Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 6
6 24. febrúar 2008 SUNNUDAGUR Ferðaskrifstofa RÍKISFJÁRMÁL Fjármálaráðherra hefur ekkert undanfæri í deilum sínum við Impregilo og ætti að gera dómsátt sem fyrst til að losna við gífurlegar dráttarvaxta- greiðslur á kostnað skattgreið- enda, að mati Steingríms J. Sig- fússonar, formanns VG. Á fimmtudag var greint frá því í Fréttablaðinu að dráttur á greiðslu skuldar vegna ofgreiddra skatta, frá ríkinu til Impregilo, kostaði rúma milljón króna í vexti á degi hverjum. Hæstiréttur dæmdi ríkið til að greiða 1,2 milljarða í sept- ember og er skuldin nú komin í 1,5 milljarða. Impregilo hefur stefnt ríkinu til að greiða upphæðina. Steingrímur rifjar upp að hann hafi í áraraðir bent á og spurt um ástand skatta- og fjármála við Kárahnjúka. „Og þau dásamlegu svör eru öll skjalfest í þingtíðind- um. Fjármálaráðherra hélt því fram að á Kárahnjúkum væru engin sérstök vandamál umfram það sem vænta mætti! Síðan hefur komið í ljós að þar hefur allt verið í þvílíkum ólestri,“ segir Stein- grímur. Gerð hafi verið mikil mis- tök og í raun sé um hneyksli að ræða. Steingrímur kveður byggingu Kárahnjúkavirkjunar skólabókar- dæmi um hvernig eigi ekki að framkvæma hlutina. - kóþ Steingrímur J. hefur lengi bent á að skattamál við Kárahnjúka væru í ólagi: Sættist og losnið við vextina STEINGRÍMUR JÓHANN SIGFÚSSON Segir fjármálaráðherra hafa haldið því fram opinberlega í áraraðir að engin sérstök vandamál væru á Kárahnjúkum. Annað hafi komið á daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Einn ökumaður var tekinn í Reykjanesbæ grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna á föstudagskvöld. Þá fannst lítilræði af meintum kannabisefnum og tæki til fíkniefnaneyslu í bifreiðinni. Voru fjórir farþegar einnig handteknir og fluttir á lögreglu- stöð til yfirheyrslu. Þeim var öllum sleppt að lokinni yfir- heyrslu. Að auki var einn ökumaður kærður fyrir að virða ekki stöðunarskyldu í bænum, auk þess sem ökumaður var tekinn fyrir of hraðan akstur á Reykja- nesbrautinni. - fb Fimm teknir í Reykjanesbæ: Kannabisefni og tæki fundust TYRKLAND, AP Tveir tyrkneskir her- menn og að minnsta kosti 35 liðs- menn PKK, aðskilnaðarsamstaka Kúrda, féllu í bardögum í norður- hluta Íraks í gær. Samkvæmt tyrk- neska hernum hafa sjö hermenn og að minnsta kosti 79 uppreisnar- menn dáið síðan Tyrkir gerðu inn- rás í Írak seint á fimmtudag. Íraskir og kúrdískir ráðamenn hafa lýst yfir óánægju sinni með innrásina. Ali al-Dabbagh, tals- maður Íraksstjórnar, sagðist skilja að samtökin, sem hafa barist fyrir sjálfstæði Kúrda í fjölda ára, ógn- uðu Tyrkjum en gagnrýndi samt ákvörðun Tyrkja. „Hernaðar- aðgerðir munu ekki leysa vanda- málið. Tyrkir hafa áður gripið til vopna og það hefur aldrei leitt gott af sér,“ sagði hann. Sjónvarpsstöð í Tyrklandi hélt því fram að tíu þúsund hermenn taki þátt í innrásinni, en aðrar heimildir segja að einungis hluti þess liðs hafi verið notaður. Áður en landherinn hélt yfir landamærin voru gerðar loftárásir og flugskeytaárásir á skæruliða PKK í Írak. Evrópusambandið hvetur Tyrki til að halda aðgerðum sínum í hófi. „Við skiljum þörf Tyrkja fyrir að vernda íbúa landsins fyrir hryðju- verkum,“ sagði Krisztina Nagy, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, en sagði að Tyrkir ættu samt að „forðast óhóf- legar hernaðaraðgerðir og bera virðingu fyrir mannréttindum og reglum réttarríkisins.“ Á fimmtudaginn ræddi Abdullah Gül, forseti Tyrklands, við Jalal Talabani, forseta Íraks, og skýrði honum frá markmiðum innrásar- innar. Gül bauð Talabani einnig í heimsókn til Tyrklands. - gb Innrás tyrkneska hersins í norðurhluta Íraks tekur sinn toll: 79 Kúrdar hafa fallið í átökum TYRKNESKIR HERMENN Tyrkneski herinn hefur ráðist gegn aðskilnaðarsamtökum Kúrda í norðanverðu Írak. Á ríkið að greiða Breiðavíkur- drengjunum skaðabætur? Já 80,7% Nei 19,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú búinn að panta utan- landsferð í sumarfríinu? Segðu þína skoðun á visir.is SJÁVARÚTVEGUR Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum krefjast þess að skip Hafrann- sóknastofnunar haldi þegar af stað til loðnumælinga. Sjómenn í Eyjum segjast sjá mikla loðnu og hún virðist farin að þétta sig. „Menn eru enn að halda í þá von að veiðar verði leyfðar að nýju. Í það minnsta þannig að það sé hægt að halda lágmarksumsvifum í gangi,“ segir Elliði Vignisson, bæjar stjóri í Vestmannaeyjum. „Það eru allir að vona og ég held að flestir hinkri við bryggju í bili,“ segir Guðmundur Huginn Guð- mundsson, skipstjóri á Hugin VE. Hann segir sjómenn binda vonir við að loðnumælingar haldi áfram eftir helgi og veiðar geti hafist á ný. „Ástandið á miðunum er síst verra en undanfarin fjögur eða fimm ár,“ segir Guðmundur. Hann segir hvern dag skipta máli, enda loðnan á leið vestur til að hrygna. „Loðnan bíður ekkert, það verður að grípa gæsina á meðan hún gefst.“ Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í Eyjum boðuðu til fundar í gær til að ræða ástandið í loðnuveiðum. Þungt hljóð var í fundarmönnum, segir Elliði. Á fundinum lýstu sjómenn því að þeir teldu meira af loðnu á mið- unum nú en undanfarin þrjú ár, segir Elliði. Þá hafi þeir lýst áhyggjum af þeirri gjá sem virðist milli mælinga Hafrannsókna- stofnunar og upplifunar sjó- manna. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum er ríkisstjórnin hvött til þess að bæta fiskvinnslufólki tekjutap og fjárfesta í starfs- og endurmenntun starfsfólks í fisk- vinnslu. Fundarmenn töldu afar mikil- vægt að gefinn yrði út lágmarks- loðnukvóti á hvert skip sem alltaf megi veiða. Við það bætist breyti- legur kvóti byggður á mælingum. Þetta segir Elliði að myndi gera útgerðum kleyft að halda áfram úti lágmarksstarfsemi þótt illa áraði. Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra var væntanlegur á fund Eyjamanna í gær en komst ekki þar sem ófært var til Eyja. Hann mun vera væntanlegur á morgun til að ræða við hagsmuna aðila í sjávar- útvegi. brjann@frettabladid.is Loðnan farin að þétta sig við Eyjar Sjómenn í Vestmannaeyjum segja loðnu um allan sjó. Þeir gagnrýna að skip Hafrannsóknastofnunar séu bundin við bryggju og vilja fá þau aftur til loðnu- mælinga strax. Forstjóri stofnunarinnar segir skip fara til mælinga strax í dag. Árni Friðriksson, rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunarinnar, mun leggja úr höfn um hádegi í dag ef áætlanir ganga eftir og halda áfram loðnuleit, segir Jóhann Sigurjóns- son, forstjóri stofnunarinnar. Bjarni Sæmundsson mun í kjölfarið fara vestur fyrir landið og leita loðnu áður en hann tekur þátt í togararalli. „Það er engin ástæða til þess að gera því skóna að miklar líkur séu á því að það verði stórkostleg breyting á,“ segir Jóhann. „En það er þrátt fyrir það alveg jafn mikilvægt að fylgja þessu eftir og vera því viðbúinn að mæla eitthvað ef menn verða varir við eitthvað nýtt og meira.“ Jóhann segist ekki gera lítið úr því að mikil loðna finnist á ákveðnum svæðum en við vinnu sína verði stofnunini að notast við heildarmat á stærð loðnustofnsins á hverjum tíma og gildandi langtímanýtingar- stefnu. LOÐNULEIT HALDIÐ ÁFRAM Í DAG FR ÉTTA B LA Ð IÐ /Ó SK A R LOÐNUTORFA Guðmundur Huginn Guðmundsson sýnir mælingu á loðnutorfu sem tekin var rétt austan við Ingólfshöfða á miðvikudag. Torfan var afar þétt og talsvert stærri en Heimaey miðað við mælinguna. KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.