Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 76
24 24. febrúar 2008 SUNNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Vá! Hvað
er þetta?
Ég veit
það vel.
Hún stjórnar
þættinum
„Góðan dag-
inn, Ísland!“
Hún er
sjónvarps-
stjarna!
Palli, mér þykir leitt
að þurfa að segja þér
þetta, en þú átt ekki
séns í Sesselju Fróða!
Takk... Ég
reyni!
En þetta
bragðast meira
að segja betur!
Þú ert góð!
Því skal
ég trúa!
Jú, jú... Gömlu pitsu-
sneiðarnar sem ég
finn stundum aftast
í ísskápnum eru
yfirleitt grænar!
Og við hittum
meira að segja
á nokkra fæðu-
flokka með
þessu! Ertu ekki
vanur að borða
svolítið grænt?
Ja hér!
Ég hefði
aldrei
trúað því
að græn-
meti gæti
bragðast
svona vel!
Wokað
grænmeti með
núðlum!
Hún tilheyrir
ekki einu sinni
sömu tegund
og mamma!
Hún er á
sama aldri
og mamma
þín!
Ég horfi
oft á það. Passaðu
þig nú!
Ooo - gætirðu
fundið hana fyrir
mig?
Ég var að lesa
rosa goða
uppskrift
að mjólk og
kökum.
Flott hjá þér. Hún er
akkúrat þar sem þú vilt
hafa hana.
Ekkert mál, ég
merkti síðuna.
Undanfarið hafa
margir pistlahöf-
undar í flestum
blöðum keppst
við að segja skoð-
anir sínar á Val-
entínusardeginum
sem hefur verið
gerður að holdgerv-
ingi bandarísks kap-
ítalisma. Það þykir greinilega ekki
töff á meðal pistlahöfunda að
halda þann dag hátíðlegan. Ég er
svo sem ekkert öðruvísi í þeim
efnum, hef aldrei séð nokkra
ástæðu til að fagna þeim degi. Að
miklu leyti er ég sammála mörg-
um þeirra sem hafa tjáð sig um
þennan dag ástarinnar. Það á svo
sem ekkert að vera einhver einn
dagur þar sem haldið er upp á ást-
ina − hún er nú frekar þess eðlis
að haldið sé upp á hana á hverjum
einasta degi.
Svo eru samt sumir sem þurfa
bara svona daga til þess að minna
sig á að vera góðir við konur eða
menn. Þá finnst mér gáfulegra að
halda í gamlar íslenskar hefðir í
þessum málum. Dæmi um þær
eru auðvitað bóndadagurinn og
konudagurinn, sem er í dag. Gaml-
ir og góðir íslenskir dagar þar sem
bæði kynin fá sinn dag. Og það er
enn betra að þeir dagar eru ekki
afmarkaðir bara fyrir ástfangna,
eins og umræddur Valentínusar-
dagur. Það er til dæmis hverjum
sem er velkomið að óska mér til
hamingju með daginn í dag.
En það eru fleiri dagar sem væri
hægt að halda hátíðlega í þessu
samhengi. Af hverju auglýsa til
dæmis blómabúðir og veitinga-
staðir aldrei neitt fyrir kvenrétt-
indadaginn 19. júní eða kvennafrí-
daginn 24. október? Það væri
svolítið gaman að fá blóm með
hamingjuóskum á kvenréttinda-
daginn. Þannig væri hægt að fagna
því hversu lengi konur á Íslandi
hafa haft kosningarétt en minnast
þess um leið að því er ekki eins
farið alls staðar. Svo myndi ég
alveg vilja fara út að borða á
kvennafrídaginn. Ég myndi samt
ekkert vilja láta bjóða mér heldur
myndi ég borga sjálf. Þannig gæti
ég fagnað því að ég er sjálfstæð og
vinnandi. Það er nógu að fagna.
STUÐ MILLI STRÍÐA Fleiri og fjölbreyttari hátíðisdagar
ÞÓRUNN ELÍSABET BOGADÓTTIR VILL HALDA FLEIRI KONUDAGA
Þú veist ekki hvað
það er erfitt að
raka sig þegar
maður hefur enga
spegilmynd!
er íbúð með aðgengi að vinnuaðstöðu, sem ætluð er til dvalar
fyrir íslenska listamenn. Stofan er í eigu Reykjavíkurborgar,
menntamálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands og er stað-
sett í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni.
Þeir sem í stofunni dvelja greiða dvalargjöld sem ákveðin eru
af stjórn Cité Internationale des Arts er rekur stofuna, ásamt
fl eiri listamannaíbúðum og miðast við kostnað af rekstri hen-
nar. Þessi gjöld eru lægri en almenn leiga í París og á árinu
2008 verða þau 330 evrur á mánuði fyrir einstakling en 420
evrur á mánuði fyrir tvo. Úthlutun er lágmark tveir mánuðir í
senn skv. reglum Cité en vegna fjölda umsókna undanfarin ár
hefur dvalartími að jafnaði verið 2 mánuðir.
Dvalargestir skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité Internation-
ale des Arts varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu, þ.á
m. er ætlast til að þeir nýti stofuna allan úthlutunartíma sinn.
Hér með auglýst eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu
tímabilið 1. ágúst 2008 til 31. júlí 2009.
Umsóknareyðublöð fást á Rafrænni Reykjavík á
www.reykjavik.is og á vef Menningar- og ferðamálasviðs,
www.reykjavik.is/menningogferdamal. Einnig má nálgast
umsóknareyðublöð, ásamt reglum sem gilda um afnot af
Kjarvalsstofu, í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Umsóknir skulu stílaðar á stjórnarnefnd Kjarvalsstofu,
Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Ingólfsnausti
- Vesturgötu 1, 101 Reykjavík.
Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að koma til greina
við þessa úthlutun.
Umsóknir skulu berast í síðasta lagi þriðjudaginn
25. mars 2008.
Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu
KJARVALSSTOFA Í PARÍS
27. febrúar
28. febrúar
2.mars