Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 26
8 FERÐALÖG
LONDON
BORÐAÐ…
Lounge Lover
1 WHITBY STREET, LONDON, E2
7DP
+44 (0) 207 012 1234
Ótrúlega svalur veitingastaður og
bar (svo svalur að sjálf Madonna
hélt upp á afmælið sitt þar fyrir
nokkru) í hjarta Austur-London.
Dýrindis matur er borinn fram í
kínverskum „takeout“-boxum. (Við
fengum okkur rækjur og litla kjöt-
bita í boxi og kampavín). Umhverfið
er skemmtileg blanda af lúxus og
hrárri götustemningu en gestir sitja
ýmist í djúpum rauðum flauelssóf-
um, dyngjum og antíkhúsgögnum
og allt er í bland – kristalsljósakrón-
ur og járnborð. Ekki svo dýr matur
en ljúffengur er hann.
Texture Restaurant
34 PORTMAN STREET, LONDON,
W1H 7BY
+44 (0) 207 224 0028
Það er eiginlega skylda hvers
Íslendings að heimsækja þennan
besta nýja veitingastað ársins 2007
(að mati Independent) þar sem
kokkurinn er Íslandsbarn, Agnar
Sverrisson, en staðurinn er hug-
arfóstur hans og Frakkans Xavier.
Matreiðsla Agnars hefur verið
rómuð af matargagnrýnendum í
blöðum allt síðasta ár og umhverf-
ið er stórkostlega fagurt, fágað
og klassískt en þeir sem sækja
staðinn segja að það sé ekki síður
þess virði að fara þangað vegna
kampavínsbarsins. Þar er að finna
mikið úrval kampavíns – 88 teg-
undir. Evrópskur matur og ýmislegt
óvænt íslenskt dúkkar upp – eins
og kartöfluflögur úr þorskroði og
Erró á veggjum.
Amaya
HALKIN ARCADE, MOTCOMB
STREET, LONDON, SW1X 8JT
+44 (0) 207 823 1166
Þessi indverski veitingastaður sem
var opnaður fyrir um einu og hálfu
ári þykir bjóða upp á svo góðan
mat að einn matargagnrýnandinn
sagði að það tæki nokkra daga að
hætta að hugsa um matinn. Ekki
eru það þó síður innréttingarnar
sem henta sælkeranum en matar-
lystin á einnig hreinlega að aukast
í umhverfi Amaya segja matar-
skríbentar. Borðin eru úr rósaviði,
ítalskt leður á stólum, klassískir
hlutir í bland við aðra framandi
og óvænta, svo sem indverska
nútímalist. Eldhúsið er opið og þar
má sjá flottustu indversku mat-
reiðsluaðferðirnar fyrr og síðar. Lýs-
ingin á staðnum þykir afar falleg.
Á daginn fær dagsbirtan að njóta
sín í gegnum glerþak staðarins og
á kvöldin er afar skemmtileg og
dramatísk lýsing framkölluð með
sérstaklega fallegum ljósakrónum.
DRUKKIÐ…
The Club Bar and Dining
21 WARWICK STREET, SOHO,
LONDON, W1B 5NF
+44 (0) 207 734 1002
Margir segja að sú háannatíð sem
hefur verið í drykkjumenningunni
á Soho undanfarið sé að mörgu
leyti að þakka The Club Bar and
Dining, sem þar var opnaður fyrir
um einu og hálfu ári. Í fyrra var
staðurinn valinn besti nýi bar ársins
af The Brahma London Club and
Bar Awards en einnig er hægt að
snæða á staðnum. Á jarðhæð er
bar og léttar veitingar en í kjallara
er æðislegur kokkteilbar, mun
íburðarmeiri en afslappað and-
rúmsloftið á efri hæðinni, og þaðan
fer enginn nema að fá sér einn
Clubtini!
OG DANSAÐ…
Crystal Club
78 WELLS STREET, MARYLEBONE,
LONDON, W1T 3QL
+44 (0) 871 971 5006
Viljirðu enda vel heppnað kvöld í
London með stæl er um að gera að
reyna að komast inn á Crystal Club
(þarft örugglega helst að ljúga því
að þú sért sonur eða dóttir forseta
Íslands til að vera öruggur um
aðgang) en á síðasta ári hreiðraði
allt aðallið Lundúna þar um sig.
Enda er skemmtanastjórinn, Jacobi
Anstruther-Gough-Cal thorpe,
besti vinur Vilhjálms prins og þeir
prinsarnir báðir, Vilhjálmur og
Harrý, þar fastagestir og Björk
hefur víst einnig sést skemmta sér
þar. Biðin gæti verið löng utan við
staðinn en þegar inn er komið er
þó ekkert meira vesen og engin
sérstök „VIP-svæði“ sem þér er
meinaður aðgangur að. Eins og
nafn staðarins gefur til kynna
gegnir kristall veigamiklu hlutverki í
hönnun staðarins og ljósahönnunin
er einstök.
STOKK-
HÓLMUR
BORÐAÐ...
Mattias Dahlgren
GRAND HOTEL STOCKHOLM,
SÖDRA BLASIEHOLMSHAMNEN 6,
BOX 16424, S-103 27 STOCKHOLM
+46 867 935 84
Svíinn Mattias Dahlgren er eitt
þekktasta nafnið í veitingarekstri
Svía, en áður rak hann veitinga-
húsið Bon Lloc í Stokkhólmi sem
vann sér það til frægðar að vinna
sér inn Michelin-stjörnu á sínum
tíma. Dahlgren er einnig eini
Svíinn sem unnið hefur Bocuse
d´Or-verðlaunin. Nú á síðasta ári
opnaði Dahlgren nýjan veitingastað
undir eigin nafni á Grand Hotel í
Stokkhólmi en þar er það ekki síður
umhverfi staðarins en maturinn
sem vakið hefur athygli. Nú í janúar
síðastliðnum vann staðurinn The
Wallpaper Design Awards 2008
fyrir bestu hönnunina en hún er í
höndum engrar annarrar en Ilse
Crawford.
Le Rouge
BRUNNSGRÄND 2-4,
111 30 STOCKHOLM
+46 850 524 430
Í október síðastliðnum opnaði
sænsk-franska kokkateymið Dany-
el Couet og Melker Anderson, sem
undanfarin ár hefur opnað hvern
afburðaveitingastaðinn á fætur
öðrum, æðislegt franskt eldhús í
stórkostlegu umhverfi. Veitinga-
staðurinn er á frábærum stað og
innanhúss minnir hann einna helst
á 19. aldar háklassa franskt hóru-
hús.Veggir eru klæddir rauðu velúr
og á gólfum eru þykk rauð teppi
– en eins og nafn staðarins gefur
til kynna er rauði liturinn í aðalhlut-
verki. Sænskt eðalhráefni og frönsk
matreiðsla gera svo frábæra hluti
fyrir bragðlaukana.
Carl Michael
ALLMÄNNA GRÄND 6 115 21
STOCKHOLM
+46 866 745 96
Viljirðu bragða þjóðlegan sænsk-
an hádegisverð eða kvöldmat er
Carl Michael einn sá besti þeirrar
tegundar en þar finnurðu alla
klassísku sænsku réttina, eldaða úr
fyrsta flokks hráefni. Staðurinn sló
í gegn á síðasta ári og var valinn
besti sænski veitingastaðurinn af
sænska tímaritinu Nöjesguiden.
Það var Joakim Persson sem
sá um hönnunina innanhúss en
andrúmsloftið færir þig aftur til 18.
aldar. Þjóðlegt og klassískt.
DRUKKIÐ…
Akkurat
HORNSGATAN 18, 11820 STOCK-
HOLM, SWEDEN
+46 864 400 15
Stór og líflegur bar með næstum
sérkennilega mikið úrval af bjór-
tegundum og þar á meðal má finna
alls kyns „retró“ bjórtegundir sem
einhverjir gætu ætlað að væri hætt
að framleiða fyrir minnst fjörutíu
árum. Hægt er að eyða kvöldinu
í að kaupa sér alls kyns flöskur
og smakka á hinum og þessum
drykkjum – sumum afar sjaldgæf-
um. Frábært stopp áður en haldið
er á vit næturævintýranna.
OG DANSAÐ…
Café Opera
KUNGSTRÄDGÅRDEN SE-111 86
STOCKHOLM, 11186
+46 8 676 58 07
Í um tuttugu ár hefur Café Opera
verið þéttsetinn þotuliði hvað-
an æva að úr heiminum og eru
gestir þar allt frá því að vera
heimsþekktir rokkarar, fyrirsætur og
fyrirfólk. Og engir hálffrægir eða eitt
sinn frægir heldur fólk eins og Mick
Jagger og Cindy Crawford. Stað-
urinn heldur sínum vinsældum og
er einhverra hluta vegna alltaf jafn
vinsæll hvort sem það er glæsi-
legu umhverfinu eða þakka eða
andrúmsloftinu en gestir staðarins
segja að þótt drykkirnir séu frekar
dýrir sé heimsóknin þess virði þar
sem allt er fyrsta flokks.
NEW YORK
BORÐAÐ...
Bar Fry
50 CARMINE ST. Á MILLI BEDFORD
STREET OG BLEECKER STREET
+1 212.929.5050
Einstaklega skemmtilegur og ein-
faldur matsölustaður eða „Eatery“
eins og þeir kalla það í New York.
Bar Fry býður eins og nafnið gefur
til kynna aðeins upp á djúpsteiktan
mat og þá að japönskum hætti. Hér
er hægt að fá alls kyns tempura,
kjöt, fisk, sjávarrétti, grænmeti
og jafnvel ávexti með ljúffengum
ídýfusósum. Meðlæti er engifer,
hrátt saxað grænmeti, hrísgrjón og
steiktur laukur og svo er hægt að fá
heimalagaðan ís í eftirrétt. Dekóið
er einfalt með stórri krítartöflu á
öðrum endanum og stóru barborði,
og með matnum er boðið upp á
ýmiss konar bjóra og sake-vín.
Bar Boulud
1900 BROADWAY Á MILLI
63. OG 64. GÖTU
+1 212.595.0303
Franski kokkurinn Daniel Boulud er
hér með veitingastað með áherslu
á kjötrétti í pottum (terrine)og þá
erum við að tala um allt frá kæfum
og pottréttum eins og coq au vin
upp í blóðpylsu og snigla. Bouloud
er ættaður frá Lyon í Frakklandi og
vildi rifja upp æskuminningar af
pylsum og rauðvíni og á veit-
ingahúsinu er að finna gnægð af
hvoru tveggja. Í forrétt er hægt að
fá alls kyns dásamlegar franskar
pylsur og hráskinkur og vínkjall-
arinn geymir geysilega góð vín frá
Búrgúndí og Rhône-dalnum. Á
meðal rétta er frábær marokkósk-
ur lambapottréttur, foie gras með
púrtvíni og trufflum og kanínu-
glás með pístasíuhnetum. Meðal
eftirrétta eru gamaldags franskar
bökur með ýmiss konar ávöxtum
og rjómabollur með súkkulaðibráð.
Einnig er hægt að setjast niður á
veitingahúsinu bara til þess að fá
sér vínglas.
The Waverley Inn
Í HJARTA WEST VILLAGE, RÉTT
HJÁ VEITINGASTAÐNUM SPOT-
TED PIG
Þessi staður er svo töff að það er
ekkert heimilisfang gefið upp. Það
er ekki einu sinni hægt að hringja
og panta borð. Allar stjörnurnar
fara hingað, þetta var uppáhalds-
staður Heaths Ledger sáluga og
Gwyneth Paltrow er fastagestur.
Maður verður eiginlega bara að
setja upp sitt svalasta púss og
labba hnarreistur inn og athuga
upp á von og óvon hvort það geng-
ur. Maturinn þykir guðdómlegur og
í versta falli er hægt að setjast við
barinn ef maður fær inngöngu en
ekkert borð.
ET, DREKK OG VER GLAÐUR!
Það er ekki sjálfgefi ð að þú rambir inn á réttu staðina þótt þú sért kominn í draumaborgina þína og um að gera að vera búinn að kynna
sér aðeins áður hvar þú átt að eyða dýrmætu kvöldunum þínum þremur eða fjórum í helgarferðinni þinni. Ferðalög héldu á vit veitinga-
staða og næturlífs og bjuggu til lista yfi r staði sem það myndi heimsækja væri það statt í London, París, New York eða Stokkhólmi.