Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 11
SUNNUDAGUR 24. febrúar 2008
Helga Lára Hauksdóttir er annar
tveggja framkvæmdastjóra lög-
fræðiaðstoðar Orators en frá árinu
1981 hefur fólk getað hringt til
hennar og fengið ókeypis lög-
fræðiráðgjöf og hefur fjöldi
Íslendinga nýtt sér aðstoðina. „Við
veitum alhliða lögfræðiaðstoð,
aðstoðum og leiðbeinum með alls
kyns mál, mikill hluti þeirra eru
sifjamál, mál sem tengjast kröfu-
rétti og samningarétti. Þarna fær
fólk kjörið tækifæri til að kanna
réttarstöðu sína og getur þá áttað
sig á því hver séu skynsamleg
næstu skref. Fólk er líka oft bara
að forvitnast, er ekki í vandræð-
um, en vill kannski athuga hvaða
leið það getur farið ef svo ber
undir,“ segir Helga Lára og bætir
við að á símatíma rigni símtölum
inn og oft komist færri að en vilja.
„Símatíminn er milli hálfátta og
tíu á fimmtudagskvöldum en við
náum að sinna milli 15 til 20 manns
á hverju kvöldi. Þörfin er alltaf
mikil og hefur verið í öll þau ár
sem lögfræðiaðstoðin hefur verið
starfrækt.“ Helga Lára segir
starfið vera mjög gefandi og þarna
geti lögfræðingar framtíðarinnar
fengið góða æfingu og veitt
almenningi aðstoð um leið. „Það er
mikill heiður fyrir starf Orators
að vera tilnefnt til Samfélagsverð-
launanna og hvetjandi.“
Helga Lára Hauksdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðiaðstoðar Orators:
Þörfin er alltaf mikil
HELGA LÁRA HAUKSDÓTTIR OG BARBARA INGA ALBERTSDÓTTIR Lögfræðiaðstoð
Orators hefur hjálpað Íslendingum í sautján ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Starfsemi Hjálpræðishersins á
Íslandi hófst árið 1895 og hefur
verið öflug allar götur síðan, þó
að hún hafi eðlilega tekið nokkr-
um breytingum. Anne Marie
Reinholdtsen majór er yfirfor-
ingi Hjálpræðishersins á Íslandi.
Hún segir starfsemina hafa verið
í sókn að undanförnu.
„Starfið felst að miklu leyti í
að rétta bágstöddum hjálpar-
hönd, en við erum einnig með
öflugt æskulýðsstarf, sérstak-
lega í Reykjavík og á Akureyri. Í
nóvember síðastliðnum opnuð-
um við dagsetur úti á Granda
sem býður upp á samastað og
félagsskap yfir daginn. Að auki
hófum við í fyrsta skipti starf-
semi í Reykjanesbæ nú í haust
og því er nóg um að vera hjá
okkur.“
Hjálpræðisherinn starfar eftir
sömu kristilegu gildunum um
allan heim. „Við reynum að
hjálpa öllum sem þurfa á hjálp
að halda, sama hverjar aðstæður
þeirra eru. Við þurfum þó að
setja vissar reglur, til dæmis um
þá hegðun sem fólk sýnir á gisti-
heimilum. En oftast gengur
hjálparstarfið vel,“ segir Anne.
Í starfi sínu með Hernum
hefur Anne kynnst öllu litrófi
mannlífsins. Hún segir starfið
stundum reyna á. „Það koma
vissulega erfiðar stundir en
starfið er oftast afskaplega gef-
andi og skemmtilegt.“
Hjálpræðisherinn á Íslandi:
Erfitt en gefandi starf
ANNE MARIE REINHOLDTSEN MAJÓR OG ASLAUG LANGGÅRD Þær stöllur hafa
lengi starfað á vegum Hjálpræðishersins á íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BAS-hópurinn er skipaður þeim
Önnu Ingigerði Arnarsdóttur,
Bríeti Birgisdóttur og Soffíu
Eiríksdóttur, en þær eru allar
hjúkrunarfræðingar. Þær vöktu
mikla athygli síðastliðið sumar
þegar þær skipulögðu vel sótta
göngu gegn umferðarslysum. Upp-
haflega áttu þær von á að um
hundrað manns tækju þátt í göng-
unni, en þegar upp var staðið
reyndust þátttakendurnir um
fimm þúsund.
„Við vorum að sjálfsögðu himin-
lifandi yfir því hvað þetta átak
vakti mikil viðbrögð. Fólk úr þeim
starfsstéttum sem koma að umferð-
arslysum, til að mynda sjúkraflutn-
ingamenn og slökkviliðsmenn, fjöl-
mennti í gönguna og almenningur
einnig, enda láta alvarleg umferð-
arslys fáa ósnortna í svona litlu
samfélagi,“ segir Soffía.
BAS-hópurinn hefur tekið þátt í
fleiri göngum til góðs. „Við höfum
allar unnið talsvert með krabba-
meinssjúklingum og okkur langaði
til þess að safna peningum til þess
að styrkja þann málsstað,“ segir
Soffía. „Árið 2006 tókum við því
þátt í Avon-göngunni í New York,
en í henni söfnuðust í allt 9,7 millj-
ónir bandaríkjadala sem renna til
meðferða og rannsókna á krabba-
meini.“
Þær stöllur í BAS-hópnum
stefna að því að halda starfi sínu
áfram og stefna að annarri göngu
gegn umferðarslysum með vor-
inu.
BAS-hópurinn gengur til góðs:
Vekja athygli á slysum
BAS-HÓPURINN Bríet Birgisdóttir, Anna Ingigerður Arnarsdóttir og Soffía Eiríksdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON