Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 4
4 24. febrúar 2008 SUNNUDAGUR
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
130,2087
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
66,76 67,08
131,22 131,86
98,99 99,55
13,277 13,355
12,544 12,618
10,636 10,698
0,6232 0,6268
106,05 106,69
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Í blaðinu í gær misritaðist tímasetn-
ing á útför Friðþjófs Þorkelssonar.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 28. febrúar klukkan
15.00.
LEIÐRÉTTING
SKOÐANAKÖNNUN Tæplega 72 pró-
sent segjast nú styðja ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar,
sem er mjög áþekk niðurstaða og
fyrir mánuði þegar 68,5 prósent
sögðust styðja stjórnina. Fylgið er
mest meðal kjósenda Sjálfstæðis-
flokks, 95,9 prósent, og kjósenda
Samfylkingar, 87,1 prósent. Af
þeim sem ekki gefa upp hvaða
flokk þeir myndu kjósa segjast
63,5 prósent styðja ríkisstjórnina.
Ríkisstjórnarflokkarnir tveir
eru þeir flokkar sem eru stærstir
samkvæmt nýrri könnun Frétta-
blaðsins. 40,1 prósent styður Sjálf-
stæðisflokkinn og 35,2 prósent
styðja Samfylkinguna. Sjálfstæðis-
flokkurinn mælist því aftur með
sama fylgi og í september á síðasta
ári, en fylgið hafði aðeins dalað í
janúarmánuði. Nokkur munur er á
fylgi Sjálfstæðisflokks eftir kyni
og hefur fylgi flokksins aukist um
fimm prósent meðal karla frá síð-
asta mánuði. 46,1 prósent karla og
32,7 prósent kvenna styðja flokk-
inn nú.
Lítill munur er á fylgi Sjálfstæðis-
flokksins eftir búsetu; 40,8 prósent
á höfuðborgarsvæðinu og 39,1 pró-
sent á landsbyggðinni.
Þá er einnig lítill munur á fylgi
Samfylkingar eftir búsetu, 36,0
prósent á höfuðborgarsvæðinu og
33,9 prósent á landsbyggðinni segj-
ast myndu kjósa flokkinn nú.
Ef fylgi flokksins eftir kyni er
skoðað segjast 32,9 prósent karla
og 38,1 prósent kvenna styðja
flokkinn.
Taka verður þó tillit til þess að
breytingar á fylgi allra flokka frá
síðustu könnun eru innan skekkju-
marka. Þá er munur á fylgi Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar
einnig innan skekkjumarka.
Munur á fylgi Framsóknarflokks
og Frjálslynda flokksins er einnig
innan skekkjumarka, en 5,9 pró-
sent segjast nú myndu kjósa Fram-
sóknarflokkinn og 3,8 prósent
styðja Frjálslynda flokkinn. Lítið
fylgi flokksins á landsbyggðinni
vekur athygli, 8,3 prósent. Þá segj-
ast 4,5 prósent á höfuðborgarsvæð-
inu kjósa flokkinn. 7,5 prósent
karla og 4,0 prósent kvenna styðja
Framsóknarflokkinn.
Lítill munur er á fylgi Frjáls-
lynda flokksins eftir búsetu og
hefur flokkurinn 3,5 prósenta fylgi
á höfuðborgarsvæðinu og 4,2 pró-
senta fylgi á landsbyggðinni. Þá
segjast 4,3 prósent karla og 3,1
prósent kvenna styðja flokkinn.
Vinstri græn halda sínu frá kosn-
ingum og síðustu könnun en 14,2
prósent segjast nú myndu kjósa
flokkinn. Nánast enginn munur er
á fylgi flokksins eftir búsetu, en
kynjamunur er þó nokkur. 8,6 pró-
sent karla styðja Vinstri græn en
21,2 prósent kvenna.
Hringt var í 800 manns á kosn-
ingaaldri laugardaginn 23. febrúar,
og skiptust svarendur jafnt eftir
kyni og hlutfallslega eftir búsetu.
Spurt var; Hvaða lista myndir þú
kjósa ef boðað yrði til kosninga nú?
og tóku 63,3 prósent afstöðu til
spurningarinnar. Þá var spurt;
Styður þú ríkisstjórnina? og tóku
87,3 prósent afstöðu til þeirrar
spurningar. svanborg@frettabladid.is
Helmingur kjörfylgis
Framsóknarflokksins
Sex prósent segjast nú myndu kjósa Framsóknarflokkinn. Fylgi Framsóknar-
flokks og Frjálslynda flokksins hefur dregist saman um helming frá kosning-
um. Samfylking hefur á sama tíma bætt við sig átta prósentustigum.
40
35
30
25
20
15
10
5
Kosningar
12. maí ´07
15. maí ´07 29. sept. ´07 30. jan. ´08 23. feb. ´08
VINSTRI GRÆN
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
SAMFYLKING
FRJÁLSLYNDIR
FRAMSÓKNARFLOKKUR
36,6%
26,8%
14,3%
11,7%
7,3%
39,1%
23,2%
15,1%
13,2%
7,3%
40,2%
29,8%
16,5%
8,8%
4,4%
FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKANNA
Samkvæmt könnun Fréttablaðsins
36,7%
34,8%
15,4%
8,9%
3,6%
40,1%
35,2%
14,2%
5,9%
3,8%
SKOÐANAKÖNNUN „Mestu tíðindin í
þessari könnun eru þau að sú
neikvæða
umræða sem
hefur verið í
kringum Sjálf-
stæðisflokkinn
hefur ekki áhrif á
fylgið. Það kemur
verulega á óvart
að þeir skuli
mælast með
meira fylgi nú en
síðast,“ segir
Guðjón Arnar
Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins.
„Ég vildi gjarnan sjá okkur
mælast með svipað fylgi og í
kosningunum en því er ekki að
leyna að við höfum alltaf komið
betur út úr kosningum en
skoðanakönnunum.“
Guðjón Arnar Kristjánsson:
Komum betur
út í kosningum
SKOÐANAKÖNNUN „Framsóknar-
flokkurinn hefur orðið fyrir
ýmsum áföllum á þessum vetri,
ekki síst hér í Reykjavík, og sú
umræða hefur eflaust áhrif á
niðurstöðurnar. Ég geri mér hins
vegar vonir um að erfiðleikarnir
séu að baki og að okkar endur-
reisnarstaf fari að skila sér,“
segir Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins.
„Fylgi við stjórnarflokkana
vekur undrun mína, ekki síst
vegna spillingarumræðunnar sem
verið hefur hávær undanfarið og
eins vegna efnahagserfiðleika
sem þeir bera að hluta til ábyrgð
á.“ - þo
Guðni Ágústsson:
Slæm umræða
hefur áhrif
GUÐJÓN ARNAR
KRISTJÁNSSON
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Bassel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Á MORGUN
NV-átt 12-15 m/s,
við suðurströndina.
MÁNUDAGUR
Norðaustlæg átt
víða um land.
-2
-2
-2
-3
-3
-3 -3
-2
0
-7
-1 7
9
7
8
7
8
7
5
6
8
5
-2
-2
-2
-1 -3
-2 -1
-3
-2
-2
HÆGVIÐRI UM
ALLT LAND
Veðurspáin lítur
ágætlega út, og
helst er frá því að
segja að lægðirnar
virðast fara suður
fyrir landið næstu
dagana, það þýðir
yfi rleitt hægviðri
og smávægilega
úrkomu á öllu
landinu.
Elín Björk
Jónsdóttir
Veður-
fræðingur
SKOÐANAKÖNNUN „Þetta eru mjög
góð tíðindi fyrir Samfylkinguna
enda höfum við stóraukið fylgi
okkar síðan í kosningunum.
Báðir ríkisstjórnarflokkarnir
koma vel út úr þessari könnun
enda hefur stjórnin verið að gera
góða hluti. Þetta er vinsæl
ríkisstjórn sem lætur verkin
tala,“ segir Ágúst Ólafur
Ágústsson, varaformaður
Samfylkingarinnar.
Hann segir að fylgi stjórnar-
andstöðuflokkanna komi ekki á
óvart. „Þetta er áfellisdómur yfir
stjórnarandstöðunni, sem nær
engu flugi,“ segir Ágúst Ólafur.
- þo
Ágúst Ólafur Ágústsson:
Stjórnarand-
staðan veik
SKOÐANAKÖNNUN „Við getum vel
unað við þessa niðurstöðu en það
er ljóst að staðan innan stjórnar-
andstöðunnar er frekar döpur.
Við erum eini flokkurinn sem
heldur sjó og erum með svipað
fylgi og í kosningunum.
Mig grunar að Samfylkingin
taki frá hinum stjórnarandstöðu-
flokkunum og eitthvað af fylgi
Framsóknarflokksins hefur farið
yfir til Sjálfstæðisflokksins,“
segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður VG.
„Nú fer að reyna á ríkisstjórn-
ina. Mig grunar að þetta séu
hæstu tölur sem við sjáum á
kjörtímabilinu um fylgi ríkis-
stjórnarflokkanna.“ - þo
Steingrímur J. Sigfússon:
Eini flokkurinn
sem heldur sjó
SKOÐANAKÖNNUN „Þetta hljóta að
teljast góð tíðindi fyrir okkur og
við fögnum því hversu vel við
stöndum. Þetta sýnir að forysta
okkar er sterk og
við njótum mikils
trausts,“ segir
Arnbjörg
Sveinsdóttir,
þingflokksform-
aður Sjálfstæðis-
flokksins. Hún
segir að umrótið
í kringum
borgarstjórnar-
málin sé farið að
sjatna og það
skili sér í auknu fylgi. „Niður-
stöður kjarasamninga sem
ríkisstjórnin kom að hafa eflaust
áhrif á þessar tölur. Fólk treystir
Sjálfstæðisflokknum greinilega
best til að stjórna skútunni,“
segir Arnbjörg. - þo
Arnbjörg Sveinsdóttir:
Umrótið farið
að sjatna
VERÐLAUN Breiðavíkurmálið var áberandi þegar
Blaðamannaverðlaun ársins 2007 voru afhent í gær
af Blaðamannafélagi Íslands. Ritstjórn DV deildi
verðlaunum fyrir bestu rannsóknarblaðamennskuna
með þeim Þóru Tómasdóttur og Sigmari Guðmunds-
syni úr Kastljósi fyrir umfjöllun sína um Breiða-
víkur málið. Þetta er í fyrsta sinn í fimm ára sögu
verðlaunanna sem aðilar af tveimur ritstjórnum
deila með sér verðlaununum.
Kristján Már Unnarsson, fréttamaður á frétta-
stofu Stöðvar 2, fékk blaðamannaverðlaun ársins
2007. Í rökstuðningi dómnefndar segir að Kristján
hafi fengið verðlaunin fyrir upplýsandi fréttir úr
hversdagslífi á landsbyggðinni. Þar hafi hann á
látlausan en áhrifaríkan hátt varpað ljósi á ýmsar
þær þjóðfélagsbreytingar sem séu að verða á
íslensku samfélagi.
Jóhannes Kr. Kristjánsson og Kristinn Hrafnsson
í þættinum Kompási á Stöð 2 fengu verðlaun fyrir
bestu umfjöllun ársins. -fb
Blaðamannaverðlaun ársins 2007 voru afhent í gær:
Breiðavíkurmálið áberandi
SIGURVEGARAR Sigurvegarnir stilltu sér glaðbeittir upp eftir
afhendingu verðlaunanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ARNBJÖRG
SVEINSDÓTTIR
GENGIÐ 22.02.2008