Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 10
10 24. febrúar 2008 SUNNUDAGUR
SAMFÉLAGSVERÐLAUN FRÉTTABLAÐSINS
Samfélagsverðlaunin
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða afhent á þriðjudag. Veitt verða verðlaun í fjórum flokkum og hafa fimm verið tilnefndir í
hverjum flokki. Í dag eru kynnt þau félagasamtök sem tilnefnd eru fyrir framúrskarandi starf sitt í þágu mannúðarmála eða náttúru-
verndar og hafa lagt sitt af mörkum til að bæta íslenskt samfélag.
ABC barnahjálp var stofnuð fyrir tuttugu
árum. Guðrún Margrét Pálsdóttir var ein af
stofnendum en hún kynntist neyð barna í
gegnum ferðir sínar um heiminn. ABC
barnahjálp útvegar þurfandi börnum
menntun, umönnun og framfærslu auk þess
að byggja skóla og heimili sem börnin sækja
og dvelja á. „Þegar ég var að byrja vorum
við örfá sem störfuðum að þessu og vorum
þá að styðja um 100 börn. Í dag eru virkir
stuðningsfélagar um sex þúsund talsins og
fjölgaði þeim hlutfallslega mest í fyrra.
Bæði er það að fólk er orðið meðvitaðra um
hvað þörfin fyrir hjálp er mikil og svo er
heimasíðan okkar, www.abc.is orðin mjög
aðgengileg þar sem fólk getur valið sér barn
til að styðja,“ segir Guðrún. Félagið styrkir
í dag börn á Indlandi, Filippseyjum,
Pakistan, Úganda, Kenía og Senegal og í
Líberíu er verið að undirbúa hjálparstarf og
bygging heimavistarskóla er þar í fullum
gangi. „Við erum einnig að undirbúa hjálp-
arstarf í fleiri löndum en börnin búa ýmist á
barnaheimilum og heimavistum ABC eða
eru hjá aðstandendum og sækja skólana.
Þannig fá þau öll menntun.“
Guðrún segir tilnefningu til Samfélags-
verðlaunanna hafa mikla þýðingu. „Slíkt
vekur athygli á starfinu en við erum með
mörg börn sem vantar stuðning og þurfum
sárlega á auknum liðsafla að halda. Stofnun
ABC Barnahjálpar í Færeyjum var fyrsta
skrefið stil að útvíkka starf ABC barna-
hjálpar á Vesturlöndum og nú erum við búin
að skrá starf okkar einnig á Flórída og erum
spennt að opna þar skrifstofu.“
Guðrún Margrét Pálsdóttir, formaður ABC barnahjálpar :
Virkir stuðningsfélagar
um sex þúsund talsins
Saman-hópurinn er frjáls félagasamtök
ólíkra aðila sem vinna að sameiginlegu
markmiði. Hópurinn vill með starfsemi
sinni stuðla að samstarfi fólks sem vinnur
að forvörnum, vekja athygli á þeirri ógn
sem börnum og unglingum stafar af
útbreiðslu áfengis og vímuefna í samfélag-
inu og síðast en ekki síst styrkja og styðja
foreldra í uppeldishlutverkinu. Fjöldi aðila
sem á einn eða annan hátt starfa með eða
fyrir börn og unglinga eiga fulltrúa innan
hópsins. Má til dæmis nefna sveitarfélög,
Barnaheill, lögregluna á höfuðborgarsvæð-
inu og Rauða kross Íslands.
Bergþóra Valsdóttir er fulltrúi SAMFOK
í Saman-hópnum. Hún segir starfsemina
hafa byrjað í kringum aldamótin síðustu.
„Þá tók sig saman hópur fólks og fór af stað
með herferð þar sem foreldrar voru hvattir
til þess að fagna þessum tímamótum með
börnunum sínum. Skilaboðunum var vel
tekið; þau virtust bera árangur og því höfum
við haldið starfinu áfram.“
Skilaboð Saman-hópsins beinast fyrst og
fremst að foreldrum og forráðamönnum.
„Við segjum stundum að foreldrar séu besta
forvörnin. Við höfum aftur á móti forðast að
predika varðandi uppeldi og reynum frekar
að hafa jákvæða hvatningu og stuðning að
leiðarljósi í starfi okkar,“ segir Bergþóra.
Saman-hópurinn stuðlar að samveru fjölskyldunnar:
Jákvæð og hvetjandi
skilaboð frá foreldrum
VINNUHÓPUR SAMAN-HÓPSINS FUNDAR Guðbjörg S. Bergsdóttir frá Ríkislögreglustjóra, Eygló Rúnarsdóttir
frá ÍTR og Sveinbjörn Kristjánsson frá lýðheilsustöð eru fulltrúar í Saman-hópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GUÐRÚN MARGRÉT PÁLSDÓTTIR Hefur í tuttugu ár helgað krafta sína þurfandi börnum í heiminum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM