Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 70
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
MARS 2008
I
ngveldur er
tóm. Tóm í
sálinni. Tóm í
hjartanu.
Árið hefur farið
skelfilega af stað
sökum áfalla á
fjármálamark-
aðnum og slæms gengis strákanna
okkar í handboltanum. Og þar með
eru upp talin hennar tvö helstu
áhugamál, peningar og menn. Hún
þarf að fylla í tómarúmið. Hún þarf
ást. Og hvar er meiri ást en í New
York?
Sálfræðingar hafa sannað að
Retail Therapy hefur hjálpað fólki
að komast yfir áföll á borð við
skilnaði, áfengissýki og forræðis-
deilur. Það er engin tilviljun að
Britney og Lindsay fara varla út úr
húsi án þess að koma við í Versace,
Chanel og á einstaka bensínstöðv-
um. Neyslan græðir og læknar öll
sár. En Ingveldur finnur að hún
þarf eitthvað meira en nýja tösku
eða skó. Hún þarf mat. Og hann
amerískan. Það er kominn tími á
átferð til New York.
Ingveldur vill ekki koma heim
frá New York bólgin eins og hinir
sem fara í gúffferðir. Maður þarf
að vinna sér inn fyrir gúffi hugsar
hún enda finnst henni fitukeppirn-
ir sem fara samferða henni í flug-
vélinni ekki eiga þetta skilið. Hún
hallar sér aftur í flugsætið og
minnist Möggu, fyrrverandi mág-
konu, sem fór í sínar árlegur
átferðir til Ítalíu til þess eins að
koma aftur heim bólgin af kolvetn-
um og samviskubiti. En Ingveldur,
hún fer út eftir tíu daga hreinsun
og detox. Þegar Ingveldur borðar
er hún líka ein. Enda finnst henni
afskaplega ósmart að standa á
blístri innan um annað fólk. Í brúð-
kaupum og kokteilboðum liðinna
ára hefur Ingveldur ekki sést með
höfuðið ofan í pinnafati eða rækju-
kokteil, hún felur vínglasið í
myndatökum og reykir ekki opin-
berlega. Ingveldur er aldrei ólekk-
er og fer því til útlanda til að gera
það sem hún þarf að gera og innan
um fólk sem mun aldrei sjá hana
aftur.
Þegar hún lendir á JFK er stefn-
an tekin á Litlu-Ítalíu. Eftir tösku-
kaup á Canal Street beygir hún upp
Mulberry Street sem er hjarta
hverfisins. Útihátíð hjá heima-
mönnum og básar ramma inn göt-
una með dýrindis ítölskum karl-
mönnum sem standa og djúpsteikja
allt á milli himins og jarðar. Ítalski
fáninn, sverir upphandleggir, dökk
augu, svitaperlur, breiðir hálsar og
steiktar kjötsamlokur umlykja
Ingveldi. Sushi hvað? Í augnablik
svimar hana en hún rankar við sér
í tæka tíð áður en hún líður út af.
Hún er komin til himna. Hún setur
upp svört sólgleraugu og brettir
upp ermarnar. Nú verður gúffað í
þögn. New York-leyndarmálið er
óhult með henni einni og djúp-
steiktu pylsusamlokunni... Sálin er
barmafull. Af ást.
UNGFRÚ
INGVELDUR...
Fær sér pylsu í New York
Fótboltaáhugamenn hafa verið
duglegir í vetur að fjölmenna á
leiki í ensku deildinni og enn
eru um þrír mánuðir eftir af
veislunni svo það er ekki úr
vegi að skella sér á leik nú
þegar vorar og hlýnar hið ytra.
Express ferðir eru með sér-
stakan fótboltaklúbb sem snið-
ugt er að ganga í til að fá alls
kyns tilboð og upplýsingar um
nýjustu ferðirnar og íþrótta-
deild Úrval Útsýn hefur í mörg
ár verið dugleg að bjóða upp á
skemmtilegar ferðir til Eng-
lands, bæði nokkrar stórar
hópferðir og svo sérferðir
fyrir minni hópa. IT ferðir
bjóða einnig upp á ferðir til
Englands sem og á ferðir til að
horfa á spænska boltann og að
síðustu má ekki gleyma Evr-
ópumótinu í fótbolta sem má
fara að hlakka til og skipu-
leggja ferðir á bráðum en
mótið hefst 7. júní og lýkur 29.
sama mánaðar.
FULLT AF FÓTBOLTA framundan
- og Evrópumótið sjálft í júní
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu