Fréttablaðið - 24.02.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
SKOÐANAKÖNNUN 40,1 prósent segj-
ast nú myndu kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn og myndi flokkurinn
samkvæmt því fá 27 þingmenn
kjörna. Flokkurinn bætir við sig
þremur prósentustigum frá síð-
ustu könnun blaðsins sem gerð
var 29. janúar. Fylgi við Sjálfstæðis-
flokkinn virðist því vera að aukast
á ný eftir umræðu um stöðu flokks-
ins í Reykjavík.
Samfylkingin heldur fylgisaukn-
ingu síðasta mánaðar og segjast nú
35,2 prósent myndu kjósa flokkinn.
Samkvæmt því myndi hann fá 23
þingmenn.
Vinstri græn halda sínu, bæði frá
síðustu könnun sem og kosningum,
og segjast nú 14,2 prósent myndu
kjósa flokkinn, sem gæfi honum
níu þingmenn. Fyrir mánuði mæld-
ist fylgi flokksins 15,4 prósent.
Tveir flokkar hafa misst helm-
ing kjörfylgis síns; Framsóknar-
flokkur og Frjálslyndi flokkurinn.
Engin breyting er á fylgi Frjáls-
lynda flokksins frá síðustu könn-
un og segjast 3,8 prósent myndu
kjósa flokkinn nú, en 7,3 prósent
kusu flokkinn í kosningunum fyrir
ári síðan.
5,9 prósent segjast hins vegar
myndu kjósa Framsóknarflokk-
inn, sem er þremur prósentum
minna en fyrir mánuði, og fengi
flokkurinn fjóra þingmenn kjörna.
Í síðustu kosningum greiddu 11,7
prósent Framsóknarflokknum
atkvæði sitt.
Mikill meirihluti, eða 71,9 pró-
sent, segjast styðja ríkisstjórnina,
sem er mjög svipað hlutfall og
fyrir mánuði þegar 68,5 prósent
studdu ríkisstjórnina. - ss / sjá síðu 4
Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
24. febrúar 2008 — 54. tölublað — 8. árgangur
FY
LG
IR
Í
D
A
G
ALLA SUNNUDAGA
SÍÐUR
12
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
MARS 2008
+ FÓTBOLTAFERÐIR, FRANK GEHRY HÓTEL Í BARCELONA, MATARSKÓLI Í
MARRAKESH, LISTSÝNINGAR Í MARSMÁNUÐI OG WALLPAPER DESIGN AWARDS
HIPP & KÚL
HELSINKI
SLAVNESK MELANKÓLÍA MÆTIR SKANDINAVÍSKRI HÖNNUN
ET,
DREKK&VER
GLAÐUR!LEIÐARVÍSIR AÐ SPENNANDI VEITINGAHÚSUM, BÖRUM OG NÆTURKLÚBBUM Í LONDON, PARÍS, NEW YORK OG STOKKHÓLMI
Á FERÐ & FLUGI
LJÓSMYNDARINN PÁLL STEFÁNSSON MEÐ SÝNINGU FRÁ FERÐUMSÍNUM UM HEIMINN
VEÐRIÐ Í DAG
28
Sjálfstæðisflokkur
bætir við sig fylgi
Fylgi Sjálfstæðisflokks virðist vera að jafna sig eftir að fylgi hans dalaði veru-
lega í síðasta mánuði. Samfylking heldur í fylgisaukningu frá síðasta mánuði.
FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKA
Hvaða lista myndir þú kjósa ef boðað
yrði til kosninga nú?
25
4
18
9
K
O
SN
IN
G
A
R
K
O
SN
.
K
O
SN
IN
G
A
R
K
O
SN
IN
G
A
R
B D F S V
5,9% 40,1% 3,8% 35,2% 14,2%
4
23
9
27
0
Skoðanakönnun Frétta-
blaðsins 23. feb. – fjöldi
þingmanna og fylgi (%)
K
O
SN
IN
G
A
R
7
BARNAVERND Breiðavíkurnefnd
leggur fram tillögur að úrbótum í
barnaverndarmálum samtímans í
nýbirtri skýrslu um starfsemi
Breiðavíkur. Meðal annars er lagt
til að settar verði takmarkanir á
fjölda barnaverndarmála sem
hver sérfræðingur hefur til
umfjöllunar.
Á síðasta ári bárust barna-
verndar yfirvöldum yfir átta
þúsund tilkynningar. Fjöldi
barna verndarmála hefur tvöfaldast
á síðustu fimm árum án þess að
starfsmönnum hafi fjölgað í
samræmi við það. Álag á hvern
starfsmann hefur því stóraukist, að
sögn forstjóra Barnaverndarstofu.
Breiðavíkurnefndin leggur til að
sveitar félög tryggi framboð af
stuðningsúrræðum til að styrkja
börn og fjölskyldur þeirra svo
komast megi hjá vistun utan
heimilis. Sé tekin ákvörðun um að
vista barn utan heimilis megi að
mati nefndarinnar styrkja
núgildandi eftirlitskerfi.
- kdk / sjá síðu 8
Breiðavíkurnefnd og samtími:
Átta þúsund
barnaverndar-
mál síðasta ár
Da Silva illa meiddur
Eduardo da Silva hjá Arsenal verður frá langt fram á árið hið minnsta eftir
að hafa fótbrotnað mjög illa eftir hrottalega áras í leik gegn Birmingham.
-2-3
-2
-1
0
Hægviðri um allt land - Í dag
verður frost víða um land en
úrkomulítið, sérstaklega á Norður-
og Austurlandi. Smá éljagangur
sunnan- og vestanlands. Hægur
vindur víðast hvar.
VEÐUR 4
LJÓSMYNDUN Ljósmyndarar Fréttablaðsins,
Valgarður Gíslason og Vilhelm Gunnarsson,
voru á meðal þeirra sem fengu verðlaun
fyrir ljósmyndir ársins við opnun sýningar
blaðaljósmyndara í Gerðarsafni í gær.
Valgarður var verðlaunaður fyrir por-
trettmynd ársins en Vilhelm fyrir bestu
myndina í flokknum Daglegt líf. Eggert
Jóhannesson átti mynd ársins sem hann tók
af Gunnari Birgissyni, bæjarstjóra í Kópa-
vogi, þegar hann hélt upp á sextugsafmæli
sitt í september í Glaðheimum, reiðhöll
Gusts í Kópavogi.
Júlíus Sigurjónsson hlaut tvenn verðlaun
og þeir Hörður Sveinsson, Kristinn Magnús-
son, Eyþór Árnason og Brynjar Gunnars-
son ein hver. - fb / sjá nánar bls. 20
Tveir ljósmyndarar Fréttablaðsins hlutu ljósmyndaverðlaun í Gerðarsafni í gær:
Valli og Vilhelm verðlaunaðir
MYND ÁRSINS Eggert Jóhannesson tók
mynd ársins af Gunnari Birgissyni.
MAMMA HUGGAR
MIG ÞÁ BARA
Benedikt Erlingsson og
Brynja Benediktsdóttir
ræða sambandið og
samstarfið.
VIÐTAL 18
SÖNGVAKEPPNI Lagið Fullkomið líf
sigraði í undankeppni Evrópu-
söngvakeppninnar sem fram fór í
gær. Keppnin var sýnd í Sjón-
varpinu.
Flytjendur lagsins eru Regína
Ósk og Friðrik Ómar en höfundur
þess er Örlygur Smári.
Í öðru sæti var lagið Ho Ho Ho
We Say Hey Hey Hey eftir Barða
Jóhannsson í flutningi Merzedes
Club en í þriðja sæti hafnaði
Hvar ertu nú? eftir Dr. Gunna
sem hljómsveitin Dr. Spock flutti.
Það er því ljóst að Íslendingar
bjóða upp á dynjandi evrópopp í
undankeppni Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöða sem
fram fer í Belgrad í Serbíu 22.
maí. - kdk
Úrslit Laugardagslaganna:
Fullkomið líf
fer til Serbíu
SIGURVEGARINN Lagið Fullkomið líf bar sigur úr býtum í undankeppni Evrópusöngvakeppninnar í gær og verður þar af leiðandi
fulltrúi Íslands í lokakeppninni sem fram fer í Serbíu í maí. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL