Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 2
2 24. febrúar 2008 SUNNUDAGUR Nóatúns bayonneskinkaNóatún mælir með 835 kr.kg. noatun.is LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ Gott á sunnudegi 50% afsláttur SLYS Þrír voru fluttir á slysadeild eftir að bíll lenti á ljósastaur við gatnamót Kringlumýrabrautar og Listabrautar laust fyrir klukkan eitt í fyrrinótt. Farþegi í aftur- sæti bílsins sem var ekki í bílbelti slasaðist meira en hinir. Slysið vildi þannig til að bílinn ók norður eftir Kringlumýrabraut og hugðist bílstjórinn stöðva bílinn þegar hann nálgaðist gatnamótin enda logaði rautt ljós og tveir bílar þar kyrrstæðir. Við það rann bíllinn í hálku, sveigði frá og lenti á ljósastaurnum. Ökumaður bílsins var sautján ára piltur og voru farþegarnir á svipuðu reki. - fb Þrír fluttir á slysadeild: Á ljósastaur á rauðu ljósi STJÓRNMÁL Í ályktun sem samþykkt var á flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í gær segir að brýnt sé að stöðva álversáform á Bakka og í Helguvík í ljósi skuldbindinga Íslendinga í loftslagsmálum. Sex ályktanir voru samþykktar á fundinum. Í ályktun um heilbrigðisþjón- ustu eru landsmenn hvattir til þess að „hrinda atlögu ríkis- stjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að almannaþjón- ustunni“ og áform um einkavæð- ingu eru sögð „alvarlegt tilræði við velferðarþjóðfélagið“. Þá lýsti fundurinn þungum áhyggjum af stöðu efnahags- mála. - þo Flokksráðsfundur VG: Brýnt að stöðva álversáform KATRÍN JAKOBSDÓTTIR SVEITARSTJÓRNIR Björn Ingi Hrafns- son, sem sagði af sér sem borgar- fulltrúi Framsóknarflokks á dög- unum, var á fimmtudagskvöld kvaddur með hófi í Höfða. Yfir áttatíu manns voru á gesta- lista Ólafs F. Magnússonar borgar- stjóra sem stóð fyrir kveðjuhóf- inu. Regína Ásvaldsdóttir, skrif stofustjóri borgarstjóra, segir að við pöntun á veisluföng- um hafi þó ekki verið gert ráð fyrir að nema um sextíu manns myndu mæta. Á listanum voru meðal annars átján framsóknarmenn sem sitja í nefndum borgarinnar, borgarfull- trúar og varaborgarfulltrúar, nokkrir fyrrverandi borgarfull- trúar, tíu af nánustu samstarfs- mönnum úr Ráðhúsinu, nítján embættismenn og nokkrir fulltrú- ar frá Faxaflóahöfnum, íþrótta- og tómstundaráði og Orkuveitu Reykjavíkur. Björn Ingi sjálfur og eiginkona hans voru vitanlega heiðursgestir. Að sögn Regínu var um að ræða mótttöku milli klukkan fimm og sjö. Hún segir borgina sjálfa hafa annast víninnkaup en að maturinn hafi verið keyptur frá Múlakaffi eftir að tilboða hafi verið aflað. Segir hún heildarkostnað ekki liggja fyrir á þessu stigi en telur öruggt að veitingarnar og aðkeypt þjónustufólk hafi ekki kostað meira en 200 þúsund krónur. Á matseðlinum var meðal ann- ars grillaður humar, hægeldaður lax, eldgrillaður nautavöðvi og kóngarækjur. Einnig portóbello- sveppir og geitaostur. Þessu gátu gestir skolað niður með rauðvíni, hvítvíni og bjór auk óáfengra drykkja sem Regína segir marga einmitt hafa nýtt sér. Venja mun vera að kveðja með þessum hætti borgarfulltrúa sem gegna ábyrgðarstöðum og hætta áður en kjörtímabili lýkur. Regína segir það til dæmis hafa gilt um Árna Þór Sigurðsson, borgarfull- trúa VG og fyrrverandi forseta borgarstjórnar, og Steinunni Val- dísi Óskarsdóttur, fyrrverandi borgarstjóra úr Samfylkingunni. Þess má geta að fjölmiðlum var neitað um aðgang að kveðjuboðinu fyrir Björn Inga þar sem um einkasamkvæmi væri að ræða. gar@frettabladid.is Kvaddur með veislu í boði Reykvíkinga Borgarstjóri bauð yfir áttatíu gestum í kveðjuveislu fyrir Björn Inga Hrafnsson í Höfða á fimmtudagskvöldið. Meðal annars var boðið upp á humar og nautafilé og vín og bjór. Heildarkostnaður er sagður nema um 200 þúsund krónum. HÖFÐI Reykjavíkurborg heldur iðulega hóf í Höfða. BJÖRN INGI HRAFNSSON Sagði af sér sem borgarfulltrúi eftir tæplega hálft kjörtímabil. MATSEÐILLINN Boðið var upp á ýmsa smárétti í kveðjuhófinu. Ók út af í Langadal Fólksbíl var ekið út af í Langadal um hádegisbilið í gær. Einn farþegi var í bílnum og slasaðist hvorki hann né ökumaðurinn, sem var piltur innan við tvítugt. Bíllinn var ekki illa farinn. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi var bílnum ekið of hratt miðað við aðstæður, hálkublettir voru á vegin- um. FLUGSLYS Skipulagðri leit að bandarískri Piper Cherokee- flugvél sem hefur verið leitað frá því á fimmtudag var hætt í gær, enda veður búið að vera ákaflega vont á svæðinu. Einn maður var um borð í vélinni. Leitarsvæðið var afmarkað eftir útreikningum sérstaks leitarfor- rits sem tekur mið af áætluðum lendingarstað vélarinnar á sjónum og mögulegu reki. Eftirgrennslan heldur áfram og hefur þeim tilmælum verið beint til skipa sem leið eiga um svæðið að þau litist um eftir hverju því sem bent gæti til afdrifa vélar- innar og flugmannsins. - fb Bandarísk flugvél í sjóinn: Skipulagðri leit hætt í gær Árekstur við Eyrarbakka Fjórir slösuðust lítillega þegar tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt skullu saman við Eyrarbakka rétt eftir miðnætti í fyrrinótt. Ökumenn beggja bílanna voru undir tvítugu. Þá var einn maður á þrítugsaldri handtek- inn á Suðurlandsvegi í gærmorgun grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. LÖGREGLUFRÉTTIR Bubbi, ertu ekki fullur sektar- kenndar? „Sekur.“ Nokkrir gestir á tónleikum sem Bubbi Morthens stóð fyrir á miðvikudagskvöld voru sektaðir fyrir að leggja bílum sínum ólöglega fyrir utan Austurbæ. LÖGREGLUMÁL Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu lagði hald á rúmlega hundrað e-töflur, 250 grömm af maríjúana og 50 grömm af mjög hreinu amfetamíni í fyrrakvöld og fyrrinótt við hefðbundið eftirlit með smásölum fíkniefna í miðborg Reykjavíkur. Grunur leikur á að efnin hafi verið ætluð til sölu. Auk þessa hafði lögregla afskipti af á annan tug manna sem voru með neysluskammta af fíkniefnum í fórum sínum. Allt voru þetta karlmenn á þrítugsaldri. Þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöð en sleppt að loknum yfirheyrslum. - jss Eftirlit í miðborginni: Mikið magn fíkniefna tekið Ók undir áhrifum fíkniefna Nítján ára gamall piltur var hand- tekinn á Glerárgötu á Akureyri í gærmorgun grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ekið var á kyrrstæðan bíl á Norðurgötu en engin slys urðu á fólki. LÖGREGLUFRÉTTIR STJÓRNMÁL Flest bendir til þess að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson muni kynna ákvörðun sína um framtíð hans innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í dag. Í gærkvöldi hafði ekki verið boðaður fundur hjá borgar- stjórnarflokknum, en upphaflega stóð til að hann færi fram fyrir hádegi í dag. Heimildarmenn telja að af fundinum verði síðar í dag. Vaxandi þrýstingur hefur verið frá hverfafélögum og frá félags- mönnum um að Vilhjálmur taki ekki við borgarstjóraembættinu eftir ár. Er þar bæði litið til frétta af lóðabraski manna tengdra Vil- hjálmi og eins til bréfs sem væntan- legt er frá umboðsmanni Alþingis eftir helgi. Í dag er vika frá því að Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði í Silfri Egils að Vilhjálmur hefði um eina viku til að taka ákvörðun. Geir hefur undanfarið rætt við fjölmarga borgar- og varaborgar- fulltrúa flokksins. Heimildir herma að þar hafi hann sagt að á meðan borgarfulltrúarnir lýstu yfir stuðningi við Vilhjálm, eins og þeir hafa gert, geti hann ekki gripið inn í atburðarásina. Ekki náðist í Vilhjálm í gær. Hanna Birna Kristjánsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson, sem skipa annað og þriðja sætið á lista sjálfstæðismanna, vildu ekki tjá sig um málið í gær. - bj / th Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, liggur enn undir feldi: Líklegt að niðurstaðan komi í dag UMHUGSUN Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þarf að gera það upp við sig hvort hann hyggist halda fast við að verða borgar- stjóri að ári liðnu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LÖGREGLUMÁL „Áhrif svona langrar einangrunar- vistar geta verið margvísleg, stundum mjög slæm,“ segir Þórarinn V. Hjaltason, sálfræðingur Fangelsis- málastofnunar, um mál Íslendingsins sem vistaður hefur verið í einangrun í Færeyjum í fjóra mánuði vegna Pólstjörnumálsins. Maðurinn var handtekinn 18. september og þá úrskurðaður í gæsluvarðhald og settur í einangrun. Í október var einangruninni aflétt og maðurinn var í opinni gæslu en um lok þess mánaðar var hann aftur settur í einangrun og er þar enn. Þórarinn segir að frá því hann hóf störf hjá Fangelsismálastofnun árið 2002 muni hann ekki eftir að fangi hafi verið vistaður svo lengi í einangrun hér á landi. „Lengsta vist sem ég man eftir hér landi á hin síðari ár er einn og hálfur mánuður en hér erum við líka mjög passasöm á svona hluti,“ segir Þórarinn. Þá bendir hann á að sálfræðingar hér séu mjög vakandi fyrir líðan einangrunarfanga og að lögregla taki tillit til óska sálfræðinga og reyni að flýta rannsókn ef líðan fanga versnar. Þess má geta að Einar Bollason sat saklaus í einangrun í yfir þrjá mánuði við rannsókn Guð- mundar- og Geirfinnsmálsins, eða í 104 daga. Lýsti hann því síðar að í lok vistarinnar hefði hann verið farinn að efast um sakleysi sitt en ofskynjanir eru meðal algengra afleiðinga langrar einangrunar. Íslendingurinn í Færeyjum hefur nú verið í einangr- un í um 120 daga. Gæsluvarðhaldsvist hans rennur út 7. mars, að sögn saksóknara, en þá verður maðurinn leiddur fyrir dómara á nýjan leik. Málsmeðferð fyrir dómi hefst 7. apríl og gæti hann átti yfir höfði sér tíu ára fangelsisdóm. - kdk Íslendingur hefur nú verið í einangrun í Færeyjum í um 120 daga: Áhrif einangrunarinnar afar skaðleg FÆREYJAR Íslenskur maður hefur nú setið í einangrun í um 120 daga í Færeyjum eða fjóra mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐMUNDUR SIGURÐSSON SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.