
bragða ogóvæntra uppákoma.
Nabokov var að mörgu leyti
rithöfundur fyrir rithöfunda.
Mörgum hverjum finnst hann
leiðinlegur, að hann velti sér
fullmikið uppúr óendanlegum
möguleikum tungunnar.. 1
þessu hefti eru 13 smásögur,
flestar hverjar skrifaðar á út-
legðarárum Nabokovs i
Evrópu 1924-39 á rússnesku.
Þetta eru útlagaraunir, ljóð-
rænar og skrifaðar af mildri
kaldhæðni. Nabokov, sem leit
á sig sem allsendis ópólitiskan
höfund, gerir lymskulega upp
sakirnar við harðstjóra —
Lenin sem yfirtók heimaland
hans, Stalin sem afskræmdi
það og Hitler sem eyðilagði
heittelskaða Evrópu.
B Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Bóka-
verslun Máls og menningar.
SUNNUDAGS
^■BLAÐIÐ
UÚOVIUINN
Alltaf
um
helgar
HVERNIG ER HE/LSAN?
— rætt við nokkra borgarbúa
AFGÖRÐUM
OG GRÓÐR/
Sævar og Hafsteinn svara
fyrispurnum lesenda
CC
§
a:
(N.
d
o
«0
1
Ólöf ríka
játar holdlegar
syndir sinar
Allir vilja
vatns-
þétt þök f
Kynntu þér úrvaliðaf Aquaseal
þakpappa. Mismunandi teg-
undir fyrir mismunandi að-
stæður.
Auk þess sérstök Aquaseal efni
fyrir sprungu- og holufyllingar
og gljúpafleti.
Rétt ráð gegn raka
OLÍUVERZLUN ÍSIANDS HF.
HAFNARSTRÆTI 5 ■ REYKJAVÍK
SÍMI 24220